Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
✝ GuðlaugurHelgi Karlsson
fæddist á Siglufirði
25. desember 1928.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Fjallabyggðar 11.
október 2014.
Foreldrar hans
voru hjónin Herdís
Hjartardóttir hús-
móðir, f. 15.8. 1894
í Langhúsum í
Fljótum í Skagafjarðarsýslu,
d. 26.12. 1987 og Karl Stur-
laugsson húsasmíðameistari,
f. 27.4. 1886 í Ytri-Fagradal á
Skarðsströnd í Dalasýslu, d.
8.2. 1948. Systkini Guðlaugs
eru: 1) Hjörtur Gunnar, f.
13.4. 1926, d. 25.4. 2000 og 2)
Herdís Kristín, f. 30.10. 1927,
d. 11.4. 2006.
Guðlaugur kvæntist 6.9.
1952 eftirlifandi eiginkonu
sinni Magðalenu Sigríði Halls-
dóttur, fv. símafulltrúa, f.
28.6. 1928 á Siglufirði. For-
eldrar hennar voru Sigríður
Jónsdóttir húsmóðir, f. 15.12.
1897, d. 10.8. 1983 og Hallur
Garibaldason verkamaður, f.
24.6. 1893, d. 15.4. 1988. Börn
Guðlaugs og Magðalenu eru:
hjúkr.fr., f. 22.10. 1963, börn
þeirra eru: a) Sara Margrét,
f. 1986, b) Sigríður, f. 1992,
sambýlismaður Eiríkur Björg-
vin Hilmarsson, f. 1987, sonur
Eiríks er Mikael, f. 2007, c)
Júlí, f. 1996, unnusta Brynja
Þórðardóttir, f. 1997, d) Lív,
f. 2002, 4) Guðbjörg Jóna,
hjúkr.fr., f. 17.6. 1969, maki
Nils Gústavsson, verkfr., f.
5.2. 1966, börn þeirra: a) Mar-
grét, f. 1998, b) Andrea, f.
2001 og c) Gústav, f. 2003.
Guðlaugur var fæddur og
uppalinn á Siglufirði og bjó
þar allt sitt líf. Hann lauk
loftskeytaprófi 1948 og fisk-
matsprófi 1959. Hann starfaði
sem loftskeytamaður á sím-
stöðinni á Siglufirði og í af-
leysingum á flutningaskipum
og togurum auk þess að
starfa í frystihúsi og á skatt-
stofunni. Guðlaugur var síma-
fulltrúi á símstöðinni á Siglu-
firði frá árinu 1967 þar til
hann lét af störfum vegna
aldurs.
Guðlaugur tók þátt í ýms-
um félagsstörfum, s.s. hjá
Rótarý, Lions, sat í sókn-
arnefnd Siglufjarðarkirkju
auk þess að vera virkur félagi
í Karlakórnum Vísi þar sem
hann var formaður í nokkur
ár.
Útför Guðlaugs fer fram
frá Siglufjarðarkirkju í dag,
18. október 2014, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
1) Guðný Sigríð-
ur, ljósmóðir og
hjúkr.fr., f.
23.11. 1953,
maki Ómar Ein-
arsson fram-
kv.stj., f. 14.2.
1954, börn
þeirra eru: a)
Einar, f. 1981,
sambýliskona
Unnur Gísladótt-
ir, f. 1983, dóttir
þeirra Karen Emmý, f. 2010,
b) Soffía Arna, f. 1985, maki
Ari Þorleifsson, f. 1982, sonur
þeirra Ómar, f. 2013, 2) Guð-
rún Herdís skrifstofumaður,
f. 24.4. 1957, maki Kristján S.
Sigmundsson framkv.stj., f.
9.6. 1957, börn þeirra eru: a)
Sigmundur, f. 1983, maki
Svanhildur Birgisdóttir, f.
1982, börn þeirra Þóra Marín,
f. 2011 og Kristján Sigfús, f.
2013, b) Magðalena Sigríður,
f. 1988, sambýlismaður Arn-
þór Gíslason, f. 1984, sonur
þeirra Gunnar Helgi, f. 2014,
c) Guðlaugur Helgi, f. 1994,
unnusta Sóley Ósk Benedikts-
dóttir, f. 1994, 3) Karl tann-
læknir, f. 7.4. 1966, maki
Kristjana Sæberg Júlídóttir
Það var kyrrð yfir firðinum
fagra. Stilla sem aldrei fyrr og
mátti sjá glitta í „morsandi“
stjörnur á himinhvolfinu innan
um dúnmjúk ský með snævi
þakinn fjallahringinn sem um-
vefjandi faðm. Kallið var komið
og tími til þess að leggja af stað
hjá pabba okkar Guðlaugi
Helga, á vit nýrra ævintýra í
faðm þess hlýja og fallega sem
bíður okkar allra.
Við þökkum Guði fyrir þennan
yndislega pabba. Við kveðjum
hann með þakklæti í hjarta fyrir
alla þá ást og umhyggju sem
hann gaf okkur og fyrir að vera
til fyrir okkur. Við grátum af
gleði yfir því að hafa átt hann, en
líka af því við munum sakna
hans svo mikið.
Guðný Sigríður,
Guðrún Herdís, Karl
og Guðbjörg Jóna.
Tengdafaðir minn Guðlaugur
Helgi Karlsson hefur fengið
hvíldina. Ég veit að hún var hon-
um kærkomin eftir mörg ár þar
sem hann gat ekki notið þeirra
gæða sem lífið hafði upp á að
bjóða.
Ég kynntist Gulla Kalla fyrst
sumarið 1977, þegar ég kom inn
í fjölskylduna. Ég kom til Siglu-
fjarðar í sýningarferð og á móti
mér tók Gulli og ég kynnti mig.
Ég hafði rétt náð að segja til
nafns þegar hann sagði að við
þyrftum að fara niður í kjallara
og athuga með þvottavélina. Þar
kynntist ég „bússunni“ fyrst. Við
náðum strax mjög vel saman og
má segja að við höfum frá fyrstu
tíð verið á sömu blaðsíðu eins og
sagt er í dag. Margar eru minn-
ingarnar, t.d. þurfti alltaf að
vera að gera eitthvað, hvort sem
það var að fara á haugana, bletta
húsið eða kíkja á hefilbekkinn
hjá Hirti, bróður Gulla.
Eitt af því sem hann var mjög
stoltur af var Karlakórinn Vísir,
en Gulli var einmitt þátttakandi í
því mikla ævintýri sem kórinn
var. Þeir héldu tónleika um allt
land, ferðuðust til útlanda og má
segja að þeir hafi verið popparar
þess tíma. Hvað hlustuðum við
ekki oft á Karlakórinn Vísi í stof-
unni á Fossveginum og hann
sagði sögur frá ferðum kórsins.
Það var alltaf líf í kringum
Gulla Kalla, enda sagði hann að
það þýddi nú lítið að vera bara
„að sjúga bolsíur“, það væri nær
að fá sér smá „límonaði“ og á ég
margar frábærar minningar frá
þeim tíma sem ég geymi með
mér. Gulli talaði oft í frösum,
sem í dag eru orðnir fastir innan
fjölskyldunnar.
Einnig átti hann það til að
gefa hinum ýmsu mönnum við-
urnefni sem mér skilst að pabbi
hans, Kalli Sturlu, hafi einnig
verið frægur fyrir.
Þegar Gulli vann sem síma-
fulltrúi á símstöðinni á Siglufirði,
þá fékk maður iðulega símtöl frá
honum og alltaf byrjaði hann
samtalið með því að segja: „Ég
er bara að kanna sambandið,“ og
síðan var rætt um eitt og annað.
Ég eignaðist ekki bara frá-
bæran tengdaföður, heldur einn-
ig mikinn vin, því það bar aldrei
skugga á okkar vináttu. Minn-
ingar mínar um tengdaföður
minn tengi ég við síðustu öld, því
það eru minningar sem standa
uppúr og lýsa honum eins og
hann var, en heilsu hans fór að
hraka upp úr aldamótunum og
var hann engan veginn sami
maður og áður.
Við höfðum oft gantast með
„bússuna“ enda hún samofin
kjallaranum á Fossveginum. Það
var svo einn blíðviðrisdag, sum-
arið 2002, að hann kom austur í
sumarbústað til okkar Guðrúnar
og hvað hafði hann í farteskinu?
Jú hann færði mér „Bússuna“ að
gjöf og sagði að hún væri best
komin hjá mér í geymslunni í
sumarbústaðnum, hann hefði
ekki not fyrir hana lengur.
Elsku Madda mín, ég bið góð-
an Guð að vaka yfir þér um leið
og ég þakka tengdaföður mínum
fyrir allt og allt.
Þinn tengdasonur,
Kristján S. Sigmundsson.
Guðlaugur Helgi Karlsson,
Gulli Kalla, tengdafaðir minn,
frá Siglufirði hefur fengið lang-
þráða hvíld. Hin síðari ár hafa
verið honum erfið og dapurt hef-
ur verið að horfa upp á heilsuna
bresta og lífið fjara út.
Það mun þó ekki skyggja á
fyrri tíma, með ótal minningum
um stundir sem voru fullar af
lífsgleði og skemmtilegheitum.
Alla tíð bjuggu Gulli og
Madda á Siglufirði og þangað
fóru börn, tengdabörn og barna-
börn reglulega og upplifðu lífið
og tilveruna með öðrum hætti en
á höfuðborgarsvæðinu. Um-
hyggja Gulla fyrir fjölskyldunni
var mikil, barnabörnin hændust
að honum og elskuðu hann öll og
fannst fátt skemmtilegra en að
vera hjá afa Gulla og ömmu
„túrbó“.
Og svo var líka veðrið alltaf
svo gott á Sigló og í daglegum
símtölum, hér áður fyrr, við
Gulla á símstöðinni voru veður-
lýsingarnar alltaf með sama
hætti, veðrið var dásamlegt og
skipti þá ekki máli hvort úti væri
sól og blíða eða norðangarri.
Gulla verð ég svo ævinlega
þakklátur fyrir að hann skyldi
treysta mér svona vel fyrir Lor-
dinum.
Minning hans verður í heiðri
höfð á Fossveginum, þar sem
börn og fjölskyldur hafa komið
sér upp dvalarstað í glæsihúsinu
sem hann byggði, þar verður
gestum boðið upp á snafs úr
bússu og spiluð tónlist með
Karlakórnum Vísi.
Starfsfólki Heilbrigðisstofn-
unar Fjallabyggðar er þökkuð
öll umönnun og hjúkrun, hin síð-
ari ár, við bæði Gulla og Möddu.
Ég vildi að ég væri eins og þú
og vakað gæti bæði daga og nætur
Þá öllu skyldi kveða óð um unað, ást
og trú
sem aldrei bregst er hugga lætur.
Já, ef ég mætti lifa eins og lindin
silfurtær
sem lög á sína undrastrengi slær.
(Bjarki Árnason)
Ómar Einarsson.
Nú hefur elsku besti afi minn
kvatt þennan heim. Sorgin er
mikil en huggunin er sú að nú
ertu kominn á góðan stað og laus
úr fjötrum lúins líkama.
Margar hlýjar og góðar minn-
ingar rifjast upp um góðan og
hjartahlýjan afa og mun ég varð-
veita þær í hjarta mínu alla ævi.
Ég kveð þig nú með þakklæti
fyrir samfylgdina og treysti því
að vel verði tekið á móti þér.
Þangað til næst
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín afastelpa,
Soffía Arna.
Gulli frændi var hrókur alls
fagnaðar. Mér þótti hann alltaf
ótrúlega skemmtilegur.
Við vorum systkinabörn og
mikill samgangur á milli systk-
inanna þegar ég var að alast
upp. Ég, sem langyngsti með-
limur beggja fjölskyldna, leit
upp til frændsystkina minna og
var ekkert nema eyru og augu
þegar þau voru nálæg. Gulli var
yngstur þriggja systkina en
Hjörtur var elstur og Dísa í mið-
ið. Heima hjá mér gengu Gulli
og Hjörtur alltaf undir nafninu
„strákarnir“ en það voru engir
strákar á mínu heimili, en Dísa
var kölluð „Dísa litla“ til að að-
greina hana frá móður sinni.
Dísa var mér sem fjórða systirin
alla tíð. Í raun fannst mér þau
öll eins og eldri systkini mín
þrátt fyrir töluverðan aldurs-
mun. Gulli og Hjörtur unnu báð-
ir sem loftskeytamenn á ritsím-
anum á Siglufirði og voru alla tíð
óaðskiljanlegir bræður. Gulli
missti mikið þegar Hjörtur lést
fyrir nokkrum árum. Gulli var
alltaf hress, mjög fyndinn og
orðheppinn.
Það fór aldrei á milli mála
þegar Gulli var á staðnum, hann
var ekki beint lágvær. Ég minn-
ist ótal ánægjustunda á heimili
Dísu föðursystur og á heimili
Gulla og Möddu eiginkonu hans,
en þau voru mjög gestrisin og
frábær heim að sækja. Þegar
komið var á Siglufjörð eftir að
ég fluttist þaðan var alltaf farið
að heimsækja Gulla og Möddu.
Var mér og fjölskyldu minni,
þegar hún kom til sögunnar, allt-
af tekið opnum örmum, ekki síð-
ur af Möddu, sem var ætíð jafn-
elskuleg, alltaf tilbúin að hjálpa
öllum og hafði ráð undir hverju
rifi.
Gulli hefur átt við veikindi að
stríða í mörg ár og er örugglega
hvíldinni feginn. Ég samgleðst
honum í hjarta mínu þrátt fyrir
að erfitt sé að horfa á eftir góð-
um frænda. Gulli er síðastur
systkinanna til að fara á vit feðra
sinna. Að honum gengnum er
vissum kafla lokið hjá þessum
frændgarði, þó eiga þau öll af-
bragðsafkomendur sem þau voru
örugglega stolt af, enda full
ástæða til.
Ég kveð elsku frænda minn
með söknuði en þakka fyrir hvað
hann gaf mér með nærveru
sinni, lífsgleði og góðu skapi sem
barni og fullorðinni konu. Elsku
Madda, Guðný, Guðrún, Kalli,
Guðbjörg og fjölskyldur, ég
ásamt fjölskyldunni sendi okkar
innilegustu samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Sveinbjörg.
Í dag kveð ég minn elskulega
móðurbróður, Gulla frænda á
Sigló. Þannig var talað um hann
á mínu heimili, þetta tvennt fór
saman; Gulli og Siglufjörður.
Það er margs að minnast og svo
margt sem ég er þakklát fyrir
þegar ég hugsa með hlýju og
gleði í hjarta til frænda míns. Ég
var mjög lítil hnáta þegar ég
man eftir mínum fyrstu ferðum
til Siglufjarðar. Þeir bræður
Hjörtur og Gulli voru ávallt
nefndir í sömu andránni, enda
vorum við mamma oft á ferðinni
að heimsækja ömmu og þá
bræður og fjölskyldur þeirra á
Sigló. Því er varla hægt að minn-
ast á Gulla öðru vísi en að tala
líka um Hjört frænda. Ég á
margar skemmtilegar og ljúfar
minningar um þá bræður frá því
ég var lítil stelpa. Eftirvænting-
in var alltaf mikil þegar komið
var akandi að Strákagöngunum
og svo alltaf viss léttir að sjá
húsin í bænum birtast þegar ek-
ið var inn fjörðinn. Eftirvænt-
ingin var ekki síðri að fá að hitta
Gulla á pósthúsinu og Hjört á
loftskeytastöðinni. Ég man enn
hvað ég iðaði af spenningi að
hitta þá því þeir tóku mér alltaf
fagnandi á vinnustaðnum sínum
og leyfðu mér að skoða framandi
tæki í póst- og fjarskiptum. Það
var mikið ævintýri fyrir litla
stelpu.
Heimsóknir á heimili Gulla og
Möddu á Siglufirði voru margar,
á sumrin og um páska. Það voru
ófáar ferðir sem voru farnar á
skíði í Hólshyrnunni um
páskana. Það var alltaf yndislegt
að fá að dvelja hjá þeim. Heimili
þeirra einkenndist af hlýju og
gestrisni og þar var alltaf líf og
fjör. Gulli frændi var alltaf lífs-
glaður og kátur. Þegar ég var 15
ára naut ég þeirra forréttinda að
fá að búa hjá Gulla og Möddu
eitt sumar á Sigló og fékk þá
vinnu í frystihúsinu sem var
mikil og góð reynsla. Þetta sum-
ar var hitabylgja á Sigló, oft líf-
legt í bænum og margar minn-
ingar sem tengjast þessu fallega
og skemmtilega sumri. Þá var
gott að eiga Gulla frænda að
þetta sumar og vita að það var
hægt að koma til hans í eldhúsið
og eiga við hann spjall um lífið
og tilveruna á léttu nótunum.
Það er með þakklæti en sorg í
hjarta sem ég kveð Gulla frænda
enda viss þáttaskil í lífinu þegar
þau systkinin, Hjörtur, mamma
og Gulli, hafa öll kvatt okkur.
Þau eru öll komin heim. Á síð-
ustu árum, eftir að Gulli veiktist,
hefur það verið einstakt að fylgj-
ast með því hversu dugleg
frændsystkini mín hafa verið að
hugsa um foreldra sína á Siglu-
firði. Það er óendanlega mikils
virði að sinna nánasta fólkinu
sínu eins vel og þau hafa gert.
Ég bið góðan Guð að blessa
Möddu, Guðnýju, Guðrúnu,
Kalla og Guðbjörgu og fjölskyld-
una, hugga og styrkja ykkur öll í
sorginni og varðveita allar góðar
minningar sem þið eigið um ykk-
ar elskulega eiginmann, pabba,
tengdapabba og afa.
Nú lyftir hann hendinni, signir sig,
svo á hann erindi, Guð, við þig,
ég veit það, því varirnar bærast.
Hann flýtir sér ekkert, hann er hjá þér,
nú er hann að biðja fyrir sér
og öllu sem er honum kærast.
Svo þegar kemur hann aftur inn
hve endurnærður er svipurinn
og kveðjan hans þá er þessi:
Guð gefi þér nú góðan dag
og gæti að okkar ævihag
og húsið og bæinn hann blessi.
(Oddný Kristjánsdóttir)
Með hjartans kveðju,
Herdís Gunnarsdóttir.
Mig langar að minnast Gulla
Kalla í nokkrum orðum, hver
þekkir ekki Gulla Kalla á Siglu-
firði? Ég held að allir þekki
hann. Ég var ekki gömul þegar
ég fór að gefa Gulla afmælisgjaf-
ir og var sú gjöf eins ár eftir ár;
jú, svartir sokkar vel pakkaðir
inn í jólapappír! Það er svo
margs að minnast en helstu
minningar eru þegar ég fékk að
fara með Gulla í jeppanum Kalla
og voru þau ófá skiptin sem Gulli
greip mann upp í á leið heim úr
skólanum. Fannst manni það
heiður að fá að sitja í hjá honum
og alltaf var þessi góða setning
sem hann sagði við mig: „Hv ett
bosja bosja gamla geit,“ og alla
tíð þegar við hittumst kom þessi
setning hjá honum. Gulli kom oft
í heimsókn til okkar þegar við
bjuggum á Siglufirði. Eitt skipt-
ið var Gulli einn heima og bauð
mamma honum í sunnudagsmat.
Gulli spurði hvað yrði í matinn,
mamma sagði að það væri snit-
sel, sem var uppáhaldsmatur
hans. Gulli mætir í matinn og
segir þegar hann er búinn að
háma í sig snitselið að hann hafi
nú aldrei fengið svona gott
lambasnitsel. Það var ekki fyrr
en löngu seinna að mamma sagði
honum að þetta hefði ekki verið
lambasnitsel heldur hrefnusnit-
sel en Gulli borðaði ekki hrefnu-
kjöt. Gulli var gull af manni og
gleymi ég ekki, þegar pabbi
minn slasaðist alvarlega, að dag-
lega hringdi Gulli í móður mína
til að „testa“ sambandið hjá
skautadrottningunni eins og
hann kallaði hana. Ég er viss um
að það var mesti og besti stuðn-
ingur sem móðir mín fékk á
þessum tíma. Alltaf var Gulli
hress og var hann alltaf tilbúinn
að hressa mömmu mín og veit ég
að hún mun alltaf vera honum
þakklát fyrir þessi símtöl. Elsku
Gulli, ég ætla að kveðja þig með
þessum orðum: „Hv etta bosja
bosja.“
Helga Sigríður.
Guðlaugur Helgi
Karlsson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRA G. MAGNÚSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilnu Ísafold
þriðjudaginn 14. október.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 24. október kl. 13.00.
Magnús Emilsson, Sigrún Árnadóttir,
Haukur Emilsson,
Emil Þór Emilsson, Elín Einarsdóttir
og barnabörn.