Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 47
Kristinn og rifjar upp að Þórhildur
hafi fyrr á árum leikstýrt sér í a.m.k.
sjö óperuuppfærslum hérlendis.
„En það er ekki síður gaman að
kynnast öllu þessu unga fólki og
heyra hversu miklir gæðasöngvarar
eru þar á ferð. Erlendis eru menn
steinhissa á því að við Íslendingar
eigum svo marga flinka söngvara að
hægt sé að manna sýningu á borð við
þessa án erlendra gestasöngvara.“
Eitt flottasta óperuverk Verdis
Óperan Don Carlo hefur aldrei áð-
ur verið sviðsett hér á landi, en hún er
meðal þekktustu og umfangsmestu
verka Verdis og koma hátt í 200
manns að uppfærslu Íslensku óp-
erunnar nú. „Það er ekkert auðvelt að
manna þessa sýningu. Það þarf mjög
góða söngvara í öll aðalhlutverkin,“
segir Kristinn þegar hann er spurður
hvernig skýra megi það að óperan
hafi aldrei ratað á svið hérlendis áður.
„Þetta er eitt af flottustu óperuverk-
unum sem Verdi samdi. Tónmálið í
þessari óperu er litríkara og fjöl-
skrúðugra en í fyrri óperum tón-
skáldsins og þar koma líka fyrir hlutir
sem við heyrum í seinni óperunum,
eins og t.d. í Aídu.“
Mörg ár eru síðan Kristinn kynnt-
ist Don Carlo fyrst, en á níunda ára-
tug seinustu aldar söng hann hlut-
verk Rodrigos í konsertuppfærslu á
vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
„Þegar ég á sínum tíma fór utan og
réð mig til óperunnar í Wiesbaden
var hlutverk Rodrigos eitt af fyrstu
hlutverkum mínum,“ segir Kristinn
og rifjar upp að hann hafi sungið Ro-
drigo hjá Wiesbaden í tvö ár. „Ætli ég
hafi ekki sungið í Don Carlo í átta
mismunandi uppfærslum á ferlinum
og brugðið mér í þrjú ólík hlutverk,“
segir Kristinn, sem auk þess að
syngja hlutverk Rodrigos og Filipp-
usar hefur túlkað yfirdómara rann-
sóknarréttarins.
„Ég held upp á öll þessi hlutverk,
enda eru þau hver á sinn hátt alveg
frábær. En því er ekki að leyna að
Filippus stendur mér nærri núna.
Þetta er spennandi hlutverk, enda er
Filippus flókinn karakter. Í þessu
hlutverki þarf maður að miðla öllum
mannlegum tilfinningum – nema
gleði. Þarna bregður fyrir hörku, bit-
urleika, einmanaleika, sorg og jafnvel
sturlun á köflum,“ segir Kristinn og
viðurkennir fúslega að Filippus sé
eitt af draumahlutverkunum fyrir
bassa, enda sniðið sérlega vel að
röddinni.
Filippus í miðju átakanna
Óperan er byggð á samnefndu leik-
riti þýska leikskáldsins Friedrich
Schiller og er sagan sjálf að mörgu
leyti skálduð en persónur hennar
voru uppi á sínum tíma. Verkið gerist
á 16. öld og hefst þar sem konungar
Frakklands og Spánar hafa samið
frið. Einn liður friðarsamninganna
felur í sér að Don Carlo, sonur Filipp-
usar II Spánarkonungs, eigi að kvæn-
ast Elisabettu de Valois Frakklands-
prinsessu. Við fyrstu kynni verða þau
ástfangin, en skyndilega ákveður Fil-
ippus að ganga sjálfur að eiga prins-
essuna. Í sorg sinni ákveður Carlo,
fyrir tilstilli Rodrigos vinar síns, að
gerast málsvari kúgaðrar alþýðu í
Niðurlöndum sem berst gegn Spán-
verjum. Rodrigo gerist í framhaldinu
trúnaðarvinur Filippusar. Frilla kon-
ungs, Eboli prinsessa, játar Carlo ást
sína en þegar hann hafnar henni
hefnir hún sín á Carlo og Elisabettu.
Rodrigo áttar sig á hættunni sem
Carlo er í og fórnar sér fyrir vin sinn,
en er skotinn af rannsóknarréttinum.
Þegar Elisabetta sendir Eboli í út-
legð ákveður sú síðarnefnda að
bjarga Carlo og hann undirbýr flótta
sinn. Verkinu lýkur síðan á uppgjöri
við grafreit Karls V, föðurafa Carlos.
„Það eru margir hlutir að gerast
samtímis í verkinu og kóngurinn er
alls staðar í miðju átakanna. Átök
feðganna um Elisabettu leiða til póli-
tískra átaka þar sem Carlo gerir upp-
reisn gegn föður sínum. Loks birtast
átök í samskiptum Filippusar við yf-
irdómara rannsóknarréttarins, þar
sem kóngurinn þarf að lúta í lægra
haldi þegar yfirdómarinn heimtar að
Rodrigo verði brenndur á báli fyrir
villutrú sína,“ segir Kristinn og tekur
fram að athyglisvert sé að bera sam-
an þau ódæðisverk sem framin séu í
nafni ofsatrúar hvort heldur er fyrr á
öldum eða í samtímanum.
Var valdamesti maður heims
Spurður hvort það hafi áhrif á
nálgun sína á hlutverkið að vita að
hann sé að túlka sannsögulega per-
sónu svarar Kristinn því játandi.
„Það dýpkar mína sýn á Filippusi að
vita hvað hann var gífurlega valda-
mikill, því hann var á sínum tíma einn
valdamesti maður heims og réð yfir
hálfum heiminum. Þannig blikna allir
núverandi valdhafar heims í sam-
anburðinum. Í því ljósi verður ein-
semd hans og sjálfsmeðaumkun, þeg-
ar hann grunar drottningu sína um
framhjáhald, miklu sárari og dýpri,“
segir Kristinn og bætir við: „En auð-
vitað verður maður eftir sem áður að
leyfa leikriti Schillers og tónlist Ver-
dis að njóta sín á sínum listrænu for-
sendum, því þeir bregða meðvitað út
frá raunveruleikanum,“ segir Krist-
inn og tekur fram að hann fái alltaf
betri sýn á hlutverk Filippusar því
oftar sem hann syngur það. „Um
þetta hlutverk gildir, líkt og um alla
aðra þá hluti sem vel eru gerðir, að
þeim mun betur sem maður kynnist
því þeim mun meira dýpkar sýn
manns á það.“
Þess má að lokum geta að alls hafa
verið skipulagðar þrjár sýningar á
Don Carlo auk frumsýningarinnar í
kvöld. Næstu sýningar verða laug-
ardagana 25. október, 1. nóvember og
8. nóvember. Allar nánari upplýs-
ingar um uppfærsluna eru á opera.is
og harpa.is.
Örvænting Oddur Arnþór Jónsson og Kristinn sem Rodrigo og Filippus.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Auðnuspor með þér er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í
kvöld kl. 20 í Salnum. Á þeim
flytja leikararnir Kristjana Skúla-
dóttir og Þór Breiðfjörð og pí-
anóleikarinn Aðalheiður Þor-
steinsdóttir dagskrá sem byggir á
íslenskri dægurtónlist, vöggu-
ljóðum og fleiru forvitnilegu sem
tengist sambandi barna og for-
eldra á einn eða annan hátt. Með-
al þeirra laga sem flutt verða eru
„Hvert örstutt spor“ og „Ókind-
arkvæði“.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir,
Karlotta Blöndal og Ólöf
Helga Helgadóttir opna
sýninguna Þras(t)astaðir I
í Mjólkurbúðinni á Ak-
ureyri í dag kl. 14. Hug-
myndina að sýningunni
fengu þær fyrir ári eftir
að hafa hist og skoðað
verk hver annarrar þar
sem þær sáu sameig-
inlegan þráð í gegnum
ákveðið efni, sem er papp-
ír, eins og segir í tilkynn-
ingu. Í texta eftir Hjálmar
Stefán Brynjólfsson sem
fylgir með tilkynningunni og teng-
ist sýningunni segir m.a: „Papp-
írinn er persónuleiki. Hann er við-
kvæmur, sveigjanlegur, sterkur,
veikur. Hann er hversdagslegur og
minnir mig þess vegna á einhvern
hátt á önnur hversdagsleg fyr-
irbæri sem maður tekur sem sjálf-
sögðum hlutum: mjólk, rennandi
vatn, steinar, brauð.“ Sýningin er
opin kl. 14-17 og stendur aðeins yfir
þessa einu helgi.
„Pappírinn er persónuleiki“
Sýnendur Ólöf, Jóna og Karlotta.
Þór, Kristjana og
Aðalheiður í Salnum
Söngfuglar Þór Breiðfjörð og
Kristjana Skúladóttir.
J.J. Feild og Leo Sankovic setja einn-
ig svip á myndina ásamt bardaga-
hetjunni Jóni Viðari sem virkar þó
fremur sem hvati á atburðarásina en
eiginleg persóna.
Söguþráðurinn byggist á starfsemi
íslensku lögreglunnar og myrku hyl-
dýpi undirheimanna en við hann er
spunnið frjálslega svo er úr verður
glettinn leikur með mörk veruleika
og skáldskapar. Atburðarásin er þétt
með slungnum svikamylluflækjum
þar sem frumskógarlögmálið um að
eins manns dauði sé annars brauð
virðist allsráðandi. Frásögnin er línu-
leg en þó er stokkið örlítið til í tíma
og rúmi svo áhorfendur fá að skyggn-
ast inn í atburði sem gerast samtímis
í ólíkum rýmum og þeir vita því tölu-
vert meira um yfirvofandi hættur en
persónur myndarinnar hver um sig.
Myndin nýtir miðilinn í botn með
framúrsakarandi tæknivinnslu. Skot-
in eru stutt og mikið um að vera í
hverri senu. Klippt er frá mjög víðri
römmun og stórbrotnum krana-
skotum yfir í ýktar nærmyndir af ör-
væntingu í andlitsdráttum aðalhetja.
Það skerpir á spennunni ásamt
blágrágrænni og kaldri áru mynd-
arinnar í heild. Tæknibrellur og bar-
dagaatriði eru einnig vel útfærð og í
góðu jafnvægi við söguþráð svo
áhorfandinn gleymir sér og situr
spenntur út í gegn. Ekkert er skafið
af hörku og óvægnu ofbeldi en mesti
miskinn er iðulega utan ramma og
það hnykkir á óhugnaðinum án þess
að ofbjóða og slæva áhorfendur. Aug-
ljóst er að samheldinn hópur stendur
að myndinni og mikill metnaður hef-
ur verið lagður í hana með forsjálni í
skipulagningu og nákvæmni í eft-
irvinnslu svo útkoman er nánast
skotheld.
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 18/10 kl. 13:00 15.k. Fös 7/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k.
Lau 18/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 6/12 kl. 13:00 27.k.
Sun 19/10 kl. 13:00 16.k. Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00 28.k.
Sun 19/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 9/11 kl. 13:00 21.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k.
Lau 25/10 kl. 13:00 17.k. Sun 9/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k.
Lau 25/10 kl. 16:30 18.k. Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas.
Sun 26/10 kl. 13:00 19.k. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k.
Sun 26/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Fös 26/12 kl. 13:00
Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Fös 26/12 kl. 16:00
Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k.
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Sun 19/10 kl. 20:00 7.k. Þri 11/11 kl. 20:00
Sun 9/11 kl. 20:30 8.k. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Gullna hliðið (Stóra sviðið)
Fös 24/10 kl. 20:00 10.k.
Vinsæl verðlaunasýning frá Leikfélagi Akureyrar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Mið 22/10 kl. 20:00 aukas. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k.
Fim 23/10 kl. 20:00 11.k. Sun 2/11 kl. 20:00 Aukas. Sun 16/11 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00 12.k. Mið 5/11 kl. 20:00 Aukas. Fim 20/11 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00 13.k. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k. Fös 21/11 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00 14.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k. Lau 22/11 kl. 20:00
Mið 29/10 kl. 20:00 Aukas. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k. Sun 23/11 kl. 20:00
Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Lau 29/11 kl. 20:00
Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k.
Sýningar í Hofi Akureyri 17. október kl. 19 22
Gaukar (Nýja sviðið)
Lau 18/10 kl. 20:00 8.k. Lau 1/11 kl. 20:00 12.k. Fim 20/11 kl. 20:00
Fim 23/10 kl. 20:00 9.k. Fim 6/11 kl. 20:00 Lau 29/11 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00 10.k. Sun 9/11 kl. 20:00 13.k. Sun 30/11 kl. 20:00
Fös 31/10 kl. 20:00 11.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Lau 25/10 kl. 20:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Sun 19/10 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Lau 18/10 kl. 14:00 Sun 26/10 kl. 13:00 Lau 8/11 kl. 14:00
Sun 19/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Strengir (8 ólík rými Tjarnarbíós)
Fim 23/10 kl. 19:00 Fös 31/10 kl. 19:00
Fös 24/10 kl. 19:00 Lau 1/11 kl. 19:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 19/10 kl. 13:00 20.sýn Sun 26/10 kl. 16:30 23.sýn Sun 9/11 kl. 13:00 26.sýn
Sun 19/10 kl. 16:30 21.sýn Sun 2/11 kl. 13:00 24.sýn Sun 9/11 kl. 16:30 27.sýn
Sun 26/10 kl. 13:00 22.sýn Sun 2/11 kl. 16:30 25.sýn
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
Konan við 1000° (Kassinn)
Fös 17/10 kl. 19:30 12.sýn Fim 30/10 kl. 19:30 18.sýn Fös 14/11 kl. 19:30 27.sýn
Lau 18/10 kl. 19:30 13.sýn Fös 31/10 kl. 19:30 19.sýn Lau 15/11 kl. 19:30 28.sýn
Mið 22/10 kl. 19:30 Aukas. Lau 1/11 kl. 19:30 20.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 Aukas.
Fim 23/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 6/11 kl. 19:30 23.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 Aukas.
Fös 24/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 7/11 kl. 19:30 24.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 30.sýn
Lau 25/10 kl. 19:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 19:30 25.sýn Fös 28/11 kl. 19:30 31.sýn
Mið 29/10 kl. 19:30 Aukas. Fim 13/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 33.sýn
Mögnuð skáldsaga Hallgríms Helgasonar í sviðsetningu Unu Þorleifsdóttur.
Karitas (Stóra sviðið)
Fös 17/10 kl. 19:30 Frums Lau 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fim 20/11 kl. 19:30 14.sýn
Lau 18/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 21/11 kl. 19:30 15.sýn
Fim 23/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 22/11 kl. 19:30 16.sýn
Fös 24/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 8/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 27/11 kl. 19:30 17.sýn
Lau 25/10 kl. 19:30 Aukas. Fim 13/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 28/11 kl. 19:30 18.sýn
Fim 30/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 14/11 kl. 19:30 12.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 19.sýn
Fös 31/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 15/11 kl. 19:30 13.sýn
Seiðandi verk eftir Kirstínu Marju Baldursdóttur.
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Mið 19/11 kl. 19:30 Aukas.
Aðeins ein aukasýning í nóvember.
Umbreyting (Kúlan)
Sun 19/10 kl. 14:00 Sun 26/10 kl. 14:00
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 26/10 kl. 20:00 Frums Sun 2/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 16/11 kl. 20:00 5.sýn
Lau 1/11 kl. 17:00 2.sýn Lau 15/11 kl. 17:00 4.sýn
Sápuópera um hundadagakonung