Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
Nýlistasafnið verður opnað í dag,
laugardag, klukkan 16 í nýju hús-
næði að Völvufelli 13-21, Breiðholti,
eftir að safnið flutti úr miðbænum
síðasta sumar. Tveir salir verða í
notkun, verkefnarými og safneign.
Einkasýning Rebeccu Erin Mor-
an, Labortory Aim Density-
FOREVER! Just ended, verður
fyrsta sýningin í nýuppgerðu verk-
efnarýminu þar sem tilraunastarf-
semi listakonunnar fer fram. Sýn-
ingin er endapunktur á röð gjörninga
undir yfirskriftinni Laboratory Aim
Density sem listakonan flutti fyrr í
sumar í Hollandi og Þýskalandi.
Moran vinnur með tilraunakennda
kvikmyndagerð á 16 mm filmu og
leggur mikið upp úr kvikmyndaferl-
inu sjálfu. Þannig mun hún taka upp
á kvikmyndatökuvél, framkalla film-
urnar á staðnum, klippa þær og
mála, og vinna áfram með þær. Má
því segja að sýningin sé eins konar
súrrealísk rannsókn á kvikmynda-
gerð sem miðli og á efni og ferli kvik-
myndagerðar.
Verkefnarýmið nýtt hjá safninu
Þorgerður Ólafsdóttir er sýninga-
stjóri og formaður Nýlistasafnsins
og segir hún verkefnarýmið vera
annars konar en þau rými sem safnið
hefur verið með hingað til. „Hug-
myndin er sú að rýmið sé hrár vett-
vangur þar sem listamönnum býðst
að vinna og framkvæma stærri og til-
raunakenndari verk,“ segir Þorgerð-
ur. Starfsfólk safnsins hóf undirbún-
ing á nýja húsnæðinu fyrir um það bil
mánuði og lagði upp með að leyfa
rýminu að njóta sín eins og það er.
Veggirnir voru þó málaðir og gólfið
steypt þar sem flísar vantaði að sögn
Þorgerðar.
Á neðri hæð safnsins er safneignin
ásamt skrifstofum. Þorgerður segir
safneignina lifandi rými og býður
stjórn safnsins þar upp á rannsókn-
araðstöðu fyrir nemendur úr safna-
fræði, lisfræði og úr Listaháskóla Ís-
lands. „Þarna geta nemendur komið
og unnið með heimildasöfnun okkar
og safneign,“ segir Þorgerður en Ný-
listasafnið heldur utan um tvö heim-
ildasöfn, eitt um listamannarekin
rými og annað um gjörninga.
Tilraunakenndari sýningar
Nýlistasafnið heldur úti sérstöku
sýningarými fyrir safneignina og
verður þar opnuð sýning undir yfir-
skriftinni Blind stefna, sem unnin var
í samstarfi við myndlistarkonuna
Önnu Ihle. Sýningin nær yfir valin
verk sem eiga það sameiginlegt að
hverfast um frásagnarformið. Eitt af
hlutverkum þessa rýmis er að bjóða
upp á og leita eftir samstarfi við
fræðimenn, sýningastjóra og lista-
menn, auk þess að vera gluggi að
safneign og sögu safnsins. Safneign-
arsýningar hafa verið fastur liður í
sýningastefnu Nýlistasafnsins og
hefur safnið nú í fyrsta sinn eignast
rými í nýju heimkynnum sínum til-
einkað safneign sinni.
Framundan eru tilraunakenndar
sýningar hjá Nýlistasafninu og er
möguleiki á að safnið gangi enn
lengra í hlutverki og stefnu sinni um
að vera vettvangur og miðstöð nýrra
strauma og tilrauna í myndlist. Í
framhaldi af sýningu Moran koma
fjórir ungir listamenn til með að sýna
fyrstu einkasýningar sínar í sam-
vinnu við safnið.
Morgunblaðið/Golli
Myndlist Eva Ísleifsdóttir, Kolbrún Ýr Einarsdóttir og Þorgerður Ólafs-
dóttir, formaður og sýningastjóri Nýlistasafnsins, í nýju húsnæði.
Miðstöð nýrra
strauma og stefna
Nýlistasafnið opnað í nýju húsnæði
Kunstschlager tekur á móti fimm
listamönnum frá Galleria Huuto í
Helsinki sem munu sýna afrakstur
samstarfs þar sem fengist er við
hugmyndir um breytingar, skamm-
lífi, skynjanir, gloppur og tíma.
Sýningin verður opnuð í dag kl. 18
og stendur til 1. nóvember. Lista-
mennirnir sem sýna eru Annu Wile-
nius, Charlotta Östlund, Marja Vita-
huhta, Marjo Levlin og Pasi Autio.
Sýningin er hluti af verkefni þriggja
listamannarekinna rýma á Norð-
urlöndum en auk Kunstschlager og
Galleria Huuto er sænska galleríið
Studio 44 hluti af því.
Gestasýning Fimm listamenn frá Finn-
landi sýna í Kunstschlager.
Listamenn frá
Galleria Huuto
Hljómsveitin Vio leikur á Dillon í
kvöld kl. 23, en húsið verður opnað
kl. 22. Sveitin var stofnuð í mars á
þessu ári og er sigurvegari Músík-
tilrauna þetta árið. „Hljómsveitin
hefur nýlokið upptökum á fyrstu
plötu sinni sem kemur út í vetur og
hefur lagið þeirra You lost it setið á
topplistum útvarpsstöðvanna síð-
ustu vikur,“ segir m.a. í tilkynningu
frá tónleikahöldurum.
Meðlimir Vio eru Magnús Thorla-
cius, Páll Cecil Sævarsson, Kári
Guðmundsson og Yngvi Rafn Garð-
arsson Holm. Aðgangseyrir á tón-
leika kvöldsins er 500 krónur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sigur Vio á Músíktilraununum 2014.
Sveitin Vio leikur
á Dillon í kvöld
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Eftirsóttur lögfræðingur, þekktur fyrir að verja hvítflibba-
glæpamenn, snýr aftur til heimabæjarins til að vera við-
staddur útför móður sinnar. Dvölin verður lengri en til stóð því
að faðir hans er ákærður fyrir manndráp. Bönnuð innan 7 ára.
IMDB 7,8/10
Metacritic 48/100
Sambíóin Álfabakka 13.30, 16.30,
17.40, 19.30, 20.40, 22.20, 22.30
Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.00, 20.00,
22.00
Sambíóin Kringlunni 21.15, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
The Judge
Mbl. bbbbn
Metacritic 79/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 16.45, 20.00,
22.10 LÚX, 22.30
Háskólabíó 17.45, 21.00
Laugarásbíó 22.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Gone Girl 16Sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Borgríkieftir Ólaf de Fleur Jóhannesson. Lögreglu-
maðurinn Hannes ræðst gegn glæpasamtökum
og spilltum yfirmanni fíkniefnadeildar.
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10
Smárabíó 13.00 LÚX, 15.30 LÚX, 17.45 LÚX, 17.45, 20.00,
20.00 LÚX, 22.10
Háskólabíó 17.50, 20.00, 22.10
Laugarásbíó 18.00, 20.00, 22.10
Borgarbíó Akureyri 16.00, 18.00, 20.00, 22.00
Borgríki 2 16
Dracula Untold 16
Þegar Vlad Tepes kemst að
því að kraftur hans og hug-
rekki nægir ekki til að vernda
fjölskyldu hans fyrir grimm-
um óvinum ákveður hann að
leita á forboðnar slóðir eftir
styrk sem dugar.
IMDB 7,1/10
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Smárabíó 22.45
Laugarásbíó 20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 18.00
Annabelle 16
John Form hefur fundið full-
komna gjöf handa ófrískri
eiginkonu sinni, Miu –
fallega og sjaldgæfa gamla
dúkku í fallegum hvítum
brúðarkjól. En gleði Miu
vegna Annabelle endist ekki
lengi.
IMDB 6,6/10
Sambíóin Akureyri 22.50
Sambíóin Keflavík 22.50
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.20
Sambíóin Kringlunni 22.40
Alexander and
the Terrible,
Horrible, No Good,
Very Bad Day IMDB 4,7/10
Rotten Tomatoes 59/100
Sambíóin Álfabakka 13.30,
16.10, 18.00
Sambíóin Egilshöll 14.00,
16.00, 18.00, 20.00
Sambíóin Akureyri 15.50,
18.00
Sambíóin Keflavík 14.00,
16.00
The Equalizer 12
Fyrrverandi leynilögreglu-
maður sviðsetur andlát sitt
til að lifa rólegu lífi í Boston.
Þegar hann hittir stúlku sem
er undir hælnum á ill-
skeyttum rússneskum
glæpamönnum verður hann
að koma henni til bjargar.
IMDB 7,9/10
Metacritic 48/100
Smárabíó 20.00
Háskólabíó 22.15
A Walk Among the
Tombstones 16
Matthew Scudder er fyrrver-
andi lögga og einkaspæjari.
Tilveran er býsna róleg þar
til eiturlyfjasali ræður hann
til að komast að því hverjir
myrtu eiginkonu hans.
Mbl. bbbnn
Metacritic 51/100
IMDB 7,4/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00
Boyhood Nýjasta verk leikstjórans
Richards Linklater lýsir upp-
vexti drengs, en myndin er
tekin á 12 ára tímabili.
Metacritic 100/100
IMDB 8,7/10
Háskólabíó 21.00
Afinn Eftirlaunaaldurinn blasir við
Guðjóni á sama tíma og
erfiðleikar koma upp í hjóna-
bandinu og við undirbúning
brúðkaups dóttur hans.
Mbl. bbbmn
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.20, 17.40, 20.00
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00
The Hundred-Foot
Journey Indversk fjölskylda opnar
veitingastað í Suður-
Frakklandi en keppinautarnir
eru lítt hrifnir. Bönnuð innan
7 ára.
Metacritic 55/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 14.50,
17.25, 20.00
The Maze Runner 12
Metacritic 58/100
IMDB 7,9/10
Smárabíó 17.30, 20.00
Brúðkaup Fígarós
(Mozart)
Sambíóin Kringlunni 16.55
If I Stay 12
Metacritic 47/100
IMDB 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
París norðursins Mbl. bbbnn
IMDB 7,4/10
Háskólabíó 15.30, 17.45,
20.00
Kassatröllin
IMDB 7,2/10
Metacritic 63/100
Sambíóin Álfabakka 13.20
3D ísl., 14.00 ísl., 15.30 3D
ísl., 15.30 ísl., 17.50 ísl.,
20.00, 22.10
Sambíóin Keflavík 13.30 3D
ísl., 15.40 3D ísl., 17.50 3D
ísl.
Smárabíó 13.00 3D ísl.,
13.00 ísl., 15.15 3D ísl., 15.15
ísl., 17.30 ísl.
Háskólabíó 15.30 ísl., 15.30
3D ísl.
Laugarásbíó 13.45 3D ísl.,
13.45 ísl., 15.50 ísl., 17.50 ísl.
Borgarbíó Akureyri 14.00
ísl., 16.00 3D ísl.
Teenage Mutant
Ninja Turtles 10
Mbl. bbbnn
Metacritic 34/100
IMDB 6,4/10
Sambíóin Álfabakka 15.30
Smáheimar: Dalur
týndu mauranna Smárabíó 13.00, 15.15 ísl.
Háskólabíó 15.30 ísl.
Laugarásbíó 13.40, 15.40
Borgarbíó Akureyri 14.00
ísl.
Flugvélar:
Björgunarsveitin
(íslenska) Sambíóin Álfabakka 13.30
Sambíóin Egilshöll 13.40,
15.40
Sambíóin Akureyri 14.00
Að temja drekann
sinn 2 Smárabíó 13.00 ísl.
Töfrahúsið Með íslensku tali.
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.40,
15.40
Sambíóin Kringlunni 12.50
Sambíóin Akureyri 14.00,
16.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Vonarstræti 14
Mbl. bbbbm
IMDB 8,1/10
Háskólabíó 18.00
Believe
Bíó Paradís 16.00
Andri og Edda verða
bestu vinir
Bíó Paradís 16.00
Antboy
Bíó Paradís 16.00
Hross í oss 12
Bíó Paradís 18.00
Frankenstein
Bíó Paradís 21.00
Turist 12
Bíó Paradís 17.45, 20.00,
22.15
The Tribe 16
Bíó Paradís 18.00, 20.00,
22.30
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is