Málfríður - 15.03.2013, Qupperneq 22
Námskeið Hjálmars Sveinssonar
í EHÍ um heimsborgina Berlín
Það var fullsetin kennslustofan hjá EHÍ á námskeið-
inu „Berlín, hin nýja miðja Evrópu“ sem haldið var
af Hjálmari Sveinssyni, útgefanda og varaborgarfull-
trúa. Hjálmar gjörþekkir Berlín eftir að hafa búið þar
í rúman áratug við nám og störf. Hann hefur haldið
ýmis námskeið um Þýskaland og margsinnis fjallað
um efnið í fjölmiðlum.
Námskeiðið, sem var samtals fjórar klukkustundir,
var mjög vel heppnað og innihaldsríkt. Farið var um
víðan völl í sögunni allt frá Prússlandi og þrjátíu ára
stríðinu í Þýskalandi til beggja heimsstyrjaldanna og
kalda stríðsins. Það sem var kannski áhrifamest voru
lýsingar á því hvernig sagan hefur mótað borgina og
hvernig Berlín varð eins og hún er í dag, frjálslynd,
umburðarlynd og litrík heimsborg.
Það var sérstaklega áhugavert að hlusta á hvernig
borgin hefur þróast eftir fall múrsins til dagsins í dag,
og lýsti Hjálmar mjög vel því fjölbreytta menningar-
og mannlífi sem núna einkennir Berlín hvað helst. Til
stuðnings við fyrirlestrana var fjölbreyttum myndum
og stuttum myndbrotum varpað upp. Ásamt því að
lýsa borginni sérlega vel á hinum ýmsu tímabilum
sögunnar sýndi hann einnig landfræðilega legu
hennar á mismunandi kortum sem og uppbyggingu
þeirra stórkostlegu mannvirkja sem borgin hefur að
geyma.
Að vissu leyti gaf námskeiðið nýjan vinkil á stór-
borgina og augljóst var að það vakti mikla forvitni
þeirra sem enn höfðu ekki fengið tækifæri til þess að
sækja borgina heim. Einnig var athyglisvert að heyra
hvernig Berlín er í raun orðin hin nýja miðja Evrópu,
bæði menningar- og stjórnmálalega. Sá efnahagslegi
uppgangur sem hefur verið í Þýskalandi á undan-
förnum áratugum gefur góða mynd af því hvernig
Þjóðverjar hafa með mikilli fyrirhyggju og ögun náð
einstökum árangri í fjármálum og er í raun fordæmis-
gefandi fyrir aðrar þjóðir. Þessu til rökstuðnings nefndi
Hjálmar styrkleika lítilla og millistórra fyrirtækja í
verkfræði- og tæknigreinum sem ráða yfir 70–80% af
heimsmarkaðnum í sínum geira. En jafnframt tók hann
dæmi um risana í fyrirtækjarekstrinum í Þýskalandi,
t.d. Volkswagen og Siemens.
Þátttakendur námskeiðsins fengu margar góðar til-
lögur um hvaða afþreyingu væri ákjósanlegt að sækja
í Berlín. Eins komu fram alls kyns uppástungur um
áhugaverðar bækur, kvikmyndir og byggingar sem
vert væri að skoða, bæði um það sem er helst á döfinni
í Berlín og einnig sígildar hugmyndir sem alltaf eiga
við.
Að lokum má nefna umfjöllun Hjálmars um hvaða
framtíðarsýn ræður ríkjum fyrir Berlín í dag, en það er
stöðug þróun í arkítektúr borgarinnar. Lýsti hann upp-
byggingu á svæðinu við aðaljárnbrautarstöð Berlínar
eða Europacity sem og mjög merkilegum og mögnuð-
um arkítektúr sem mun taka um 15 ár að byggja upp
á 40 hekturum. Eins nefndi hann gamla Tempelhof-
flugvöllinn sem verið er að breyta í risastóran almenn-
ingsgarð af svipuðum mælikvarða og Central Park í
Bandaríkjunum.
Það hefur sýnt sig að Berlín á fullt erindi til Íslendinga
og framhaldsskólanemendur í þýsku eru þar hvergi
undanskildir. Námskeið af þessu tagi eru tilvalin fyrir
kennara í faginu til þess að kynna þessa frábæru borg
fyrir nemendum sínum, hvort sem um er að ræða sem
undirbúning fyrir nemendaferðir, markvisst efni sem
hvata til þýskunáms eða einfaldlega sem létta kynn-
ingu á borginni til viðbótar við annan fróðleik í grein-
inni.
22 MÁLFRÍÐUR
Kristjana Björg Sveinsdóttir,
þýskukennari við Menntaskólann
í Reykjavík
Berlín, hin nýja miðja Evrópu
Oderberger Straße .