Málfríður - 15.10.2014, Síða 30

Málfríður - 15.10.2014, Síða 30
Í Menntaskólanum á Akureyri voru nýlega gerðar umfangsmiklar breytingar á dönskukennslu. Danska var færð úr 1. bekk, og frá haustinu 2012 hefur hún verið kennd í tveimur 5 fein áföngum í 3. og 4. bekk. Samhliða þessari tilfærslu hefur farið fram ítarleg end- urskoðun á kennsluháttum í faginu. Danska í 3. og 4. bekk Aðdragandi breytinganna hófst fyrir nokkrum árum þegar unnið var að undirbúningi nýrrar skólanám- skrár fyrir MA, en þá kom í ljós að innan skólans væri óskað eftir allvíðtækum breytingum og einföldun á fyrirkomulagi náms í 1. bekk. Niðurstaðan varð meðal annars þróun stórra samþættra áfanga sem stundum hafa verið nefndir Íslandsáfangar. Stærð þeirra krafðist þess að eitthvað annað viki og fljótlega kom upp sú hugmynd að færa dönsku upp í 3. og 4. bekk. Hugmyndin um þessa tilfærslu kom ekki upp- haflega frá okkur dönskukennurum, en við vorum tilbúnar að láta á þetta reyna. Talið var að meiri þroski eldri nemenda og námsreynsla þeirra gæti að einhverju leyti vegið upp á móti þeirri gleymsku sem tveggja ára hlé frá dönskunámi hlyti óhjákvæmilega að valda. Jafnvel var stungið upp á því að svolítið hlé frá dönskunámi gæti eflt áhuga og veitt nemendum nýja sýn á námið þegar skemmra væri til námsloka. Við skynjuðum líka þörf fyrir breytingar því undan- farin ár hafði okkur fundist að sífellt breiðari nem- endahópur gerði okkur erfiðara um vik að mæta þörf- um allra og einnig að torveldara væri orðið að fanga athygli og áhuga nemenda í samkeppni við afþrey- ingarmiðla samtímans. Í huga okkar kennaranna var alveg ljóst að flutn- ingur dönskunnar krefðist nýrrar nálgunar og væri um leið gott tækifæri til að taka aðferðir og fyrir- komulag til rækilegrar endurskoðunar. Við vildum leita leiða til að auka virkni, frumkvæði og ábyrgð nemendanna, koma til móts við áhugasvið þeirra og nýta okkur kosti þess að vinna með eldri nemendum. Við höfðum líka áhuga á að efla námshæfni nemenda þannig að þeir yrðu færir um að stunda tungumála- nám á sjálfstæðan hátt. Síðast en ekki síst vildum við taka fullt mark á nýjum áherslum í Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011, þar sem kveðið er á um að grunnþættirnir sex skuli fléttast inn í allt nám og vera sýnilegir í skólastarfinu öllu. Til að nálgast þessi markmið reyndum við að veita nemendum meira sjálfræði í náminu. Símatsáfangar Dönskuáfangarnir eru nú símatsáfangar án loka- prófs og við nýtum ekki hefðbundnar kennslubækur. Í upphafi námsins nota nemendur sjálfsmatstöflu Evrópurammans til að meta dönskukunnáttu sína og staðsetja hana miðað við færniþætti Evrópurammans og hæfniviðmið námskrárinnar. Nemendur reyna síðan að setja sér markmið. Námið er skipulagt út frá þemum, en nemendur geta oftast sjálfir skilgreint innihaldið nánar, valið sér lesefni og ákveðið hvernig þeir skila af sér afrakstri námsins, til dæmis hvort þeir skila munnlega eða skriflega. Í sumum tilfellum mega nemendur líka velja hvort þeir vinna einir eða í litlum hópum. Til að hafa ramma utan um allt þetta val er nemendum gert að rökstyðja verkefnaval með tilvísun í markmið sín og meta síðan hvernig til tókst. Nemendur skila vikulegum vinnuskýrslum og/eða skýrslum um einstök verkefni og endurskoða sjálfs- matsskalana af og til. Hlutverk okkar kennaranna er nú fyrst og fremst að vera aðstoðarmenn og leiðbeinendur. Við skil- greinum vissulega ákveðna ramma fyrir nemendur og tryggjum til dæmis að þeir skili bæði munnlegum og skriflegum verkefnum og vinni bæði sjálfstætt og í hópum, en þar að auki reynum við að virða ákvarð- anir nemenda og hvetja þá til að sýna frumkvæði og skapandi hugsun. Í námsmati reynum við að taka mið af námsferlinu, ekki síður en afurðinni sem til verður, og nemendur fá yfirleitt tækifæri til að skila verk- efnum tvisvar. Í fyrra skiptið fá þeir leiðsagnarmat 30 MÁLFRÍÐUR Selma HauksdóttirHafdís Inga Haraldsdóttir Breytingar á dönskukennslu í Menntaskólanum á Akureyri Hafdís Inga Haraldsdóttir og Selma Hauksdóttir, dönskukennarar við Menntaskólann á Akureyri.

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.