Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 113. janúar 2000
fréttir
Fíkniefnium
hátíðirnar
Heyrst hefur að mikil neysla fíkni-
el'na hafi verið í bænum um hátíð-
irnar. Lögreglan hefur ekki farið
varhluta af þeim sögusögnum og
segir ekki hægt að líta framhjá
þeirri staðreynd að einhver hluti
þessara sögusagna sé réttur. Því
vill lögregla beina því til almenn-
ings, og þá sérstaklega foreldra og
fonáðamanna barna, sem eru í
áhættuhópi varðandi fíkniefna-
neyslu, að láta lögreglu vita ef þau
gruna börn sín um að vera í slíkri
neyslu. Ekki er endalaust hægt að
varpa allri ábyrgð á lögreglu eða
þjóðfélagið því saman verður að
vinna að því að uppræta þennan
ófögnuð. Hægt er að koma upplýs-
ingum beint til lögreglu eða eftir
öðmm leiðum. SjálfVirkur símsvari
er hjá ríkislögreglustjóra, svokallað
grænt númer og er það 800 5005.
Svipaðogsíðast
Alls vom 169 færslur í dagbók
lögreglu í sl. viku og eru þær heldur
færri en í vikunni á undan. Um
helgina vom 36 bókanir í dag-
bókina og er það nærri meðaltali.
Ein líkamsárás var kærð eftir
helgina og átti hún sér stað á einu
öldurhúsa bæjarins. Þar hafði orðið
ósætti milli tveggja gesta en ekki
var um alvarleg meiðsl að ræða.
Tveirgistu
fangageymslur
Töluverður erill var hjá lögreglu
aðfaranótt laugardags. Tveir menn
vom handteknir þar sem þeir höfðu
farið inn í íbúð við Heiðarveg.
Fengu þeir að gista fangageymslur
lögreglu og látnir svara lýrir gjörðir
sínar þegar af þeim rann víman. Þá
var jólasería skernmd við hús
Björgunarfélags Vestmannaeyja.
Þrírstútarum
helgina
Tveir ökumenn voru stöðvaðir
vegna gmns urn ölvun við akstur á
aðfaranótt laugardags og einn fyrir
sama athæfi daginn áður. Alls hafa
því fjórir ökumenn verið teknir
vegna gruns um ölvun við akstur
það sem af er árinu þó ekki séu enn
liðnar tvær vikur af því. Lögreglu-
mönnum fmnst slíkt athæfi miður
og vonar að ökumenn taki sér tak
og láti af þessum ósið enda um
stórhættulegan leik að ræða.
Vanrækslaáskoðun
Á nýju ári hefur lögregla gengið
hart el'tir því að óskoðuð ökutæki
séu ekki í umferð. í vikunni voru
átta ökumenn kærðir vegna van-
rækslu á því að færa bíla sína til
skoðunar. Þá var einn ökumaður
kærður fyrir akstur utan vega.
llilia byggjja blálkahús
Mikill áhugi virðist fyrir byggingu
svonefndra bjálkahúsa, í kjölfar
þess að Árni Johnsen byggði eitt
slíkt fyrir ofan hraun. A síðasta
fundi bygginganefndar lágu fyrir
þrjár umsóknir urn að byggja slík
hús á svæðinu syðst og vestast við
Hrauntún. Nefndin hafnaði þessum
erindum, þ.e.a.s. staðarvalinu, en
benti á skipulagðar lóðir við Stapa-
veg og Goðahraun.
Deildar meiningar
um Vatneyrardóminn
Nýuppkveðinn kvótadómur í
héraðsdómi Vestfjarða í svokölluðu
Vatneyrarmáli hefur vakið al-
menna athygli. Ef hæstiréttur stað-
festir hann er ljóst að kvótakerfið í
núverandi mynd er hrunið.
Forsætisráðherra sagði í sjónvarpi
að yrði sú niðurstaðan, gætum við
gleymt áframhaldandi sjálfstæðu
ríki og flutt til Kanaríeyja. En hvað
hafa aðilar í Vestmannaeyjum að
segja um þennan dóm?
Magnús Kristinsson útgerðarmaður
sagði um niðurstöðu héraðsdóms
Vestfjarða að ekkert nema glundroði
myndi fylgja ef allir gætu ýtt úr vör og
hafið óheftar veiðar. „Ef einn dómari
kemst að þessari niðurstöðu nú, þá
spyr ég bara hvað aðrir löglærðir
menn hafa verið að gera í þessi 15 ár
sem kvótakerfið hefur verið við lýði.
Eg sé ekki annað en að byggðarlög
eins og Vestmannaeyjar muni leggjast
af. Þorskkvóti yrði líklega búinn í
janúar, febrúar með tilheyrandi hruni
sjálfstæðis og efnahagskerfisins. Ef
ekki má úthlula kvóta á skip gefur
auga leið að kerfið er hrunið.“
Magnús segist ekki sjá að hægt sé að
gera neinar ráðstafanir til breytinga á
kvótalögunum til þess að koma til
móts við jafnræðisregluna. „Ef jafn-
ræðisreglan er ótvíræð verða ekki
gerðar neinar breytingar nema á
stjórnarskránni með þeim lögum og
reglum sem þarf að fara eftir í því efni.
Eg sé ekki að það muni verða,“ sagði
Magnús.
„Ég hef nú ekki velt mér neitt
sérstaklega upp úr því hverjar niður-
stöðumar yrðu ef þetta verður
veruleikinn," sagði Hörður Oskars-
son, fjármálastjóri hjá ísfélaginu. „En
það er Ijóst að með þessum dómi eru
uppi efasemdir um að löggjafinn sé á
réttri leið. Það er líka ljóst að miklar
breytingar verða á öllu ef þetta verður
staðfest og ég held að ég sé ekkert að
tjá mig um hvað því kynni að fylgja,
þetta á allt eftir að skýrast,“ sagði
Hörður.
„Þessi dómur kom mér ekkert á
óvart. Það hlaut að koma að því að
mælirinn fylltist," segir Elías Bjöms-
son, formaður sjómannafélagsins
Jötuns. „Vitleysan í kringum fisk-
veiðistjómunina hefur verið með
eindæmum og með ólíkindum hvað
þingmenn hafa látið stjómvöld bjóða
sér. Það er kominn tími til að þeir sem
fara með völdin í þessu landi fari að
hugsa af einhverri skynsemi. Síðan
kvótakerfinu var komið á hefur nánast
ekki verið hægt að koma að neinni
vitrænni hugsun hjá þeim. Þessi
dómur staðfestir bara það sem í
lögunum stendur að íslenska þjóðin
eigi auðlindina en ekki einhverjir sæ-
greifar.
Það er heldur nöturlegt en staðreynd
að forsætisráðherra landsins mun fá
þau eftirmæli að honum hafi tekist að
leggja landsbyggðina í rúst. Það hefur
honum vissulega tekist,“ sagði Elías.
Fréttir höfðu einnig samband við
nokkra starfandi sjómenn og vildu fá
sjónarmið þeirra fram. Enginn þeirra
treysti sér til að koma fram undir nafni
og vekur það óneitanlega upp ýmsar
spumingar, t.d. hvort menn þori ekki
að gefa upp skoðanir sínar af ótta við
að missa pláss. Eða hvort sjómenn
almennt hafi ekki áhuga á málinu eða
séu sáttir við núverandi ástand.
Samgönguráðherra um útboð Herjólfs:
Hagsmuna almennings verður gætt
Vegna viðtals í jólablaði Frétta við
Tryggva Jónsson fyrrum stjórnar-
mann í Herjólfi hf. um breytt
rekstrarfyrirkomulag Herjólfs
hefur borist athugasemd frá sam-
gönguráðherra.
„I samræmi við útboðsstefnu ríkis-
stjómarinnar hef ég látið hefja vinnu
við undirbúning þess að útboð fari
fram á rekstri Herjólfs sem taki gildi
frá næstu áramótum. Almennt mark-
mið með útboðinu verður að lækka
rekstrarkostnað og virða jafnræðis-
reglur stjómsýsluréttarins jafnframt
því sem reglum evrópska efnahags-
svæðisins yrði fullnægt. Tryggt verður
í útboðsskilmálum að þjónustan verði
ekki skert. Með útboði er því ekki gert
ráð fyrir að verð farmiða eða flutn-
ingsgjöld hækki.
I tilmælum ráðuneytisins til Vega-
gerðarinnar varðandi þetta útboð er
meira að segja mælst til þess að í
útboðsskilmálum verði byggð inn
hvatning sem verði til þess að rekstr-
araðili hafi alla möguleika á að bæta
þjónustuna enn frekar.
Samgönguráðuneytið mun ekki
segja sig frá ábyrgð á samgöngum til
Vestmannaeyja svo lengi sem ég hef
einhver áhrif. Ábyrgð ríkisins á
þessum rekstri er bundin í vegalögum
og engin breyting mun verða á því, þó
rekstarfyrirkomulaginu verði breytt.
Það em því engin áform uppi um að
draga úr þjónustu Herjólfs nema síður
sé og geta Vestmannaeyingar því
verið óttalausir þó að til útboðs komi,
enda tryggt að hagsmuna almennings
verður gætt á öllum stigum málsins,"
segir Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra.
23 sumar-
hús í Ofan-
leitislandi
Á síðasta ári sóttu tveir aðilar um
leyfi til byggingar sumarhúsa á
svæðinu frá Stapavegi að
Ofanleiti.
Kristján Óskarsson sótti um
leyfi svo og fyrirtækið Innex í
Eyjafirði. Á fundi skipulags- og
bygginganefndar í síðustu viku var
ákveðið að úthluta Kristjáni sjö
lóðum og Innex þrettán Ióðum.
Bærinn heldur eftir þremur lóðum
til úthlutunar annarra umsækj-
enda í framtíðinni. Ekki liggur
fyrir endanlegt skipulag svæðisins
en stefnt er að því að það verði
klárt þann 15. rnars nk.
Alvarlegt slys í óveðri
í óveðrinu, sem gekk yfir á mánudag, varð alvarlegt vinnuslys. Hurð á
gámi skelltist á höfuð manns sem var að störfum á Friðarhafnarbryggju.
Var áverkinn það alvarlegur að flytja varð manninn með sjúkraflugi til
Reykjavíkur. Hann var lagður inn á Sjúkrahús Reykjavíkur og gekkst þar
undir aðgerð. Sökum veðurs varð að fá aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar
til að ná í hinn slasaða.
Þrátt fyrir mikla veðurhæð á mánudag er ekki vitað um eignatjón af völdum
þess. En lögregla fékk nokkrar tilkynningar vegna lausra muna sem fuku um í
óveðrinu. Hafrót var á mánudaginn og var Breki uppi allan daginn og þegar
verst lét braut á milli Bjamareyjar og Elliðaeyjar eins og sést hér á myndinni.
fréttir
Viljaumræðurum
staðardagskrá21
Á fundi bæjarráðs sl. mánudag
lögðu fulltrúar minnihlutans fram
eftirfitrandi dllögu: „Á fundi skipu-
lagsnefndar 27. ágúst 1998 vai'
mælt með því að Vestmanna-
eyjabær taki þátt í verkefninu
staðardagskrá 21, sbr. samstarfs-
samning Sambands ísl. sveitar-
félaga og umhverfisráðuneytisins
frá 12. mars 1998. Jafnframt var
málinu vísað til umhverfis- og
heilbrigðisnefndar. Á fundi um-
hverfis- og heilbrigðisnefndar 25.
sept 1998 var samþykkt að mæla
með því að Vestmannaeyjabær
verði þátttakandi í verkefninu og
málinu vísað að öðm leyti til
bæjarráðs. Bæjarráð og bæjarstjóm
samþykktu þessar fundargerðir.
Þar sent verkefni þetta virðist hafa
sofnað í stjómkerfi bæjarins leggj-
um við til að það verði tekið til
umræðu á ný innan bæjarstjómar.“
Númábyggja nýjan
Baldurshaga
Þeir félagar Páll Zóphóníasson og
Sigurjón Pálsson hafa í nokkur ár
verið í biðstöðu með leyfi til að
byggja á svonefndri Baldurshaga-
lóð við Vesturveg. Fjallað var um
málið í skipulags- og bygginga-
nefnd 2. nóv. sl. og þar gefið grænt
ljós á byggingu með fyrírvara um
lausn á bílastæðamáli og lækkun á
risi hússins. Nú eru komnar nýjar
teikningar af húsinu auk þess sem
fyrir liggja niðurstöður úr grennd-
arkynningu sern náði til 18 aðila við
Vesturveg, Bámstíg og Vest-
mannabraut. Skipulags- og bygg-
inganefnd hefur nú endanlega sam-
þykkt bygginguna og skal húsið
vera uppsteypt og fullfrágengið að
utan áður en það verður tekið í
notkun. Þar með ætti þeint fé-
lögum Páli og Sigurjóni ekkert að
vera að vanbúnaði með að hefjast
handa.
SkilUðvestanmegin
I hitteðfyrra var byggingarvöru-
versluninni Húsey heimilað að setja
upp auglýsingaskilti á homi Garða-
vegar og Smandvegar, austan
megin. Nú er hins vegar búið að
koma þar fyrir einu af lista-
verkunum úr verkefninu Hraun og
menn og hefur umsækjandi óskað
eftir upplýsingUiTi um hvemig hann
skuli standa að uppsetningu
skildsins. Nú er fengin niðurstaða í
málinu og verður umrætt skilti sett
upp vestan megin gatnamótanna, á
lóð Glófaxa hf.
Valurhætluririðað
byggja
A síðasta ári sótti Valur Andersen
um lóðir til byggingar einbýlishúsa
við Illugagötu 64 og 66 og var sú
umsókn samþykkt í skipulags og
bygginganefnd. Á síðasta fundi
nefndarinnar lá hins vegar lýrir bréf
frá Val þar sem hann afsalar sér
þessum tveimur lóðum og er því
ljóst að ekki verður byggt þar alveg
á næstunni.
FRÉTTIR
Útgsfandi: Byjapst drf. tfetrraTBeidun. Rilstjári.: Cnar örðarsscn. Blaðamenn: Æstsæn & Siguiggir J&sn.
4uíttdr: OrlisS^Em. Ábyrgðarmenn: Ótar arfersam & Gíall \bltýs93i.
Ereatvinra: E/jcfrent dtf. tfesöíBrræyjLm. ASætur ritstjórrar: Steiiegi 47 H. htó. Srni: 481-3310. M^rririti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: ftEö±%þr.is. \feffarg: tttp/Asww.eyjar.is/~fiEt±ir.
FRÉTTIR kna út alla finnbxkp. Blaðið ar ælt í áátrift cg eimig í latsaáilu í Tmrinjti, Kletd, ^feitircpdálrLm EriÆninfri, Ttristínni, Ttppnm, Khií, töual, ttyjríifí
Flrþafrenatílininri-, Tcnpnm, aSkstólaim ítí&drifii. FRÉTTIR au pHtaðar í 2000 eirtöiin.
FRÉTTIR asaðilaraðSrintflimbejar-cglHB&fréttaticfe. EftírpHtm, hljóSritLn, rrtkn Ijráinfe cg arað a: <±EÍrnilt rsia bejitiilch æ getíð.