Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Side 15
Fimmtudagur 13. janúar 2000
Fréttir
15
liðnum. Samt er eins og það verði
meiri samvinna á öllum sviðum og
mér finnst skólamálin koma mjög
sterkt í gegn. Það er einhver skóli að
fara af stað, hvort það verður fjamám
eða eitthvað sem tengist tölvuveri og
þá á ég ekki bara við eitthvert há-
skólanám heldur eitthvað sem hefur
víðari skírskotun. Fjármagn í at-
vinnulífinu á eftir að aukast, en ekki
fyrr en seinni partinn á árinu. Það
kemur eitthvert nýtt fjármagn og öll
þessi öfund sem ég talaði um áðan er
út af auknu fjármagni sem kemur
hingað til Eyja til atvinnuuppbygg-
ingar og mun eiga sér stað í haust.
Það verður mikil tiltekt í atvinnumál-
unum, sem skilar sér í miklu farsælla
vinnuumhverfi og meiri samvinnu.
Þetta fer að skila sér með haustinu.
Það verður færra fólk og mikil
hreyfing á fólki, en samt er bjart yftr
atvinnulífinu, þegar þetta fjármagn
kemur og við getum farið að vinna við
að byggja upp. Á fyrri hluta ársins
verður hins vegar mikil deyfð og
svartsýni, en í maí og júní fer að birta
yfir.“
Menningin
Næst fær Bára Grímsdóttir sér sæti
gegnt Matthildi og dregur spil fyrir
hönd menningarlífsins. Matthildur
segir að skortur sé á víðsýni í menn-
ingarlífinu. „Við þurfum aðeins og
opna augun fyrir því að það sem
einum finnst vera menning finnst
öðrum kannski ekki. Það er víðara
svið en þær hugmyndir sem örfáir
einstaklingar hafa um menninguna.
Fólk verður aðeins að opna hugann.
Það koma einhvetjar fréttir sem valda
vonbrigðum, en til lengri tíma litið
skila þær góðu. Og aftur kemur hér
upp að fólk þarf að vera víðsýnna.
Innan menningargeirans, þarf meiri
samvinnu, ekki ólíkt því sem þarf í
fótboltanum. Það geta ekki allir verið
kóngar. Hlutimir ganga ekki nógu
vel. Hér sé ég eins og einhver sýning
komi erlendis frá, annað hvort erlendir
Iistamenn eða Islendingar sem búa
erlendis en það verður einhver seink-
un á því og þetta kemur upp fljótlega.
Samfara því verða einhver leiðindi.
Það kemur upp eitthvert þras um
stefnumörkun á menningarsviðinu og
þama em einhverjir tveir karlmenn
sem em að þrasa og vilja fá að ráða.
Þeir em hræddir við að fara nýjar
leiðir og vilja halda í það gamla. Það
þarf aðeins að stýra þessu og leyfa
þeim ekki að ráða, vegna þess að þeir
em að stoppa af mikið og vítt svið
með fastheldni á breytingar. Það er
nauðsynlegt að hafa víðari sjón-
deildarhring, vegna þess að menning
er miklu meira en þessir menn standa
„Það verður tekin einhver erfið
ákvörðun sem vinna þarf úr, sem
veldur atvinnuleysi, en verður hins
vegar mjög tímabundið, var sagt
við Davíð.
íyrir. Við losnum út úr þessu, en ekki
strax og alls ekki átakalaust, en það
tekst að byggja upp góða hluti í
framhaldinu."
Matthildur spyr svo hvað myndi
stoppa byggingu menningarhúss í
Eyjum og svarar svo spyrjandi:
„Oákveðni? Mér finnst vera einhver
óákveðni með það, eða eins og allir
séu ekki ákveðnir í því að reisa það.
Það hangir allt í lausu lofti og eins og
ekki sé hægt að negla niður fasta
ákvörðun . Þar em líka sérstaklega
þessir tveir menn sem takast á um
þetta.“
„Getum við ekki skellt skóla-
málunum undir menningu og
menntun. Fer það ekki saman?“ spyr
Matthildur. „Mér finnst eins og
einhvers konar handverksmenntun
eigi sér stað. Hvort það á sér stað
innan listageirans eða í verkmennt í
skólunum, en það er einhver slík
uppbygging sem á sér stað. Það er
eitthvað sem tengist tölvum og
tækninámi og líka sem tengist verk-
námi. Það verður einhver sýning
héma á stómm verkum, en ekkert
endilega málverkum. En það verður
einhver vítamínsprauta í menningu og
Iistum, en samt finnst mörgum þetta
ganga of hægt, en þetta er breyting
sem gengur í gegn smátt og smátt og
skilar sér kannski ekki endilega á
þessu ári. En það verða margir
hneykslaðir á þessum stóm lista-
verkum sem ég var að nefna áðan. En
við komum til með að læra mikið á
þessu sviði sem kennt er við menn-
inguna og mikill lærdómur sem við
komum til með að draga af þessu og
breytum í framhaldi af því og það
skilar árangri, þó að það verði ekki
alveg strax.“
Matthildur segir að innan þessa
listahóps komi einn sigurvegari og í
framhaldi af því hætta nokkrir og vílja
ekki vera með. „Þeir fara í fýlu. Það
er einhver stefna sem að sigrar sem
gerir það að verkum að einhver hluti
þeirra sem er innan menningar og
listaheims héma í Vestmannaeyjum
sem fer í fylu. Þetta er sá hópur sem
vill hafa allt í gömlu föstu skorðunum
og úr því hann fær ekki að halda sínu
er hann bara hættur.“
Handboltinn
Næstur dregur Erlingur Richardsson
spilin fyrir handboltann. Matthildur
spyr strax hvort einhver sé hættur, eða
slasaður, þegar hún lítur yfir spilin og
Erlingur játar því. „Það er eitthvað
slíkt að hrella ykkur. Ykkur átti að
ganga miklu betur síðastliðið ár. Það
var einhvað sem stoppaði ykkur af, en
þið áttuð góða möguleika í upphafi
leiktíðarinnar í vetur, en það fór
Það kemur upp eitthvert þras um
stefnumörkun á menningarsviðinu
og þarna eru einhverjir tveir
karlmenn sem eru að þrasa og vilja
fá að ráða, var sagt við Báru.
eitthvað úrskeiðis sem þið eigið að
hafa hugfast núna. Þið eruð hræddir
við að breyta til og þurfið aðeins að
opna augun og ekki svona fastheldnir
á það gamla. Þið verðið að taka
áhættu. Þið haftð gott lið, en það er
eins og þið þorið ekki að nýta ykkur
ykkar eigið. Ykkur á ekki beint eftir
að ganga ofsalega vel, ekki framan
af.“
Og Matthildur spyr hvort þeir séu
nokkuð á því að falla? „Mér sýnist
ykkur fara hrakandi. Þið verðið að
vera bjartsýnni. Þið emð allt of
svartsýnir. Á næstu leiktíð farið þið
að þora að takast á við sjálfa ykkur og
breyta til. Það er eins og þið séuð
hræddir við nýja bytjun, en þið þurfið
að breyta og spila út frá einhverjum
allt öðmm forsendum. Fyrir næsta
haust ætti slíkt að skila árangri, vegna
þess að þið áttuð það góða möguleika.
Þið hafið allt til að bera og ekki seinna
vænna að fara að byggja upp
framtíðina og vera ekki hræddir við
breytingar. Þegar maður ætlar að láta
drauma sína rætast, verður maður að
muna hliðstæðuna við tunglið. Við
sjáum aldrei hina hliðina á því, þess
vegna verðum við að taka áhættu,
þegar þarf að breyta til. En það er al-
veg á hreinu að það verðið þið að gera
og það hefst með mikilli vinnu.
Fréttir
Að lokum leggur Matthildur spilin á
borðið fyrir Fréttir og það er Ómar
Garðarsson ritstjóri sem dregur í
lögnina. „Þaö er einhver kvenmaður
sem fer að vinna hjá ykkur, eins og
kom líka fram í fyrra reyndar. Svo
emð þið ekkert ofsalega ánægðir með
fjárhaginn, en það er einhver breyting
að eiga sér stað. Síðasta ár reyndist
Fréttum ekkert sérstaklega hagkvæmt,
en það er tíl lausn og hún felst í ykkur
sjálfum. I rauninni eigið þið að geta
séð hana, ef þið opnið augun. Þið
emð ekkert fast bundnir, eins og þið
álítið ykkur vera. Það þarf einhverjar
breytingar. Það verður smá hmn
núna, eins og hjá öllum núna fyrstu
mánuði ársins. Síðan er uppbygging.
Það sem mér virðist vera að ske er að
allt er að fara í einhvers konar breyt-
ingar og endurmat, en þá þarf oft að
brjóta þetta gamla niður. En mér
finnst það vera að gerast í svo
mörgum þáttum samfélagsins, þetta á
ekkert síður við um Eyjar og ég held
að allir sem em á þessu sviði tali um
þetta. Við emm komin inn í ný
tímamót og á Fréttum verða teknar
ákvarðanir sem eiga eftir að skila sér.
Það verður breyting á blaðinu til góðs.
Einhver hættir og það verða
mannabreytingar.
Ykkur átti að ganga miklu betur
síðastliðið ár. Það var eitthvað sem
stoppaði ykkur af, en þið áttuð
góða möguleika í upphafi leiktíðar-
innar í vetur, var sagt við Erling.
Tarotlesturinn fyrir 1999:
Hvernig stóðst
spáin frá í fyrra?
I Tarotlestri Matthildar fyrir árið
1999 var ákveðið að fá fulltrúa í
bænum til þess að draga spilin fyrir
ólíka þætti samfélagsins.. Guðjón
bæjarstjóri var fenginn til þess að
draga spilin fyrir bæjarfélagið,
Magnús Kristinsson fyrir útgerðar-
menn, Bjarki Brynjarsson þáverandi
framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins
fyrir atvinnumál og nýsköpun,
Jóhannes Ólafsson fyrir fótboltann
og Magnús Bragason fyrir hand-
boltann. Ef hægt er að draga saman
heildamiðurstöðu úr lestri Matthild-
ar nefnir hún mjög oft nauðsyn
hugarfarsbreytingar, ef vel á að
ganga, hvort svo hefúr verið og
hugarfarsbreyting orðið með Eyja-
mönnum á árinu verður hins vegar
hver og einn að huga að með sjálf-
um sér.
I árslögn íyrir bæinn varð heild-
armyndin frekar á neikvæðum
nótum, því öll spilin voru frekar
„neikvæð og lítt skemmtileg," eins
og Matthildur orðaði það Þá átti hún
við eiturlyf, sem vissulega sóttu
Eyjar heim á síðasta ári og voru
mikið í umræðunni, einnig kom
fram gæftaleysi, sem sjá mátti í lé-
legri sfldar- og loðnuveiði. Matt-
hildur talaði um óbreytta stöðu eftír
alþingiskosningamar og óhætt að
segja að það hafi gengið eftir.
Einnig talaði hún um peninga sem
eiga að koma frá útlöndum.
Matthildur nefnir jaíhvel Keikó í því
sambandi en ljóst er að tekjur af
Keikó til bæjarfélagsins nema um
hundrað og þrjátfu milljónum, auk
þess sem fjármagn kom til fram-
kvæmda vegna Stafkirkju og mynd-
listarverkefnisins Hraun og menn.
Einnig má nefna Þróunarsjóð at-
vinnulífsins sem kom til ráð-
stöfunar í Eyjum, þó það fé sé ekki
erlendis frá. Matthildur les ósætti
innan meirihlutans, sem eigi að hafa
með þessa peninga að gera, sem þó
verði óháð pólitík, auk þess sem
umræðan verður staðbundin fyrir
Eyjar og mikið í fjölmiðlum. Ekki
er auðvelt að sjá hvort þetta hefur
gengið eftir í lestri Matthildar og
látið lesendum eftir að túlka. Bæjar-
sjóði var skilað með halla og fólki
fækkaði í bænum á árinu, þó sagði
Matthildur að Guðjón kæmi heill
fram í sínu og nái að sameina fólk.
Hins vegar vekur kannski athygli að
sameiningaráform ísfélagsins og
Vinnslustöðvarinnar virðast ekki
koma fram í spilunum, hins vegar sá
hún tvö ólík öfl eða fyrirtæki í
slflcum hugleiðingum fyrirárið 1998
og spuming hvort hún hafi verið ári
á undan áætlun í þeim lestri. Vísir
menn túlkuðu þetta hins vegar sem
hingaðkomu Keikó.
Varðandi lögn Magnúsar Krist-
inssonar sögðu spilin að hugarfars-
breyting yrði að verða hjá útgerðar-
mönnum. Hún talar um gæftaleysi
og þörf til þess að líta fram á veginn
og vflcka sjóndeildarhringinn. Ef
tengja má hlutafjárkaupin í Stoke
City sem lið í þessu, þá orkar það
trúlega tvímælis í hugum einhverra.
Þrátt fyrir gæftaleysi sagði Matt-
hildur að fjármálin yrðu jákvæð og
að afli yrði minni, en verðmæti hans
að sama skapi meira, sem má til
sanns vegar færa. Matthildur Ias
einnig úr spilunum að Magnúsi yrði
ýtt úpp að vegg í Útvegsbænda-
félaginu, þar sem hann er formaður
og hann yrði að taka á hlutunum og
sætta ólík sjónarmið. Ef svo hefur
verið hefur það að minnsta kosti
ekki fariðháttíumræðunni.
Um atvinnumálin og lesturinn úr
spilum Bjarka sagði Matthildur að
verið væri að vinna að góðum og
mikilvægum hlutum varðandi ný at-
vinnutækifæri og talaði um „of-
boðslega“ bjartsýni, hins vegar væri
skortur á íjármagni. Hversu sýnileg
þessi nýatvinnusköpun varð á árinu
er erfitt að segja til um. Matthildur
sagði og að Bjarki og verk hans yrðu
umdeild á árinu og það má til sanns
vegar færa að hafi ræst.
Matthildur las óeiningu úr spilum
Magnúsar Bragasonar fulltrúa hand-
boltans. Hún sagði og að einhver
leikmaður frá fyrri tíð kæmi inn í
liðið. Elías Bjamhéðinsson kom inn
í liðið á miðri leiktíð, en fékk lítið
að spreyta sig og síðastliðið haust
kom Erlingur Richardsson í liðið, en
hann spilaði með ÍBV á árum áður.
Þetta atriði gekk því vel eftir. Hún
sagði að liðið myndi ekki ná neinum
titlum hvorki í deild né bikar og það
gekk eftir. Hún sagði einnig að
leiktímabilið sem byrjaði síðastíiðið
haust yrði liðinu betra en veturinn á
undan, þó eru menn lfldega á því að
gengi liðsins haft verið helst til
rysjótt. Matthildur lagði einnig
áherslu á að liðið ætti að hlusta
meira á sjálft sig og spila meira eftir
eigin hjarta og að undanfömu hefur
liðið verið að sækja í sig veðrið og
virðist vera að ná tökum á nýjum
leikstfl, eftir því sem sérfræðingar
segja nú.
Jóhannes Olafsson, fyrmrn for-
maður ÍBV knattspymudeildar, dró
spilin fyrir fótbollann. Matthildur sá
óeiningu úr spilum Jóhannesar og
segir hana muni skaða liðið. Þetta
gekk eftir og þjálfari liðsins var
rekinn eftir sumarið og Hjalti Jóns-
son og Rútur Snorrason hættu á
miðju tímabilinu. Matthildur las úr
spilunum að að minnsta kosti annar
titillinn héldist í Eyjum. Ekki gekk
það eftir því ÍBV varð titlalaust eftir
leiktímabilið. Reyndar las hún
ákveðna fortíðarhyggju úr spilunum,
sem ekki væri til góðs, en eftir að
hafa verið með yfirburðalið á lands-
vísu síðustu tvö ár, þá má segja að
væntingar áhangenda hafi verið
orðnar miklar og liðið ekki staðið
undir því. Jóhannes spurði um
gengi liðsins í Evrópukeppninni en
liðið komst í aðra umferð for-
keppninnar. Matthildur sagði þá
ekíci komast langt en að liðið yrði þó
sátt við sjálft sig, en dró í efa að allir
stæðu einhuga að baki liðinu.
Eins og fyrrum lagði Matthildur
spilin fyrir Fréttir. Hún talaði um
fortíðarhyggju sem sé ráðandi á
blaðinu, samvinnuleysi og sagði
blaðið umdeilt. Úm fortíðar-
hyggjuna verður ekki lagt mat á hér,
en vissulega er blaðið umdeilt eins
og góð blöð eiga að vera, samanber
íjöldauppsagnir Samfylkingarsinna
á blaðinu í vor, en hafa nú flestir
ratað aftur í hlýju áskriftarinnar.
Matthildur sagði einnig að kven-
maður myndi koma til starfa á
blaðinu. Það gekk ekki eftir og þótti
sumum miður en öðrum betra.
Blaðið héldi þó fullri reisn og óhætt
að segja að það hafi gengið eftir.