Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Síða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Síða 16
16 Fréttir Fimmtudagur 13. janúar 2000 ÞRETTÁNDAGLEÐI ÍBV fór fram í frábæru veðri föstudagskvöldið 7. janúar en ekki gaf til hátíðahalda kvöldið áður á hinum eiginlega þrettánda. Gleðin var með hefðbundnum hætti og hófst með flugeldasýningu af Hánni þaðan sem jólasveinar héldu niður í bæ þar sem þeir sameinuðust Grýlu, Leppalúða, hyski þeirra og álfum og púkum. Álfabrennan var á malarvellinum þar sem fjöldi fólks fylgdist með. Heppnaðist gleðin í alla staði mjög vel enda veður eins og best verður á kosið. Erfitt er að giska á hvað margir tóku þátt í skrúðgöngunni og voru samankomnir við malarvöllinn en þeir hafa örugglega ekki verið færri en 2000. Mátti þar sjá margan brottlluttan Eyjamanninn sem var mættur með börnin til að leyfa þeim að kynnast þrettándanum í Vestmannaeyjum. Myndirnar sýna vel stemmningu á malarvellinum en efstu myndina tók Isleifur A. Vignisson. FLUGFELAG ISLANDS Gerum öllum fært að fljúga Uppl. og pantanir, 481 3300 Hraur Goti að vei Hraunbúðir, dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum varð 25 ára í lok síðasta árs. Þess var minnst fyrir skömmu. Af því tilefni tóku Fréttir hús á Leu Oddsdóttur sem nú ræður ríkum á Hraunbúðum og Unni Pálsdóttur sem er fyrsta forstöðukona Hraunbúða og er vistmaður þar núna. Lea Oddsdóttir veitir Hraunbúðum forstöðu í dag. Hún segir að vissulega sé til öldrunarstefna og nú sé einmitt verið að endurskoða hana. „Að því starfi koma allir aðilar sem sinna þjónustu við aldraða og er það undir stjóm Heru Einarsdóttur félagsmála- stjóra. Auk okkar koma að þessu heilsugæslan og þjónustuhópur aldr- aðra, sem ákveður vistun og önnur úrræði, s.s. heimilishjálp, og einnig yfirmaður heimaþjónustunnar." segir Lea. Á Hraunbúðum eru þjónustu- og hjúkrunardeildir en á sjúkrahúsinu er sjúkradeild. Lea segir reyndar að skilin á milli hjúkrunar- og sjúkra- deildar séu ekki mjög skörp. „Þetta er grátt svæði en við setjum þó ekki vökva í æð. Það kemur læknir einu sinni í viku. Þess á milli er hægt að hringja í lækni og svo höfum við aðgang að vakthafandi lækni eins og aðrir bæjarbúar. Þannig að læknis- þjónusta er góð.“ Læknamir eiga einnig góða samvinnu við þá sér- fræðinga, lyflækna, sem koma á sjúkrahúsið, þannig að við höfum getað sparað fólkinu ferðir upp á land." Ergott að vera gamall í dag? „Eg hef ekki samanburð því áður vann ég á fæðingadeild en ég get þó fullyrt að í dag er gott að vera gamall í Vestmanneyjum. Það er að segja, þegar fólk hefur sætt sig við þá staðreynd að þurfa að nýta sér vistun á Hraunbúðum eða aðra öldmnar- þjónustu. Það er reynt að gera fólki kleift að vera heima eins lengi og kostur er. Með tilkomu Sólhlíðar 19 hefur íbúðum fyrir aldraða fjölgað mikið. Bærinn gerir vel við aldraða og er alltaf að reyna að bæta þjónustuna. Hér var plássum fækkað til að geta boðið upp á fleiri einbýli. Fólk er keyrt ókeypis í og úr dagvistun en það er ekki gert alls staðar. Fólk getur komið hingað í mat sem niður- greiddur eða fengið matinn sendan heim. Ég held að þjónustustigið sé hátt hér.“ Breytum ekki fólki Um 40 manns vinna á Hraunbúðum en ekki eru allir í fullri vinnu. í aðhlynningu em 17, fimm hjúkr- unarfræðingar og aðrir em í öðrum störfum. „Fólki stendur ýmislegt til boða. Þrátt fyrir að föndurherbergið hafi verið stækkað í síðustu breyt- ingum er starfsemin að sprengja utan af sér húsnæðið. Fólk horfir á sjónvarp en við bjóðum upp á allar stöðvar sem nást í Vestmannaeyjum og er það líka tengt inn á herbergin. Svo er það þetta hefðbundna, spjall, spil og gönguferðir. Við höíúm það að leiðarljósi að hér fái fólk að vera það sjálft. Við reynum ekki að breyta fólki en höfum þó ákveðnar reglur. Heim- iiisfólkið hefur mikið frelsi til að fara og koma eins og það vill. Enginn er lokaður inni og hver og einn getur gert það sem hann vill en það ræðst af því hvað fólk getur gert.“ En Lea segir að fyrir flesta séu það þung spor að flytjast á Hraunbúðir. „Þetta er líka erfitt íyrir aðstandendur sem finnst þeir vera að bregðast sínum. En þetta jafnar sig fljótt. Allir fara á tvíbýli til að byrja með sem þýðir að fólk hefur takmarkaða mögu- leika á vera með sína hluti, því tvfbýlin bjóða ekki upp á það. Ég bendi fólki á að bíða með að láta frá sér allar eigurnar til þess að það geti sett þær upp þegar komið er í einbýli.“ Er gefandi að staifa með öldruðum? „Þetta var alveg nýtt fyrir mér þegar ég tók við starfinu fyrir fimm árum. Ég var ekki vön að umgangast þennan aldurshóp en þau kenna manni ýmislegt," sagði Lea. -ÉG tók við starfinu fyrir fimm árum. Ég var ekki vön að umgangast þennan aldurshóp en þau kenna manni ýmislegt, segir Lea.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.