Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 1
1 I í i i s t s ! ! t ! ! ! ! 27. árgangur • Vestmannaeyjum 27. janúar 2000 • 4. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293 B í 7 Æ ■ * STJÓRNENDUR kórsins á tónleikunum voru Guðmundur H. Guðjónsson í Vestm.eyjum, Jóhann Baldvinsson Garðabæ og Einar Örn Einarsson Keflavík en hér heldur Guðmundur á sprotanum. Fjölmennur kór með tónleika fyrir fáa Hátíðakór Kjalarnessprófastsdæm- is, sem komið hefur verið á lagg- irnar í tilefni 1000 ára kristni í landinu hélt æfingu og tónleika í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Fóru tónleikamir fram í Safnaðar- heimili Landakirkju á laugardaginn, en því miður að viðstöddu nokkru fámenni í hópi áheyrenda og má ljóst vera að líklega hefur aldrei jafn íjölmennur og öflugur kór sungið fyrir jafn fáa í Vestmannaeyjum. Má þar telja miskilningi um að kenna að hluta, því ntargur taldi að einungis væri um æfingu að ræða og aðrir að um generalprufu fyrir tónleika kórsins í Landakirkju á sunndaginn væri að ræða. Allt um það þótti þessum stóra kór takast bærilega söngurinn, bæði í Safnaðarheimilinu á laugardegi og við guðsþjónustu í Landakirkju á sunnu- degi. Þó að kórinn sé að stofni til aðallega skipaður fólki sem fyrir er í kirkjukórum prófastsdæmisins, þá hvatti Guðmundur H. Guðjónsson stjómandi kórs Landakirkju, söngfólk hér í Eyjum sem ekki var í kirkju- kórnum til þess að taka þátt í söng Hátíðakórsins og tókst það með ágætum. Hátíðarkórinn mun eiga eftir að koma saman aftur og þá um næstu helgi á Kristnihátíð sem haldin verður í Garðabæ og svo víðar á árinu þar til hátindi kristnihátíðar verður náð á Þingvöllum í sumar. Þeir em margir sem koma að téðu hátíðakórhaldi. Stjómendur kórsins á tónleikunum síðastliðinn laugardag vom Guðmundur H. Guðjónsson í Vestmannaeyjum, Jóhann Baldvins- son Garðabæ, Einar Öm Einarsson Keflavík, sem jafnframt söng einsöng með kómum. Úlrik Ólason Víði- staðakirkju Hafnarfirði, Jónas Þórir Mosfellsbæ og Guðmundur Sigurðs- son Útskála og Hvalsnesskirkju. Einnig léku Védís Guðmundsdóttir og Michelle D.R. Gaskell á þverflautur á tónleikunum. Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum: Uppstokkun á rekstri -samfara lagfæringum og endurbótum á húsnæði Nú standa fyrir dyrum niiklar endurbætur og breytingar á hús- næði Heilbrigðisstofnunarinnar og um leið verður uppstokkun á starfsemi stofnunarinnar. I stað tveggja deilda á tveimur hæðum verða bæði handlæknis- og lyf- læknisdeild á 2. hæð en skrifstofur og endurhæfingardeild verða á 3. hæðinni. I fyrsta áfanga verður unnið fyrir um 30 milljónir en í heild kosta breytingarnar um 160 milljónir. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. formaður stjórnar Heilbrigðisstofnunarinnar, segir að þama sé verið að bregðast við breyttum aðstæðum og minni nýtingu sjúkrarúma. Um leið verður farið í nauðsynlegt viðhald innanhúss. Segir Guðbjörg að stofnunin sé í 25 ára gömlu húsi sem þarfnist lag- færinga og því ákveðið að nota tæki- færið og gera breytingar um leið. „Nýting hefur minnkað m.a. vegna þess að í dag em sjúklingar sendir fyrr heim og allar stærri aðgerðir fara fram á hátæknisjúkrahúsunum í Reykja- vík,“ sagði Guðbjörg. Núna em handlæknisdeild á 3. hæð og lyflæknisdeildin á 2. hæð og segir Guðbjörg að ætlunin sé að reka báðar deildimar á 2. hæðinni. Um leið verður sjúkrarúmum fækkað úr 48 í 35 en það er sá fjöldi rúma sem verið hefur í notkun undanfarið. „Byrjað verður á breytingum á 2. hæð austurálmu og hefjast fram- kvæmdir á næstu mánuðum. Við fáum 28 ntilljónir frá ríkinu og framlag bæjarins er 15% þannig að í heild verða þetta um 32 milljónir en verkið allt á samkvæmt áætlun að kostaum 160 ntilljónir króna.“ Guðbjörg segir að lyflæknisdeildin verði áfram á 2. hæð í austurálmu en handlæknisdeildin flyst niður á sömu hæð í suðurálmu. „A þriðju hæð í austurálmu verður endurhæfingar- deild, læknamóttaka og skrifstofa. í suðurálmu verða eins og í dag skurð- stofur og fæðingarstofa. Við gerum okkur grein fyrir því að á meðan á framkvæmdum stendur verður nokkuð rask bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk en reynt verður að hafa það í lágmarki." Hver er ávinningurinn? „Við vitum að þetta á eftir að spara kostnað við reksturinn og miklu þægilegra verður að reka báðar deildir á sömu hæð. Við höfum átt í vandræðum með að ráða til okkar hjúkrunarfræðinga en breytingin mun létta störf þeirra,“ sagði Guðbjörg að lokum. Skýrist með Valdimar í dag? Svo gæti farið að Valdimar Sveins- son VE yrði seldur frá Vestmanna- eyjum ásamt þeim kvóta sem skip- inu fylgir en það eru 540 þorskígildi. Steindór Amason, útgerðarmaður og eigandi Valdimars Sveinssonar, segir að jafnvel fáist úr því skorið í dag hvort Valdimar Sveinsson skiptir um eigendur. Samkvæmt lögum á sveit- arfélagið forkaupsréttinn en í þessu tilfelli er um að ræða sölu á sjálfu hlutafélaginu og þá gegnir öðru máli. Það eru umfangsmiklir aðilar sem hafa boðið í bátinn, Auður Einarsdóttir (Sigurðssonar) og eiginmaður hennar en þau eiga verulegan kvóta fyrir. Steindór sagðist ekki hafa hugmynd um hvort báturinn yrði áfram^gerður út frá Eyjum ef af þessu yrði. „Eg er bara að selja mín hlutabréf í útgerðinni,“ sagði Steindór. Þær sögur hafa heyrst að hann væri á fömm héðan en Steindór segir ekkert hæft í því. „Okk- ur líður ágætlega hér og það em engar hugmyndir uppi um flutninga." BIRKIR Kristinsson markvörður ÍBV var valinn íþróttamaður Vestmannaeyja árið 1999. Sjá bls. 14 og 15. Mynd SigurgJónasson ■ 11 ■ TM-ÖRYGGI JgL FYRIR ÖRVGGI i FJÖLSKYLDUNA i Sameinar öll trygg.ngamálin - á öllum svicbm' a einfaldan og hagkvæman hátt Vetraráætlun H VW Frá Eyj um Frá Þorlákshöfn Alla daga n/sun. Kl. 08.15 Kl. 12.00 Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00 Aukaferð föstud. Kl. 15.30 Kl. 19.00* ‘ Fellur niður frá 18. des.1999 - 16. mars 2000 <*> 7/er/ó/|ur /i|. Sími 481 2800 Fax 481 2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.