Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 13
Fimmtudagur 27. janúar 2000 Fréttir 13 Björgólfur H. Ingason skrifar: Skepnuskapur Ég var að spjalla við kunningja minn um daginn, svona eins og gerist og gengur. Við spjölluðum m.a. um dýrahald héma í Eyjum og vomm ekki sam- mála. Má raunar segja sem svo að við þrættum um málið. Ég er nú í meðallagi þrætugjam maður þannig að það er kannski ekkert einkennilegt að endmm og sinnum lendi ég í deilum. En þar sem þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í deilum um skepnuhald í Eyjum finnst mér rétt að koma mínum skoðunum niður á blað. Mér frnnst að sem flestir eigi að fá að halda þær skepnur sem þeir vilja, innan skynsamlegra marka þó. Skepnuhaldið á að sjálfsögðu að fylgja þeim lögum og reglugerðum sem slíkt hald krefst og það á að hafa sem minnst óþægindi íyrir aðra. Ég er svo heppinn að eiga góða og fallega tík. Hún nýtist mér á ýmsan hátt. Hún veitir mér t.d. ágætis aðhald um líkamshreyfingu, sem mér veitir ekki af þar sem ég er í svo kallaðri kyrrsetuvinnu. Þá er hún að sjálfsögðu mikill yndisauki fyrir alla mína fjöl- skyldu, afann og ömmuna líka. Síðast en ekki síst íylgir hún mér og mínu samferðafólki upp á land þegar haldið er til skotveiða. En hún er alin upp við að hlýða, hún fær ekki að ganga um laus inni í bæ og ef hún gerir þarfir sínar þar þá er það þrifið upp eftir hana. Þetta finnst mér sjálfsagðar reglur, og geri ráð íyrir að flestum finnist það. Því leiðist mér afskaplega að sjá margt ágætisfólk halda sínar skepnur án þess að taka lítið sem ekkert tillit til annarra. Mér sámar að ganga t.d. Steinsstaðahringinn, sem er mjög fall- eg gönguleið, og þurfa á löngum köflum að þræða framhjá hrossaskít sem liggur vítt og breitt á göngu- stígnum. Mér finnst dapurlegt að sjá ketti ganga lausa um allan bæ og míga og skíta í sandkassa hér og þar um byggðina. Og rollumar, já blessaðar rollumar, sem virðast hafa meiri rétt en allar aðrar skepnur. T.d. er strang- lega bannað að fara með hund inní Herjólfsdal, allavega ef á að fara eftir þeim skiltum sem þar em, en rollu- greyin mega ráfa þar um. Vissulega jsurfa þær að vera innan girðingar, en eins og margir þeir sem stunda golf vita, þá halda þessar girðingar ekki nógu vel. Þá er ótalið skepnuhaldið sem einn ágætur maður hér í bæ hefur haft austur á Haugasvæði. Hann hefur varið það sem hann telur vera rétt sinn með töluverðri hörku. Um tíma var fólk orðið smeykt að fara með hundana sína á þetta yfirlýsta hundasvæði, vegna stöðugra hótana þessa annars ágæta manns. Síðan var gert samkomulag um að hann fengi að hafa fjár- og hrossa- hópinn á beit í landi, sem er að stómm hluta í umsjón Landssímans, við Sæfjall. Var svæðið girt af með ágætri girðingu til að halda stofninum ömgg- lega þama inni. Önduðu þá margir hundaeigendur léttar vegna þess að þá myndi þessum stöðugu árekstmm hætta, og einnig þau sem hafa áhuga þessu yfirlýsta landgræðslulandi Eyjanna því nú væri ekkert til fyrir- stöðu um að halda því starfi áfram. En nú bregður svo við að í vetur þá em aftur komnar skepnur á Haugasvæðið. Annaðhvort hefur þessi maður brotið áður gert samkomulag eða annar einstaklingur er byijaður með frí- stundabúskap þama. Mér finnst báðir möguleikamir forkastanlegir. í fyrri möguleikanum þá höfum við full- þroska mann sem veður yfir fyrri samkomulag og hagar sér eins og honum sýnist og virðist komast upp með það. Seinni möguleikinn gefur til kynna að hver sem er geti komið sér upp búfénaði og holað honum niður þar sem honum sýnist, án þess að spyrja kóng né prest (hvað þá önnur yfin'öld). Ég spyr því hvað á að gera? Á að láta þetta óátalið? Er hin sívirka HUN- nefnd að vinna í málinu? Hvar stendur þetta mál hjá bæjaryfirvöldum? Ég efast ekki um að verið sé að vinna í þessu máli, en mig langar að vita hvar það stendur. Ætti kannski að gefa út opið veiðileyfi á þessar skepnur, þama er jú líka svæði sem ætlað er til skotæfinga. Björgólfur H. Ingason. Umhverfispistill: Ný náttúruverndarlög Á nýju árþús- undi hefur okkur samist svo um að hér í Fréttum verði birtur léttur pistill um um- hverfismál. Ætlunin er að fara út og suður í þessum pistlum og reyna að drepa á því sem vel er gert sem og því sem miður hefur farið í umhverfismálum heima og heiman. I þessum fyrsta pistli ætla ég að fjalla um ný náttúmvemdarlög sem vom samþykkt á alþingi síðastliðið vor fyrir kostningar. Þessi nýju lög em á margan hátt byltingarkennd og auka ábyrgð almennings og sveit- arstjóma í umhverfismálum. Þannig er sveitarfélögum gert að setja á stofh þriggja til sjö manna náttúruvemd- amefnd sem skal vera sveitarstjóm til ráðgjafar um náttúruvemdarmál og stuðla að náttúmvemd og fræðslu heima í héraði. Náttúrvemdamefnd er einnig ætlað að fjalla um starfsemi og ffamkvæmdir sem ætla má að hafi áhrif á náttúrana og gera tillögur til úrbóta. Náttúruvemdamefndum er gert að starfa í nánu samstarfi við sveitar- stjóm og Náttúmvemd ríkisins. Eitt byltingarkendasta ákvæðið í þessum lögum er að nú er öllum almenningi heimil för um óræktuð lönd manna innan sem utan girðinga. Ákvæði með heimildinni er að mönnum er gert að valda ekki spjöllum á landi og taka fullt tillit til landeiganda og annarra rétthafa lands (t.d. leiguliðar á ríkisjörðum). Þetta þýðir raunar að menn geta nú gengið hvert sem er um óbyggð einkalönd sem almenn- inga án þess að þurfa að hafa af því áhyggjur að verða áreittir af land- eiganda. Hinsvegar er landeiganda heimilt að takmarka ferðir manna í óræktuðu landi í byggð með merkingum og á ræktarlöndum. Ákvæði sem tryggir eðlilegt næði. Annað ákvæði í nýju lögunum er um tjöldun og berja- tínslu. Nú er heimilt að tjalda einu úl tveim tjöldum til einnar nætur á óræktuðu landi við alfaraleiðir, þó er brýnt fyrir mönnum að tjalda ekki ofan í bæjum og lögbýlum án leyfis. Við alfaraleiðir í óbyggðum er öllum heimilt að tjalda hvort heldur er á eignarlandi eða þjóðlendu. Þetta er í raun nýmæli sem rýmkar til muna ferðafrelsi manna sem stöðugt hefur verið að þrengja. Loks ber að geta þess að nú er öllum heimilt að tína ber og neyta þeirra á staðnum hvar sem er á landinu. Mönnum ber þó að hafa í huga að reyna ekki að setja þau í box og hafa með sér því þá geta hafist erjur á milli ferðamanns og landeiganda. Þeim sem vildu kynna sér lögin betur fyrir næsta sumar er bent á að á fimmtudagskvöld 4. febrúar mun fulltrúi frá Náttúmvemd ríkisins halda fyrirlestur um nýju lögin á 3. hæð í Rannsóknasetrinu á Strandvegi 50. Mönnum er einnig bent á vefslóð Náttúmstofu Suðurlands en þar er lögin að finna undir liðnum lög og reglugerðir, http://www.nattsud.is. Ármann Höskuldsson Þjónusta við frumkvöðla og fyrirtæki Ný þjónustumiðstöð fyrir fmmkvöðla og fyrirtæki, tók til starfa á Iðntæknistofnun á liðnu vori. Hefur þjón- ustumiðstöðin fengið nafnið Impra. Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir fmmkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki á íslandi. Þjónustan er veitt öllum atvinnugreinum, hvort heldur er á sviði iðnaðar, sjávar- útvegs, þjónustu eða annarra greina. Hörður Baldvinsson, sem er starfsmaður Imprn., segir að þjónustumiðstöðin muni leiða mótun sértækra stuðn- ingsverkefna sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi viðskiptahugmynda. „Við munum meðal annars afla áhættufjármagns til verkefna sem stuðla að nýsköpun í íslensku atvinnulífi, auk þess sem starfsmenn Impru munu veita handleiðslu við gerð viðskiptaáætlana, aðstoða við undirbúning og stofnun fyrirtækja, ásamt því að veita leiðsögn um rekstur þeirra og að koma á erlendum viðskiptasamböndum.“ Tveir starfsmenn Impru, Anna Margrét Jóhannesdóttir og Hörður Baldvinsson, heimsækja Vestmannaeyjar föstudaginn 28. janúar næstkomandi. Áhugasömum er boðið upp á að panta viðtal í síma 570-7267 fyrir kl. 12.00 þennan dag en gert er ráð fyrir að viðtölin fari fram frá kl: 13.00 - 16.00 sama dag í húsi íslandsbanka 3. hæð hjá GE- Ráðgjöf. Fjármál fimmtude Eftir Bjarka Brynjarsson Æ a gi Framvirkir samningar Framvirkir gjaldmiðlasamningar em samningar milli tveggja aðila, þar sem annar aðilinn skuldbindur sig til þess að kaupa ákveðna upphæð af gjaldeyri á ákveðnu gengi á umsömdum tíma í framtíðinni. Lengd framvirkra samn- inga er yfirleitt innan við ár. Dæmi: Fyrirtæki gerir framvirkan samning við banka um að eftir þrjá mánuði kaupi fyrirtækið $1.000.000.- fyrir Ikr 75.250.000.- Framvirka gengið er því 75,25. Framvirkir gjaldeyrissamn- ingar geta verið milli nánast hvaða mynta sem er og til hvaða tíma sem er, þó innan árs, en oftast er um heila mánuði að ræða. Lágmarksupphæð er Ikr 5.000.000,- Yfirleitt gera aðilar framvirka samninga til þess að verja einhvetja stöðu í gjaldeyri, en þó þekkist að gerðir séu samningar til þess eins að hagnast á gengisbreytingum. Slík við- skipti fela í sér umtalsverða áhættu enda erfitt að spá fyrir um gengi gjaldmiðla. Verðlagning framvirkra samninga byggist á vaxtamuni sem er á milli þeirra tveggja mynta sem samið er um kaup og sölu á. Það þýðir m.a. að framvirka gengið endurspeglar ekki neinar væntingar aðila á markaðinum um hvort þeir telji líklegt að einhverjar myntir styrkist eða veikist. Vextir í viðkomandi myntum ráða því fram- virka genginu. Ef t.d. gera á framvirkan samning um bresk pund til eins árs og daggengi GBP er 119,5 og 1 árs vextir í GBP eru 6,5% en 1 árs vextir í Ikr em 10% myndi framvirka gengið vera: daggengi x (1+vextir í Ikr)/(l+vextir í GBP) eða 119,5 x (1 +0,1)/(1 +0,065)=123,4. Fjölmörg not em fyrir framvirka gjaldmiðlasamninga. Dæmi um slíkt gæti verið sjávarútvegsfyrirtæki sem selur loðnu til Japans og fær greitt í jenum eftir þrjá mánuði. Fyrirtækið vill tryggja sér ákveðið verð í ís- lenskum krónum fyrir jenin og gerir framvirkan samning til þriggja mánaða um að selja jenin fyrir fast verð. Annað dæmi gæti verið banki sem þarf að greiða lán í þýskum mörkum eftir sex mánuði og óttast að markið muni styrkjast á tímabilinu. Bankinn gerir því framvirkan samning um að kaupa þýsk mörk j)egar lánið er á gjalddaga. Ónnur leið til að verja stöðu sína er með vilnunum (e. options). Um þær verður fjallað í næstu viku. Bjarki A. Brynjarsson Forstöðumaður Kaupþings hf. á Suðurlandi ÞANNIG voru hin óskemmtilegu skilaboð sem kattareigandinn fékk. Þekkir einhver skriftina. Oskemmtileg skila- boð til kattareiganda Á fyrirtæki einu hér í bæ hafði eftirfarandi skilaboðum verið hent inn um glugga nú í vikunnni: „Ef þú lætur ekki gelda köttinn þá geri ég það sjálfur." Þótti hlutað- eigandi þetta vægast sagt undarleg skilaboð og spurði hvað fólki gengi til sem lætur svona orðsendingar frá sér fara. Viðkomandi sagðist vissulega eiga kött, en ekki vitað til þess að kvartað hefði verið undan honum, sér í lagi í ljósi þess þætti eiganda kattarins slík sending bera vott um hinn mesta dónaskap, auk þess sem skilaboðin hefðu valdið ótta hjá ungum syni kattareigandans. Vildi kattareigandinn koma því á framfæri að sendandi skilaboðanna sýndi nú þann manndóm að bera upp um- kvörtunarefni sín varðandi kattarhald hans við hann sjálfan, svo að gera mætti einhverjar ráðstafanir er róa mættu og friða skrifara skilaboðanna. „Það er í hæsta máta fáránlegt að henda slíkri orðsendingu inn um glugga á vinnustað," sagði kattar- eigandinn, að vonum furðu lostinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.