Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 15
Fimmtudagur 27. janúar 2000
Fréttir
15
1999:
mannaeyja 1999
félaginu Rán 28. nóvember 1988.“
Sama haust byrjaði Ola Heiða að
æfa sjö krakka í boccia og í framhaldi
af því var Ægir, íþróttafélag fatlaðra
stofnaðþann 12. desember 1988.
„Auk þess þjálfaði Óla Heiða
frjálsar íþróttir á sumrin á meðan hún
var við nám í Iþróttakennara-
skólanum. Hún hefur verið sérlega
virk í foreldrastarfi í kringum syni sína
tvo sem iðka fótbolta og handbolta af
kappi. Síðast en ekki síst hefur hún
starfrækt og staðið fyrir kvenna-
leikfimi hér í bæ, í rúm 10 ár hefur
hún starfað við kvennahlaupið.
Hér er einungis stiklað á stóru.
Ahugi fyrir velferð og framgangi
íþrótta í yestmannaeyjum verið
aðalsmerki Ólu Heiðu og því er hún
vel að því komin að vera heiðruð
sérstaklega fyrir ósérhlífið starf sitt í
þágu íþróttahreyfingarinnar í Vest-
mannaeyjum," sagði Þór.
Ægir
Iþróttamaður ársins hjá Ægi, íþrótta-
félagi fatlaðra 1999 er Guðni Davíð
Stefánsson sem hreppti gullverðlaun á
Olympíuleikum þroskaheftra í Banda-
ríkjunum sl. sumars.
Guðni Davíð, sem er 17 ára, hefur
æft hjá Ægi nánast frá stofnun þess,
eða sl. 11 ár. Hann hefur æft boccia og
á sundinu byrjaði hann haustið 1998.
Á árinu tók hann þátt í nýársmóti í
sundi, Islandsmóti fatlaðra í sundi, í
1. deildinni í boccia en hæst báru
Olympíuleikamir þar sem hann vann
gull fyrir 50 m bringusund.
í umsögn Ægis segir að Guðni
Davíð hafi með reglubundinni ástund-
un í íþróttum sýnt ótrúlegar framfarir.
Sundfélag ÍBV
Daði Guðjónsson er íþróttamaður
ársins hjá Sundfélagi ÍBV. Daði sem
er 12 ára gamall hefur náð mjög
góðum árangur í sundinu og var árið
1999 mjög gott hjá honum. Daði setti
níu Vestmannaeyjamet og gerði sér
lítið fyrir og náði 4. sætinu á Islands-
meistaramótinu í 100 m baksundi.
Hann er mjög kappsfullur og dug-
legur keppnismaður sem stefnir alltaf
á 1. sætið, segir í umsögn.
Ungmennafélagið Óðinn
Ungmennafélagið Óðinn, sem hefur
frjálsar fþróttir á sinni könnu, valdi
Áma Óla Ólafsson sem frjálsíþrótta-
mann ársins. Hann æfir sgjótkast,
kringlukast og sleggjukast. Á meist-
aramóti innanhúss lenti hann í 3. sætí í
kúluvarpi og setti Vestmannaeyjamet
en ekki var keppt í hans aðalgreinum.
Á íslandsmóti 15 til 22 ára utanhúss
varð Ámi Óli 2. í spjótkasti og
sleggjukasti og í 4. sæti í kringlukasti
en samtals bætti hann sig um sjö
metra. Ámi Óli er í unglingalands-
liðinu og stundar nú æfingar í Svíþjóð.
Fimleikafélagið Rán
Ama Björg Sigurbjömsdóttir var valin
fimleikamaður ársins hjá Rán. Arna
Björg er fædd 1986 og hefur stundað
fimleika frá þriggja ára aldri. Hún
hefur unnið til fjölda verðlauna á
ferlinum en best gekk henni á síðasta
ári. Þá varð hún Islandsmeistari í 2.
þrepi í skrúfustiganum. Hún vann sinn
flokk á Vinamóti í 2. flokki, Vest-
mannaeyjameistari í 3., Ránarmeistari
1999 fýrir besta árangur á árinu og að
lokum vann hún Haustmótið í 3. þrepi.
Er þetta sannarlega glæsilegur ár-
angur hjá þessari ungu og efnilegu
stúlku.
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Karl Haraldsson, 16 ára, var valinn
kylfíngur ársins hjá Golfklúbbi Vest-
mannaeyja og er það að verðleikum
því hann náði sérlega glæsilegum
árangri á árinu 1999.
Kemur þar þrennt til. I fyrsta lagi
varð hann Islandsmeistari 16 ára og
yngri á móti sem haldið var hér í
Eyjum. Þá leiddi hann sveit GV, 16
ára og yngri, til sigurs í sveitakeppni
GSI sem fram fór á Akranesi. I þriðja
lagi var hann valinn efnilegasti kylf-
ingur landsins 1999 af Golfsam-
bandinu.
I umsögn GV segir að Karl sé
líklegur til afreka í golfmu og er hann
til fyrirmyndar bæði innan vallar sem
utan.
íþróttafélag Vestmannaeyja
Amsteinn Ingi Jóhannesson, körfu-
knattleiksmaður ársins hjá IV, er
fæddur árið 1974 á Akureyri og ól
manninn þar.
Addi, eins og hann er kallaður,
byrjaði að spila með Þór Akureyri í
meistaraflokki árið 1991 og spilaði 66
leiki í úrvals- og íyrstu deild með Þór
og skoraði að meðaltali um 10 stig í
leik. Addi flutti til Vestmannaeyja
árið 1995 og var einn af þeim sem
endurvöktu lið IV. Hann var þjálfari
og leikmaður tímabilið 1995-1996 og
skoraði 22,3 stig að meðaltali. Árið
1997 bjó Addi ásamt eyjastúlkunni
Páley Borgþórsdóttur í Þýskalandi en
flutti svo aftur til Islands um haustið
og spilaði með IS í 1. deild tímabilið
1997-1998 Addi spilaði svo aftur
með ÍV árið 1998-1999 og var jafn-
framt fyrirliði liðsins. Varð íslands-
meistari með liðinu í 2.deild. Addi er
formaður ÍV ásamt því að vera ein af
máttarstólpum liðsins.
KFS
Kári Hrafnkelsson var valinn
knattspymumaður ársins hjá KFS.
Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS, segir
að þar hafí aðallega legið að baki
einkunnagjöf til handa leikmönnum,
en einkunnir em gefnar fyrir hvem
leik, bæði í deild og bikar.
Kári var hæstur í þeirri einkunnagjöf
með 9,40 af 10 mögulegum en næsti
leikmaður var með 9,25. Hjalti segir
að á bak við þetta val liggi að Kári haft
spilað marga mjög góða leiki í sumar,
eins og einkunnagjöfin beri með sér.
Hann hafi leikið sem kantmaður í
byrjun þar sem hann eigi mjög góðar
fyrirgjafir fyrir markið. Síðan hafí
hann verið færður yfir á miðjuna og þá
byrjaði hann sjálfur að skora mörk í
stað þess að eiga áður fyrirgjafímar
sem gáfu mörkin. I tíu leikjum
skoraði Kári alls átta mörk.
Hjalti segir að Kári hafi mjög gott
auga fyrir fótbolta og hann sé mjög
mikilvægur fyrir liðið. Þá hafi hann
verið aðstoðarþjálfari liðsins í sumar
og sé vel að þessari útnefningu
kominn.
ARNA Björg
KARL Haraldsson
KARI Hrafnkelsson.
ÓLA Heiða.
HÓFIÐ var haldið í Týsheimilinu og var vel sótt.
Iþróttamenn
Vestmannaeyja
frá upphafi
Þetta er í 22. skiptið sem Iþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum
er valinn. Rótarýklúbbur Vestmannaeyja sá um valið frá 1978 til
1982. Þá tók ÍBV við valinu og viðhafði kosningu meðal bæjarbúa
en frá 1986 hefurvalið verið í höndum valnefndar ÍBV.
Þessir hafa verið Iþróttamenn ársins í Vestmannaeyjum:
1978, Óskar Sigurpálsson lyftingamaður.
1979 Gunnar Steingrímsson lyftingamaður
1980 Páll Pálmason knattspymumaður
1981 Sigmar Þröstur Óskarsson handboltamaður
1982 Sigfríð Björgvinsdóttir sundkona
1983 Gylfi Garðarsson kylfingur
1984 Ámi Sigurðsson sundmaður
1985 Þorsteinn Gunnarsson knattspymumaður
1986 Birgir Ágústsson kylfingur
1987 Sindri Óskarsson kylfingur
1988 Nökkvi Sveinsson knattspymumaður
1989 Sigurður Gunnarsson handboltamaður
1990 Logi Jes Kristjánsson sundmaður
1991 Sigmar Þröstur Óskarsson handboltamaður
1992 og 1993 Þorsteinn Hallgrímsson kylfingur
1994 Andrea Elín Atladóttir handboltakona
1995 og 1996 Logi Jes Kristjánsson sundmaður
1997 Hlynur Stefánsson knattspymumaður
1998 Hlynur Stefánsson knattspymumaður
1999 Birkir Kristinsson knattspymumaður