Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Qupperneq 8
8 Fréttir Fimmtudagur 6. júlí 2000 Byrjað að hreinsa Dalinn: Alls öryggis verður gætt -segir Olafur Týr, framkvæmdastjóri þjóðhátíðar Nú fer í hönd aðalundirbúningstími Þjóðhétíðar. Nokkur uggur hefur verið í fólki vegna hugsanlegs grjóthruns úr fjöllum sem afleið- ingar jarðskjálftanna fyrr í sumar. Nú hefur Almannavarnanefnd Vestmannaeyja gefið grænt Ijós á framkvæmdir í Dalnum á næstu dögum til undirbúnigs Þjóðhátíðar af fullum krafti. Ólafur Týr Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Þjóðhátíðamefndar, sagði að vegna þeirrar umræðu sem verið hefur eftir Suðurlandskjálftana hefði nefndin í hyggju að girða fyrir skriðumar í Dalnum til að minnka hættuna á steinkasti úr brekkunum. „Verið er að vinna að því að fá gott net til þess að girða fyrir skriðurnar og vonast nefndin til þess að bæjarbúar sjái sér fært að fjölmenna í Dalinn og aðstoða við uppsetninguna, en tíma- setning framkvæmdarinnar yrði auglýst síðar.“ Ólafur Týr sagði að til stæði að færa flugeldasýninguna út úr Dalnum til að minnka hugsanleg áhrif sprenging- anna. „Að sögn kunnugra er afskap- lega ólíklegt að hljóðbylgja sem kæmi í kjölfar slíkra sprenginga hefði nokkur áhrif á bergið eða hmn úr því. Á Shellmótinu síðastliðinn fimmtudag var gerð tilraun í þessu skyni og er skemmst frá því að segja að ekki varð vart við nokkra hreyfingu í skriðunum. Þjóðhátíðamefnd ætlar engu að síður að gera lyrrgreindar ráð- stafanir til að auka öryggi þjóðhá- tíðargesta og vonar hún að Þjóðhátíðin verði öllum sem hana sækja góð og ömgg skemmtun." BYRJAÐvarað hreinsa Herjólfsdal á þriðjudaginn. Því verki sinntu vaskir sveinar frá bænum. Breyting ó sorpgjaldi fyrirtækja: Dæmi um margfalda hækkun 2000 kanínur í Sæfjalli? Mörgum forsvarsmönnum fyrir- tækja hefur brugðið í brún vegna stórhækkunar á sorpgjaldi fyrir- tækja. Sú hækkun mun mjög misjöfn eftir fyrirtækjum en dæmi eru um að gjaldið hækkar úr 15 þúsund kr. á ári í 90 þúsund eða um 600%. Forsvarsmenn fyrirtækja sem rætt var við segja að hækkunin haft komið þeim í opna skjöldu þó þeir hafi vitað að breyting á gjaldskrárstofni stæði fyrir dymm. „Utreikningar hafa staðið í eitt ár en við höfum ekkert haft að segja um þá,“ sagði einn þeirra og ætlar hann ekki að una niðurstöðunni. Samkvæmt því sem fram kemur í auglýsingu um breytingu á gjaldskrá sorpeyðingarstöðvar, réðu Bæjarveitur Vestmannaeyja VSÓ-ráðgjöf til að yfirfara gjaldskrármál stöðvarinnar. VSÓ hefur mikla reynslu á því sviði og hefur unnið fyrir nær öll stærri byggðarlög landsins. Niðurstaða þeirrar vinnu hefur verið notuð sem gmnnur að nýrri gjaldskrá. Það var markmið veitnanna að gjaldskrá vegna sorpeyðingarstöðvar væri sanngjörn og kostnaði réttlátlega skipt niður á fyrirtæki eftir umfangi. Farið var í greiningu á rekstrar- kostnaði stöðvarinnar og fundið út hver kostnaður fyrirtækja er í rekstri hennar. Bæjaryfirvöld settu sér þá stefnu að tekjur af sorpeyð- ingargjöldum fyrirtækja stæðu undir a.m.k. 80% af raunkostnaði vegna eyðingar á sorpi frá fyrirtækjum. Til þessa hafa fyrirtæki ekki greitt nema um 50% af þeim kostnaði. Bæjarveitur munu skrá það sorp- magn sem berst frá hverju fyrirtæki og hvemig þurfí að meðhöndla það. Þær upplýsingar verða síðan notaðar árlega sem reynslutölur til að áætla gjald fyrir hvert íýrirtæki. Fyrirtæki, sem ekki hafa áður greitt sorpgjald, munu á fyrsta ári greiða í samræmi við þau sem eru í sam- bærilegum rekstri og hafa svipaðan fjölda starfsmanna. Þá verður gjaldið innheimt með þremur gjalddögum í stað tveggja. Grunngjald er 15 þúsund á ári Öll fyrirtæki greiða gmnngjald, fasta upphæð á ári, óháð stærð eða tegund fyrirtækis. Því er ætlað að standa straum af ýmsum föstum kostnaði, óháðum því sorpmagni sem berst. Settir verða upp 25 llokkar sem greitt verður eftir og er hver flokkur 10 rúmmetrar (10 þúsund lítrar). Umfang sorps frá fyrirtækjum verður metið með hliðsjón af þessum þáttum: -Sorpmagni sem sorpeyðingarstöðin sækir reglulega til íyrirtækja, metið út frá rúmmáli íláta og tíðni sorphirðu. -Tilfallandi sorpi sem sótt er til fyrirtækja, rúmmál mælt og skráð við máttöku. -Sorpi sem fyrirtæki koma sjálf með í sorpeyðingarstöð, rúmmál mælt og skráð við móttöku. Það er breytilegt eftir því hve mikið þarf að meðhöndla sorpið. Hreint sorp: Ekkert aukagjald Yfirferð: 18% Meðhöndlun: 106% Ódýrast er fyrir fyrirtæki að koma með hreint sorp sem hægt er að setja beint í brennslu. Hærra gjald er fyrir sorp sem þarf að yfirfara og hæsta gjaldið fyrir sorp sem þarf að flokka og meðhöndla af starfsmönnum stöðvarinnar. Það er því hagur fyrir- tækja að flokka sorpið og yfirfara þannig að það geti farið beint til brennslu. Önnur gjöld: Sem dæmi um önnur gjöld er eftirfarandi: Urðun: Gjaldfrítt Fólksbfíar: 5.000 kr. Stærri bflar: 7.500 kr. Brotamálmar: 106% Spilliefni: Gjaldfrítt Þrátt fyrir þá hækkun, sem sum fyrirtæki verða fyrir við þessa gjaldskrárbreytingu, fullyrða forráða- menn bæjarins að flest fyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu, sem lenda í flokkun og vigtun hjá Sorpu, greiði hærra gjald þegar upp er staðið. Þeir segjast sannfærðir um að í Eyjum eigi að hafa þetta gjald fast, ekki vigtun. Reynsla sé fyrir því að eigi að greiða meira, t.d. fyrir spilliefni eftir vigt, þá sé þeim fleygt einhvers staðar þar sem ekki þarf að greiða fyrir þau. Það sé von bæjaryfirvalda að einstaklingar og fyrirtæki í Eyjum sýni samstöðu og leggi sitt af mörkum til að viðhalda snyrtilegum bæ. Nú er lundaveiði hafin og lunda- veiðimenn nokkuð bjartir. Þó fer tvennum sögum af veiðinni í Sæfjalli en samkvæmt Jakobi Erlingssyni lundaveiðmanni er hann sannfærður um að þar sé meira um kanínur í lundaholum en lunda. „Eg tel að kanínumar hafi tekið sér bólstað í lundaholunum. Þær róta út eggjum lundans og yfirtaka holumar. A stuttum kafla taldi ég um 40 kanínur og samkvæmt því er ekki óeðlilegt að áætla um 2000 kanínur í Sæfellinu. Ef íjölgun kanínanna verður slík munu þær ógna lunda- byggð í Eyjum,“ sagði Jakob og var ekki ánægður með þróun mála. Oddfellow sigraði í klúbbakeppninni Á laugardag var hin árlega klúbbakeppni í golfi, milli Akóges, Kiwanis og Oddfellow. Þátttökurétt í þeirri keppni hafa félagar í þessum klúbbum og makar þeirra. Þá hafa félagar úr Ákóges í Reykjavík einnig tekið þátt í þessari keppni þijú síðustu skipti. Að þessu sinni bám Oddfellowar sigur úr býtum, hlutu 320 punkta, Akóges Vestm. 315 punkta og Kiwanis 307 punkta. Akóges Vestm. sigraði í keppni sex manna sveita milli eyjaklúbbanna með 135 punkta en sveitir Oddfellow og Kiwanis vom jafnar með 130. Þá keppa Akógesfélögin tvö einnig innbyrðis í sveitakeppni og höfðu Reykvfldngar betur að þessu sinni með 145 punkta gegn 135. Þessi urðu hæst í einstaklingskeppninni: 1. Guðmar Sigurðs Akóges Rvk 44 p. 2. Sveinn Magnúss Akóges Vm. 40 p. 3. Jón Ólafsson Akóges Rvk. 39 p. 4. Elsa Valgeirsd. Oddfellow 38 p. 5. Ágúst Einarsson Kiwanis 37 p. Jæja krakkar, nú er kemiÓ að því r- í^yV'' .. ■ “'Ik. $>í6 getíð byvþh sfei ykkur í söDgwfceppDí b$rm § $>jó6hltí6fc)Dt síiwdí? eru: 3263 §96 í ö voem ^Bd$n vosb Munið að hin sívinsæla hljómsveit Dans á rósum spilar undir!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.