Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Síða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Síða 23
Fimmtudagur 6. júlí 2000 Fréttir 23 Golf: Golfeeviniýrið í fullum gangi Metþátttaka í ár Golfævintýrið hófst á mánudag og lýkur formlega í kvöld. Þátttaka er meiri en nokkru sinni fyrr, 142 ungmenni víðs vegar að af landinu auk fararstjóra og þjálfara. Þátttakendur stunda golfleik allan daginn, bæði í æfingum og keppni en að auki em skipulagðar ferðir fyrir hópana, bæði á sjó og landi, ásamt fleiri uppákomum. Svo vel vildi til að landsliðið í golfi, sem keppa mun á Norðurlandamótinu hér í Eyjum í lok júlí, var við æfingar í Eyjum frá sunnudegi til þriðjudags og tók virkan þátt í að segja hinum ungu kylfingum til. ÞAÐ bar vel í veiði á þriðjudag þegar sjálft landsliðið mætti til kennslu á golfvellinum. Þau Ragnar Olafsson, landsliðsþjálfari, 4. frá hægri og Kristín Elsa Haraldsdóttir, landsliðskona úr golfklúbbnum Keili, lengst til hægri, voru ekki í nokkrum vafa um að í þessum hópi væri verðandi landsliðsfólk. ÞESSI fjögur eru öll úr GKG (Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar) og fannst frábærlega gaman. GOLF er nákvæmnisíþrótt. Þessi hópur var að æfa stutt vipp og galdurinn var að hitta í lundaháfana. Þorsteinn Hallgrímsson, landsliðsmaður, fylgdist með því að rétt handtök væru notuð. John Nolan masttur aftur Eflaust kannast margir Eyjamenn við breska golfkennarann John Nolan en hann dvaldi hér um tíma fyrir 23 árum og kenndi golf. John er frá Manchester í Englandi, hálfur íri og hálfur Englendingur, og hefur atvinnu af því að byggja upp aðstöðu kringum golfvelli ásamt því sem hann sinnir enn golfkennslu. T.d. hefur hann þessa dagana verið að segja ungu fólki til á Golfævintýrinu. Þegar John dvaldi í Eyjum var völlurinn aðeins níu holur og hann átti vart orð til að lýsa ánægju sinni með völlinn eins og hann er í dag. „Þetta er stórkostlegur völlur, alveg ffábær," sagði hann. John ætlar að gera hér stuttan stans, fer héðan aftur á sunnudag en hefur ákveðið að kenna golf í dag og á morgun. Full ástæða er til að benda fólki á að notfæra sér þetta tækifæri. Þeir sem kynnst hafa John Nolan fullyrða að hann sé einhver besti golfkennari sem hér hafi verið. Hægt er að panta tíma í Golfskálanum í síma481 2363. JOHN ásamt tveimur efnilegum nemendum, þeim Snorra og Andra. Landssímadeild kvenna - ÍBV mætti Stjörnunni og FH Jafntefli 03 stórsisur hjá stelpunum Á fóstudaginn mættu stelpurnar í IBV liðinu sem sat fyrir leikinn í þriðja sæti Landsímadeildarinnar eða Breiðabliki. Leikurinn var ágætis skemmtun þó að mörkin hafi látið á sér standa Sigur var nauðsynlegur báðum liðum, þó sérstaklega IBV en með sigri hefði liðið haldið sér við toppinn. Leikurinn endaði með jafntefli og er óhætt að segja að óheppnin elti IBV á röndum þessa dagana. Strax á fyrstu mínútum leiksins ógnuðu Eyjastelpur marki Breiðabliks nokkuð en Bryndís Jóhannesdóttir komst næst því að skora þegar hörku- skot hennar hafnaði í markslánni. Eftir góða skyndisókn ÍBV skoraði svo Bryndís og kom liðinu í 1-0. Blikar náðu svo að jafna leikinn eftir mikið fát á vamarmönnum IBV sem annars áttu ágætis leik. En ÍBV sýndi mikla baráttu og komst aftur yfir mínútu sfðar og staðan í hálfleik var 2- 1 fyrirÍBV. Eftir aðeins sjö mínútna leik var staðan orðin 3-1 fyrir ÍBV og allt leit út fyrir sigur stelpnanna. En lélegur dómari leiksins sá ástæðu til þess að grípa inn í og koma gestunum aftur inn í leikinn með fáránlegum víta- spymudómi. Leikmenn IBV vom slegnir yfir vítaspymudómnum og það færðu gestimir sér það í nyt og jöfnuðu leikinn þegar 20 mínútur vom eftir. Það er eftir lifði leiks sótti ÍB V nánast látlaust að marki gestanna og oft munaði aðeins hársbreidd að stelpumar næðu að tryggja sér sigurinn. En þrátt fyrir góða spilamennsku, fjöldann af fæmm og tvö sláarskot þá gengu hlutimir ekki upp hjá stelpunum og 3-3 jafntefli niðurstaðan. „Við vomm helmingi betri í þessum leik og hefðum átt sigurinn skilið. Við getum bara ekki skorað nema fyrir opnu marki. Þetta er bara þessi óheppni sem fylgir liðinu núna og ég get sko alveg sagt það að þegar þetta fer að falla fyrir okkur geta hin liðin farið að vara sig.“ sagði Bryndís Jóhannesdóttir eftir Ieikinn gegn Breiðablik. MörklBV: Bryndís Jóhannesdóttir, Samantha Britton og Karen Burke. Á mánudagskvöldið spiluðu stelp- umar svo gegn botnliði FH og var aldrei spuming um hvom megin sigurinn endaði. Munurinn á liðunum var mikill og nokkuð ljóst að FH liðið mun falla í haust. En leikir gegn þessum liðum verða að vinnast og helst stórt en ÍB V liðið spilaði ekki vel í leiknum. Sérstaklega var seinni hálfleikur slakur, en staðan í hálfleik var 5-0 og líklega mjög erfitt að halda fullri einbeitingu í 90 mínútur gegn jafn slöku liði og FH. Sigurinn var þó f minna lagi miðaðvið getu Iiðanna, 7- 0, sannfærandi en ÍBV sýndi á köflum veikleika sem virðast koma fram gegn lakari liðum og úr því verður að bæta. Elena Einisdóttir var ánægð með sigurinn í leikslok. „Þetta var ágætis sigur hjá okkur. Við ætluðum að skora fleiri mörk í seinni hálfleik en misstum einbeit- inguna og því tókst okkur aðeins að skora tvisvar hjá þeim í seinni hálfleik. Núna tel ég að við séum úr leik í deildinni en næsti leikur hjá okkur er í bikamum og við ætlum okkur stóra hluti þar.“ TretTir ík ITÓttil. Jafntefli hjá KFS Toppslagur var í 3. deildinni á þriðjudaginn þegar KFS tók á móti Haukum á Helgafellsvellinum. Fyrir leikinn var KFS í fjórða sæti með tíu stig, einu stigi á eftir hinum liðunum fyrir ofan en með leik til góða. Haukar vom í sömu spomm og KFS með tíu stig og því var búist við hörkuleik. Sú varð einmitt raunin en hvomgu liðinu tókst að tryggja sér sigurinn í seinni hálfleik eftir að KFS hafði komist yfir en Haukar jafnað. Sigurður Ingi Ingason aðstoðarþjálfari KFS sagði eftir leikinn að KFS hefði hæglega getað tryggt sér sigurinn. „Við fáum eitt eða tvö alger dauðafæri og svo áttum við að fá víti en dómarinn færði brotið út fyrir teig. Annars er það jákvæða við þennan leik að við töpuðum honum ekki en það hefði sett stórt strik í reikninginn upp á fram- haldið.“ Mark KFS: Dragan Manjolovic Jafntefli í botnbar- áttunni hjá 3. flokki Þriðji flokkur karla tók á móti Fylkismönnum í sannkölluðum botnslag. Bæði lið sóttu nokkuð í iyrri hálfleik en það vom Eyjamenn sem komust yfir um hálfleikinn miðjan og þar við sat í leikhléi. Fylkismenn byijuðu svo seinni hálfleikinn betur og jöfnuðu en þá tóku leikmenn ÍBV góðan sprett og skomðu tvö mörk gegn einu marki Fylkismanna og staðan 3-2. Fylkismenn sóttu svo nokkuð fast að marki IBV og uppskám mark þegar aðeins níu mínútur vom eftir. IBV fékk svo kjörið tækifæri á að skora sigurmarkið á lokasekúnd- unum en færið rann út í sandinn og liðin skildujöfn. [ gærkvöldi í gærkvöldi fór fram leikur ÍBV og Leifturs í 16 liða úrslitum Bikar- keppni KSÍ. Leikurinn fór fram fyrir norðan og vom úrslit ekki ljós þegar blaðið fór í prentun. Mistök Vegna mistaka féll niður í síðasta blaði umfjöllun um leik Stjömunnar og ÍBV í Landssímadeild kvenna sem háður var 27. júní sl. og em hlutaðeigendur beðnir afsökunar á því. HÚSEY BYGGINGAVÖRUVERSLUN VESTMANNAEYINGA

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.