Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Side 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Bókvitið
Vitar
Það er best að hefja mál sitt á
kveðju til Guðmundar Eyjólfssonar
Keikógæslumanns fyrir að kasta
sínum bókmenntalegu teningum svo
óvandað að fá upp tvær sexur og gera
mig þar með að vini bókarinnar þessa
vikuna. Þó get ég ekki neitað að mér
er nokkur heiður að þessari til-
nefningu þrátt fyrir allt.
Það eru fá augnablikin sem maður
eyðir í að lesa á þessum árstíma. Þó
er ein bók á náttborðinu og heitir sú
„Bretamir koma“ og er ég að lesa eftir
fremsta megni einn og einn kafla í
henni. Það hefur verið svolítið
skondið þetta hemám á íslandi og em
líklega ekki öll kurl komin til grafar
enn þá hvar hernámið er annars
vegar.
En nú er að styttast í Þjóðhátíð og
þá styttist lfka í Þjóðhátíðarblaðið,
sem er iðulega föngulegur fylgifiskur
þeirrar hátíðar, uppfullt með góðu
efni og fróðleik fornum og nýjum.
Ég læt aldrei hjá líða að verða mér úti
'askana
og hálfvitar
um þetta rit, enda eins sjálfsagt á
Þjóðhátíð og lundi, hvítu tjöldin og
brjóstbirta af ýmsu tagi.
Annað er þó sem líka fylgir
Þjóðhátíð og ég er reyndar með
hugann við, en það er Vitinn, með
stórum staf, eitt glæsilegasta
mannvirki sem gnæfir í Dalnum á
meðan Þjóðhátíðin stendur. Það er
því að mörgu að hyggja. Þar sem
þetta er nú bókaþáttur, þá finnst mér
full ástæða til þess að fenginn verði
góður og vel ritfær maður til að skrifa
sögu þessa merka mannvirkis, enda
ekki seinna vænna á meðan góðra
heimilda nýtur við.
Ég ætla að skora á þá Ævar
Þórisson og Asgeir Þorvaldsson
hvorir tveggja hálfvitar sem ég er að
reyna að nota með mér við vitastörf,
til þess að skrifa næsta bókaþátt. Þá
tveir slíkir leggja saman ætti að geta
komið eitthvað heilvita frá þeim.
Með góðum þökkum fyrir mig og
veittan beina í þessum þætti
Orðspor____ /s*
- Jarðskjálftarnir á dögunum eru mörgum enn í fersku minni.
Ekki hefur farið miklum sögum af tjóni í því jarðskaki öllu í
Eyjum, nema þá á móður náttúru, sem ber nokkur ör eftir.
Nú hafa borist þærfréttirað stórfellt tjón hafi orðið á þúfnavíni
í einni úteyja Vestmannaeyjaklasans. Er tjónið ekki talið í
aurum heldur milljónum eyjakróna. Þeir sem hafa staðið í að
rækta þetta þúfnavín höfðu þó vaðið fyrir neðan sig, því þeir
voru vel tryggðir og fá tjónið bætt hjá Viðlatryggingu.svo Ijóst
er að það verður skálað í þessari ónefndu eyju þrátt fyrir allt.
- Eins og kunnugt er stendur nú yfir sýning á myndverkum
eftir látna listamenn í Eyjum. Þykir framtakið gott og þykir
ekki síður vita á gott. Einni góðri konu varð þó á orði við
opnunina. „Nú er gott að vera dauður listamaður í Eyjum.“
-Meistaramót Vestmannaeyja í golfi hófst á mánudag með
keppni í öldungaflokki. Einn góður og gróinn kylfingur í þeim
hópi varð fyrir því á 14. braut, eftir að hafa slegið fallegt högg
inn á miðja flöt að hundur kom hlaupandi, tók kúluna og hljóp
með hana langan veg upp á hól. Þrátt fyrir að hafa leikið golf
með góðum árangri í hálfa öld, hafði þessi kylfingur aldrei lent
í slíkum kringumstæðum og vissi ekki gjöria hvað taka skyidi
til bragðs. Til að allt væri rétt og löglegt (eins og vera ber í
golfinu) lék hann boltanum þar sem hundurinn hafði skilið við
hann en lék einnig öðrum bolta frá þeim stað á flötinni sem
hann hafði lent. Slíkt er æðruleysi þessa kylfings að atvikið
hafði engin áhrif á hann og hann náði auðveldum fugli með
þeim bolta sem reyndist bæði réttur og löglegur.
Tapsár með eindæmum
Heppnin hefur ekki beiniínis leikið við
kvennalið ÍBV í sumar. Liðið hefur verið
að leika skínandi góða knattspyrnu en
uppskeran ekki í samræmi við það og
jafntefli algeng úrslit í leikjum þar sem
IBVhefði verðskuldað sigur. Ifyrrakvöld legaáblaði.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Eyða henni.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Jón Ólafur Daníels-
son.
Uppáhaldsíþróttamaður? Sergei Bubka er ofar-
kom svo enn eitt jafnteflið en líklega
ásættanlegt gegn KR sem flestir telja
sterkasta liðið í deildinni. Þjálfari ÍBV er
Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn ? Heimir Hallgrímsson.
Fæðingardagur og ár? 10. júní 1967.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Fit Fut,
KFS, Liverpoolklúbbnum og mörgum öðrum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Iþróttir og upptökur
Haralds Halldórssonaraf kvennaleikjum IBV.
Uppáhaldsbók? Sú bók sem ég handfjatla hvað
mestþessa dagana erMótabók KSÍ.
Hvað metur þú mest í fari annarra ? Hreinskilni og
Fjölskylduhagir? Unnustan heitir Iris það að kunna að viðurkenna mistök sín.
Sæmundsdóttir og við eigum soninn
Hallgrím, 4 ára.
Menntun og starf? Stúdent frá FÍV.
Tannlæknirfrá Háskóla íslands og starfa
sem slíkur.
Laun? Misjöfn eftir vinnuálagi.
Bifreið? Ford Escort sem er oftast of
skítugur.
Helsti galli? Tapsármeð eindæmum.
Helsti kostur? Veit það ekki.
Uppáhaldsmatur? Hamborgara-
hryggurinn hennar mömmu
stendur alltaf fyrir sínu.
Versti matur? Hafragrautur (ef
kaila má það mat).
Uppáhaldsdrykkur? Carlsberg.
Uppáhaldstónlist? Brekkusöngur
Árna Johnsen.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að fara í frí með
fjölskyldunni. Það er líka frábær-
lega gaman þegar við Júlli
Hallgríms vinnum þá Þorstein og
Frikka í golfi.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Það fer illa í mig að
tapa, sérstaklega fyrir írisi. Það
hefur reyndar aðeins gerst einu
sinni en mér svíður það enn.
H e i m i r H a 11 g r í m s s o n
er Eyjainaður
vikunnar
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Þegar menn reyna að bæta ímynd sína með þvi'að
sverta aðra, ekki síst samkeppnisaðila. Þetta erþví
miður algengt í íþróttum.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Á íslandi
erþað Herjólfsdalur í fullum skrúða.
Varstu ánægður með að ná jafntefli gegn KR?
Þetta er fyrsta stigið sem IBV tekur af KR í
kvennaboltanum frá upphafi. Einhvers staðar verður
að byrja. Ég hefði viljað vinna leikinn og það var
möguleiki á því en jafntefli er góð
byrjun.
ÍBV er nú í 4. sæti deildarinnar.
Er það ásættanlegt? Ég veit það
ekki en við förum ofar, sjáiði til.
Svo er það Breiðablik í bik-
arnum. Var það á óskalist-
anum? Heimaleikur var það eina
sem við vildum og fengum það.
Síðasti leikur okkar gegn
Breiðabliki sýndi það að ef allar
okkar stelpur leggja sig fram þá er
sigurgegn þeim ekki óraunhæfur.
Eitthvað að lokum? Égvilþakka
öllum þeim sem hafa stutt og styrkt
stelpurnar f ár. Nú eru þrír stórleikir
framundan og vonandi styðja
Eyjamenn við bakið á þeim íþeirri
baráttu sem framundan er.
Nýfæddir 9<f
Vestmannaeyingar
Þann 20. júní eignuðust Anna Lilja Tómasdóttir og Kjartan
Guðmundsson son. Hann vó 16 Vi mörk og var 53 cm að lengd. Hann
er hér á mynd með stóra bróður Tómasi Aroni. Ljósmóðir var
Valgerður Ólafsdóttir
Þann 22. apríl eignuðust Karin Gustafson og Ingimar Andrésson son.
Hann vó 12 merkur og var 49 cm að lengd. Hann hefur verið nefndur
Anton. Fjölskyldan býr í Gautaborg í Svíþjóð.
Á döfmrri 4*
08. -30. júlí Myndlistarsýning lærðra, leikra og látinna listamanna á vegum Sparisjóðs Vestmanna eyja og Veslmannaeyjabæjar í gamla vélasalnum á homi Græðisbraufar og Vesturvegar
10.-lójúlí Meistaramót Vestmannaeyja í golfi, unglingar og öldungar kláruðu á þriðjudag, allir hinir byrjuðu í gær og verða að til laugardags.
15. júlí Sumardjamm. FM 957mætirtil leiks í Eyjum og gusast í sundlauginni frá kl. 13.00- ló.OOog allt í beinni.
15. júlí Skítamótall á Kaffi Tímor
20. júlí Stórleikur IBV - IA í Landssímadeildinni. IBV sigur og ekkert annað
22. júlí Sumarstúlkukeppni í Eyjum haldin á Hölðanum
25. júlí Aðalfundur Herjólfs hf.haldinn um borð í Herjólfi
30. júlí Konungur Noregs afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðhenra Stafkirkjuna, sem afhendir hana biskupi Islands, Kadi Sigurbjömssyni til vígslu. Mikið fjör á Skansinum
4. 5. og 6. ógúst Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma jbv/.