Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlf 2000
Vel heppna
Hátíð í bæ hjá Spbrisjóðnum og VestmBrT
ur
LEIKFÉLAGIÐ mætti með sitt
Götuleikhús og þar bar þennan
eldgleypi hæst.
SUMIR slöppuðu bara af og nutu góða veðursins.
Árlegur Sparisjóðsdagur var á
laugardaginn og hófst hann með
ýmsum uppákomum á Bárustíg í
ágætu veðri.
Sparisjóðurinn hefur í nokkur
ár staðið fyrir útvistardegi á
Bárustíg og miðast hann að mestu
við yngstu kynslóðina. Byrjað var
á krakkahlaupi þar sem krakkar á
aldrinum 8 til 12 ára reyndu með
sér. Krakkar á öllum aldri fengu
tækifæri til að reyna sig í
vítakeppni þar sem Birkir
Kristinsson, markmaður IBV og
landsliðsins, stóð í marki. Þetta
mæltist vel fyrir og nýttu margir
þetta tækifæri og þeir sem náðu að
skora fengu að launum fótbolta.
Götuleikhús Leikfélags
Vestmannaeyja stóð fyrir
uppákomum og síðast en ekki síst
var öllum boðið upp á grillaðar
pylsur og drykk í boði
Sparisjóðsins og var það stjórn og
starfsfólk sem stóð yfir kolunum.
Margt fólk nýtti sér þetta
tækifæri til að sýna sig og sjá aðra,
ekki síst barnafólk sem mætti með
börnin og var ekki annað að sjá en
að allir skemmtu sér hið besta og
nýttu sér þetta ágæta framtak
Sparisjóðsins.
ÞESSAR blómarósir tilheyrðu
götuleikhúsinu.
FORRÁÐAMENN Sparisjóðs-
ins hljóta að vera í skýjunum
yfir mætingunni á útivistar-
daginn.
Skvísu-
sunds-
stuð
Eftir velheppnað goslokaafmæli
1998, þar sem stemmningin náði
hámarki í Skvísundi, hefur síðan
árlega verið efnt þar til
skemmtunar til að minnast
þessara tímamóta.
I ár var hóað saman til skemmt-
unar síðasta laugardagskvöld sem
bærinn, Kaffi Tímor og Pizza 67
stóðu að. Byrjað var með
fjöldasöng í tjaldi við Kaffi Tímor
og í króm við Skvísusund tóku
Guðni í Landlyst og Árni Johnsen
nokkur lög og Lalli og co. héldu
uppi fjöri langt fram á nótt.
Neðsti hluti Heiðarvegar var
einnig lagður undir skemmtunina
þannig að plássið var nóg fyrir þá
fjölmörgu sem mættu. Var kvöldið
að flestu leyti vel heppnað enda
veður hið besta.
HVAÐ er fallegra á bjartri
sumarnótt en ungar og fallegar
stúlkur? Það er a.m.k. álit
ljósmyndara sem hitti þessar
snótir í Skvísusundi.