Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Síða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Laugardagur 15. júlí
Kl. 14.00 Útför Jóns í. Sigurðs-
sonar.
Sunnudagur 16. júlí
Kl. 11.00 Guðsþjónusta með
skím og lofgjörð. Kaffisopi á
eftir.
Miðvikudagur 19. júlí
Kl. 20.00 Opið hús fyrir unglinga
í KFUM&K húsinu.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur - Lilja
Óskarsdóttir flytur okkur Guðs
Orð.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma. Beðið
fyrir landi og þjóð. Fólki er
velkomið að hafa samband, óski
það eftir fyrirbæn af ýmsum toga.
Við leggum öll okkar mál fram
fyrir Guð almáttugan.
Sunnudagur
Kl. 11.00 Vakningarsamkoma
með boðskap. Boðskapurinn er:
Gjörið iðrun, snúið yður!
Endurkoma Jesú Krists er í nánd.
Allir velkomnir í
Hvítasunnukirkjuna.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 15. júlí
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-
1585
Landssímadeild karla: Grindavík 1 - ÍBV 0
Eitt mark í fimm leikjum
ÍBV náði ekki að fylgja eftir góðum
leik í bikarkeppninni þegar liðið fór til
Grindavíkur í 9. umferð Lands-
símadeildarinnar. IBV spilaði illa í
leiknum og urðu lokatölur 1-0 sigur
Grindvíkinga.
Kristinn Jónsson þjálfari IBV var
greinilega mjög ánægður með liðið í
bikarkeppninni því að hann stillti upp
sama byrjunarliði og fyrir norðan.
Ekki virtist það ganga eins vel upp og
þar því fyrri hálfleikur hjá IBV var
mjög slakur og átti liðið varla skot á
mark andstæðinganna. Vamarleikur
liðsins er þó sterkur og hélt hann
liðinu á floti út hálfleikinn.
Seinni hálfleikur var töluvert betri
af hálfu IBV og var settur kraftur í
sóknarleik liðsins. Liðið fékk nokkur
færi, átti m.a. skot í stöng en inn vildi
tuðran ekki frekar en fyrri daginn.
Grindvíkingar áttu nánast aðeins eitt
færi í seinni hálfleik og nýttu það og
tryggðu sér þar með dýrmætann sigur
gegn ÍBV.
IBV hefur aðeins náð að skora 11
mörk í sumar í níu leikjum og ekki
fengið á sig nema sjö mörk. Liðið
hefur unnið tvo leiki, gert fimm
jafntefli og tapað tveimur leikjum. Nú
að lokinni fýrri umferðinni er liðið í 6.
sæti og ekki annað að sjá en að
framundan sé bullandi fallbarátta. Til
að það verði ekki þarf liðið að fara að
skora mörk því af þessum 11 mörkum
komu fimm í leiknum gegn Keflavík í
4. umferð. Síðan hefur liðið aðeins
skorað eitt mark í 1 -1 jafntefli á móti
KR í 8. umferð.
Eins og áður segir er ÍBV í 6. sæti
með 11 stig en á toppnum trónir Fylkir
með 19 stig og KR er með 18 stig.
Það er því útséð með titil í deildinni
þetta árið. Lið sem aðeins nær að
vinna tvo leiki í fyrri umferðinni getur
aldrei átt möguleika. Vonandi verður
gæfan hliðhollari liðinu í bikar-
keppninni þar sem IBV er kontið í
fjögurra liða úrslitin. Fyrsta
vísbendingin um að svo sé er að nú
fékkst heimaleikur þar sem Valsmenn
verða andstæðingamir. Þeir geta verið
sýnd veiði en ekki gefin en heima-
völlurinn gefur ákveðið forskot.
Grindavík 1 - ÍBV 0
ÍBV spilaði 4-5-1:
Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhannes-
son, Kjartan Antonsson, Hlynur
Stefánsson, Páll Almarsson, Goran
Aleksic, Páll Guðmundsson, Momir
Mileta, Hjalti Jónsson, Ingi
Sigurðsson, Jóhann Möller.
Varamenn sem komu inn á: Tómas
Ingi Tómasson, Baldur Bragason,
Steingrímur Jóhannesson.
BIRKIR Kristinsson
markmaður IBV tók þátt í
Sparisjóðsdeginum f.h. sinna
manna. Hann hefur staðið sig
frábærlega í sumar og hefur
aðeins fengið á sig sjö mörk í
deildinni. Það er því ekki við
hann eða vörnina að sakast að
liðið nálgast botninn með
hverjum leiknum.
Bikarkeppni KSÍ: Leiftur 2 ÍBV 4
Jéhann kom Eyjamönnum áfram
Síðastliðin miðvikudag fóru fram
16-liða úrslit í Coca Cola bikar-
keppninni og þurfti karlalið IBV að
fara norður á Ólafsfjörð til að
keppa gegn heimamönnum í Leiftri.
Eins og svo oft áður var IBV mun
betra liðið mestan hluta leiksins en
munurinn nú var að Jóhann Möller var
að eiga sinn besta leik fyrir IBV frá
því að hann gekk í raðir liðsins. Það
tók Jóhann aðeins um fimm mínútur
að skora fyrsta mark leiksins, en
Momir Mileta bætti svo öðru við úr
víti og staðan í leikhléi 2-0. Jóhann
bætti svo tveimur mörkum við í seinni
hálfleik, auk þess að eiga skalla í
stöng, en síðustu tíu mínútumar greip
um sig kæruleysi hjá ÍBV og heima-
menn náðu að setja tvö mörk.
Lokatölur urðu því 2-4 fyrir ÍBV og
komst liðið þar með í átta liða úrslit
bikarkeppninnar og gæti bjargað slöku
tímabili í deildinni með sigri í
bikarkeppninni.
ÍBV spilaði 4-4-2: Birkir Kristinsson,
Hjalti Jóhannesson, Kjartan Antons-
son, Hlynur Stefánsson, Páll
Almarsson, Momir Mileta, Hjalti
Jónsson, Páll Guðmundsson, Ingi
Sigurðsson. Goran Aleksic, Jóhann
Möller.
Mörk ÍBV: Jóhann Möller 3, Momir
Mileta.
IBV mæti Val á heimavelli í átta
liða úrslitunum og fer leikurinn fram á
Hásteinsvelli um miðjan ágúst.
PÁLL Guðmundsson
stóð uppi sem
sigurvegari þegar ÍBV
lagði hans gamla lið,
Leiftur.
Bikarkeppni KSÍ: ÍBV 4 - Þór/KA 1
Eiga harma að hefna
-þegar þær mæta Breiðabliki í undanúrslitum
Kvennalið ÍBV mætti sameiginlegu
liði Þórs og KA frá Akureyri og
vannst öruggur sigur.
ÍBV liðið var mun betri aðilinn í
leiknum og hefði án efa getað skorað
mun fleiri mörk en liðið gerði.
Lokatölur urðu 4-1, en staðan í hálf-
leik var 2-0.
Stelpumar munu svo mæta
Breiðabliki á Hásteinsvelli í undan-
úrslitum, en í hinum undanúrslita-
leiknum mætast KR og Valur og má
því segja að fjögur bestu liðin hafi
komist áfram. Leikmenn liðsins hafa
haft það á orði að nú þegar deildin er
nánast búin fyrir liðið þá ætli þær sér
að fara alla leið í bikarnum og sýna
landsmönnum hvað í liðinu býr.
ÍBV mætti Breiðabliki í
undanúrslitum bikarkeppninnar 1998
á heimavelli en tapaði þá 1-4.
Mörk IBV: Bryndís Jóhannesdóttir,
Kelly Shimmin, Karen Burke og
Svetlana Balinskaya.
Ynsri flokkarnir
Þriðji flokkur IBV tók á fóstudaginn á móti Frömurum og fór leikurinn
fram á Þórsvelli. Leikurinn var spennandi framan af og þegar rétt um
tíu mínútur voru til leiksloka var staðan jöfn 1-1. En þá hrundi leikur
IBV og gestirnir sigruðu 1-4.
A mánudaginn tóku strákamir svo á móti Þór frá Akureyri, en Þór var fýrir
leikinn með eitt stig á botninum eins og ÍBV. Leikurinn fór fram á
Hásteinsvellinum og var hann nokkuð harður. Gestimir komust yfir 0-1 í fýrri
hálfleik en eyjapeyjar byrjuðu seinni hálfleik mjög vel og skomðu fljótlega.
Nokkuð var farið að draga af leikmönnum beggja liða undir lokin en Þórsarar
náðu skyndisókn eftir nánast stöðuga sókn IBV, og tryggðu sér sigurinn tíu
mínútum fýrir leikslok.
Þriðji flokkur hefur undir stjóm Bjöms Elíassonar tekið miklum framfómm
í sumar, hópurinn er þunnskipaður en Bjössi er snillingur í að búa til
frambærilega leikmenn sem geta skilað árangri. Það verður þó þungur róður
hjá strákunum það sem eftir lifir sumars, liðið er í neðsta sæti síns riðils og
verður því að klára þá leiki sem eftir em ef þeir ætla að halda sér þar.