Fréttir - Eyjafréttir - 07.09.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 7. september 2000
Hitað upp fyrir næsta
leiktímabil í kirkjunni
-um leið og verður fagnað fjórum titlum IBV-stúlkna
Súnýbreytni verður í staríl
Landakirkju í messunni á
sunnudaginn sem verður kl. 11.00.
Yfirskriftin er handboltamessa en
hún nær einnig til fótboltans því
þarna á að fagna frábærum
árangri ÍBV-kvenna í árinu og
leggja grunninn að áframhaldandi
velgengni á komandi tímabili í
handboltanum.
„Við fógnum fjórum titlum í
kvennaboltanum og hitum upp
fyrir veturinn,“ segir Bára
Friðriksdóttir prestur Landa-
kirkju sem messar á sunnudaginn.
„Handboltameyjar í fjórða flokki
og meistaraflokki ásamt
fótboltapæjum í öðrum og fimmta
flokki eru sérstaklega hvattar til að
mæta ásamt foreldrum og
stuðningsliði en þess utan eru allir
hjartanlega velkomnir. Stelpur í
handboltanum munu taka þátt í
helgihaldinu. Kirkjan vill mæta
íþróttahreyfingunni og vinna með
henni og þetta er einn liður í því,“
sagði Bára.
Sýnt frá leiknum í aðal
fréttatíma RÚV kl. 19.00
Ekki allt dýrast í
Eyjum
Athugull listunnandi veitti því
athygli að hægt er að gera hagstæð
innkaup í gjafavöru í Vestmanna-
eyjuni.
I grein í tímaritinu Hús og
Hýbýli er sagt frá styttu sem kailast
Engillinn og kostar 490 krónur í
versluninni Blóm er list í
Kópavogi. Okkar maður sá
samskonar styttu í Eyjablómi hjá
honum Eiríki og komst að því að
þar kostar Engillinn 425 krónur.
Bæjarstjórnar-
in um
keppni
helg
ina
Ekkert innanfélagsmót verður um
þessa helgi í golfinu. Aftur á móti
verða tvö fyrirtækjamót haldin og á
laugardag verður Bæjarstjómar-
keppnin haldin. Þá er fulltrúum
bæjarstjómar boðið til leiks og fá
þeir með sér til halds og trausts
vana félaga úr GV.
STELPURNAR í meistaraflokki urðu íslandsmeistarar 2000.
Handboltamessa fyrir stelpurnar í Landakirkju:
Sjö sektaðir í
umferðinni
Sjö ökumenn voru sektaðir vegna
umferðarlagabrota í vikunni. Fimm
þeirra óku yfir leyfilegum há-
markshraða og tveir höfðu ekki
réttindi til að stjóma léttu bifhjóli.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt
lögreglu. Á fimmtudag urðu
nokkrar skemmdir á bifreið sem
ekið var á skemmdan rennustein á
Ásavegi. Þá varð árekstur tveggja
bfia í Foldahrauni en tjón minni
háttar.
Virðið gangbrautarréttinn
Lögregla vill árétta að það er skylda
ökumanns að stöðva bifreið sína
við gangbraut ef gangandi veg-
farandi er að fara yfir götuna. Þá
skal bent á að framúrakstur við
gangbraut eða á henni er bannaður
enda um hættulegt athæfí að ræða.
Ökumenn ertt sérstakiega beðnir
um að aka varlega í nágrenni
skólanna.
Margur Eyjamaðurinn settist fyrir framan 22.00 fréttir
Ríkissjónvarpsins á þriðjudagskvöldið í þeirri vona að
mörkin úr bikarleik ÍBV og Fylkis yrðu sýnd.
Vakti það mikil vonbrigði að svo varð ekki en stjóm
knattspyrnudeildar ÍBV mun hafa ætlað að skoða mörkin
í téðum fréttatíma, en hún situr og bíður enn og vonar að
mörkin sýnd verði senn. Að sögn Gunnlaugs Þórs
Pálssonar dagskrárstjóra á íþróttadeild RÚV var ekki sýnt
frá leiknum í 22.00 fréttatímanum vegna þess að leikurinn
var afgreiddur í lok aðalfréttatíma sjónvarpsins klukkan
19.00. „Þá vom öll mörkin sýnd og sagt frá dramatískum
lokamínútum leiksins. Hins vegar má segja mistök af
okkar hálfu að greina að minnsta kosti ekki frá úrslitum
leiksins í 22.00 fréttatímanum," sagði Gunnlaugur Páll.
SJÓNVARPSSTÖÐIN Sýn sjónvarpaði beint frá leiknum og nýtti sér ljósleiðarann sem ÍBV hafði
forgöngu um að yrði lagður ásamt Landssímanum.
200 þúsund í
haustþing kennara
Sigurður R. Símonarson, skóla-
málafulltrúi, lagði ffam bréf til
bæjarráðs á síðasta fundi þess. Þar
er óskað efiir aukafjárveitingu að
upphæð 200 þús. kr. vegna haust-
þings kennara á Suðurlandi en það
verður haldið á Flúðum 2S.-29.
sept. nk. Bæjarráð samþykkti
erindið og verður gert ráð fyrir
þessari upphæð í endurskoðaðri
fjárhagsáætlun.
Mannaróðningar
A sfðasta fundi félagsmálaráðs, 30.
ágúst sl„ vtu' gengið frá mannaráðn-
ingunt. Samþykkt var að ráða
Tómas Sveinsson í starf mat-
reiðslumeistara á Hraunbúðum. Þá
var samþykkt að ráða Sigþóru
Guðmundsdóttur í starf tómstunda-
og forvamafulltrúa Vestmanna-
eyjabæjar. Ein umsókn barst um
starf forstöðumanns Athvarfs, frá
Jónu Ólafsdóttur, kennara. Félags-
málaráð samþykkti ráðningu
hennar.
Vilja nefnd um
málefni ungs fólks
Og enn var rætt um ungt fólk á
fundi bæjarráðs á mánudag því að
tillaga barst frá fulltrúum minni-
hluta bæjarstjómar þess efnis að sett
verði á stofn nefnd um málefni ungs
fólks. Nefndin verði bæjaryfir-
völdum til ráðgjafar um helstu
málefni sem snerta ungt fólk og
hagsmuni þess. Þrír fulltrúar verði
tilnefndir í nefndina, tveir frá
bæjarstjórn og einn frá Nem-
endafélagi Framhaldsskólans, jafn-
margir til vara, tilnefndir af sömu
aðilum. Þessari tillögu var vísað til
afgreiðslu bæjarstjómar.
Rólegheit
190 færslur voru £ dagbók lögreglu
í síðustu viku eða svipað og í
vikunni á undan. Áð sögn
lögreglumanna er rólegt yfir
vötnunum um þessar mundir.
Síma, stiga og
múrefni stolið
Þrír þjófnaðir voru kærðir til lög-
reglu í vikunni. Á fimmtudag var
tilkynnt um jtjófnað á Nokia
farsíma sem stolið var á Naust-
hamarsbryggju. Á laugardag vtir
lilkynnt að álstiga hefði verið stolið
frá Smáragötu 10 en stiginn hafði
legið á lóð hússins. Þá var lögð
fram kæra vegna þjófnaðar á múr-
viðgerðarefni sem geymt var við
Litlagerði en stolið var 5 - 8 pokum
af því. Þessi þjófnaður mun hafa átt
sér stað um síðustu helgi. Lögregla
óskar eftir upplýsingum frá þeim
sem kynnu að vita eitthvað um
þessi þjófnaðttrmál.
Merkjasala Krabba-
varnar um helgina
Ágætu Eyjabúar!
Nú er komið að hinni árlegu
merkjasölu Krabbameinsfélags
íslands. Dagana 7. til 10. september
munum við ganga í hús og biðjum
við ykkur að taka vel á móti sölu-
fólki sem ávallt fytr.
Um leið minnum við á að 75% af
sölunni renna í sjóð félagsins okkar.
FRETTIR
Útgefandh Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn, FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.