Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Síða 13
Fimmtudagur 28. september 2000
Fréttir
13
Vestnorden 15. til 16. september:
Verðum að fylgja eftir
þeim áhuga sem
ferðaskrifstofur sýna
Vestnorden er sölusýning og kaup-
stefna fyrir aðila í ferðaþjónustu á
íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Kaupstefnan var haldin í Laugar-
dalshöllinni í Reykjavík dagana 15.
og 16. september og voru aðilar í
ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum
með tvo bása á staðnum.
Jóhann Heiðmundsson, hótelstjóri á
Þórshamri, var á staðnum. Hann
sagði að kaupendur kæmu alls staðar
að úr heiminum til þess að skoða það
sem í boði væri í ferðaþjónustu
þessara aðila. „Það em mismargir
kaupendur sem koma og fer það
nokkuð eftir því hvar kaupstefnan er
haldin hveiju sinni. Nú í ár var hún
haldin á Islandi, en í fyrra í Færeyjum
og að ári munu þessir aðilar hittast á
Grænlandi og svo aftur á Islandi.
Island heldur kaupstefnuna tvisvar á
milli þess sem Færeyingar og
Grænlendingar halda hana, vegna þess
að Island hefur mestu gistimöguleika
upp á að bjóða og flestir kaupendur
koma því til íslands. Þar af leiðandi er
Vestnordensýningin hverju sinni
einna stærst á Islandi.“
Jóhann segir að hagsmunaaðilar
ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum
taki bása á leigu og kynni þar Vest-
mannaeyjar sem eina heild og sem
kost íyrir ferðamenn. „Viðerumekki
að kynna nein ákveðin fyrirtæki, þó að
einhveijir hafi haldið því frarn. Þama
er öllum bæklingum safnað saman
sem gefnir em út í Vestmannaeyjum,
með öllum þeim aðilum. og sama
hvaða þjónustu þeir em að bjóða.
Þessir bæklingar em settir í möppu og
þeir sem koma í básinn til okkar til að
fá upplýsingar um Vestmannaeyjar, fá
hana afhenta. Ef meiri áhugi kviknar,
er farið yfir efni hennar með við-
komandi, þannig að það verður enginn
út undan sem er í ferðaþjónustu í
Eyjum.“
Jóhann segir að viðtökumar nú hafi
verið ágætar hvað Vestmannaeyjar
snertir og að menn séu mjög sáttir effir
kynninguna. „Sjálf sýningin er opin
frá 10.00 til 17.00 fyrri daginn og frá
09.00 til 13.00 seinni daginn. Eftir
klukkan 13.00 seinni daginn notarfólk
tímann til þess að ganga á milli og
spjalla. En við getum verið nokkuð
sátt við okkar hlutskipti að fá þrjátíu
og fimm til fjömtíu aðila í básinn til
Jóhann Hciðmundsson hótel-
stjóri á Þórshamri.
okkar og fá upplýsingar. Á þessa
sýningu komu einir fimm aðilar
sérstaklega frá ferðaskrifstofum til
þess að forvitnast um Vestmanna-
eyjar.“
Jóhann bendir einnig á að menn
megi ekki gleyma að fylgja eftir
áhuganum eftir svona sýningu. „Þó
að sýningunni sé lokið, þá er okkar
starfi ekki lokið. Við verðum að halda
utan um þann áhuga sem okkur var
sýndur þama og það gemm við með
því að vera í sambandi við við-
komandi og forvitnast um hvort
ferðaskrifstofuna vantar nánari upp-
lýsingar. Þannig að við verðum að
láta vita að við séum lifandi og enn þá
til.“
Jóhann segir að sumarið í ár hafi
verið frekar skrítið ef litið er til fjölda
ferðamanna til Eyja. „Það hefur
vantað lausatraffíkina, en það er hins
vegar ekkert einsdæmi fyrir
Vestmannaeyjar, heldur víðar á lands-
byggðinni. Hana vantar ekki á
Flugleiðahótelin og þau hafa ekki
kvartað, enda mötuð af Flugleiðum.
Hótel í einkarekstri hafa því átt undir
högg að sækja víðast hvar á landinu.
Þegar Magnús Oddson, ferðamála-
stjóri, er að tala um 20 til 30 prósent
aukningu ferðamanna á milli ára, sem
hann er mjög duglegur við að auglýsa
í fjölmiðlum, er hann ekki að gefa
rétta mynd af stöðunni. Það verður að
skilgreina hvar þessi aukning liggur,
hvort hún er eingöngu í Bláa lóninu,
eða á Reykjavíkursvæðinu. Það þýðir
ekkert að vera að blekkja landsbyggð-
ina á hveiju ári um einhveija aukningu
sem ekki skilar sér þangað. Ef þessi
aukning er eingöngu í Reykjavík, þá
er verið að bjóða upp á ódýrari tveggja
til þriggja daga ferðir. Þar er
fullbókað og allt að 100 prósent
nýting. Hópar, sem em að reyna að
komast til Islands í viku, og fá ekki
gistingu í tvær eða þrjár nætur í
Reykjavík, en er boðin gisting til að
mynda í Borgarfirðinum, Selfossi eða
Hveragerði, segja þá nei og vilja fá
tvær til þijár nætur í Reykjavík og svo
þaðan út á land, þannig að ef gestur
fær ekki gistingu í Reykjavík kemur
hann ekki til Islands, svo einfalt er
það."
í ljósi þessa, hvemig metur þú þá
árangurinn af þessari kaupstefnu og
framtíð ferðaþjónustu í Eyjum. „Það
er oft klifað á því að ekkert sé gert í
ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum og
að menn sýni henni engan áhuga. En
við skulum ekki gleyma því sem hefur
gerst hér og er að gerast. Hér er til að
mynda glæsilegur golfvöllur, sem þarf
að markaðssetja mun betur. Upp-
byggingin á Skansinum kemur til með
að verða glæsilegt svæði og til
mikillar fyrirmyndar og þeir sem að
stóðu eiga hrós skilið. Héma er verið
að byggja annan íþróttasal sem skapar
meiri möguleika til að halda ýmis
fþróttamót. Einnig skulum við ekki
gleyma því sem rís einna hæst núna
og er nýja ráðstefnu- og fundahúsið á
vatnstankinum sem ég segi að sé
punkturinn yfir i-ið í okkar upp-
byggingu til þess að fá fólk til
Vestmannaeyja og ég ætla að vona að
þetta hús rísi fljótt og vel og verði
öllum til farsældar."
Jóhann segir að með nýju
ráðstefnuhúsi geti opnast miklir
möguleikar til að lengja þann tíma
sem ferðamenn og hópar geti komið
til Eyja. „Með þessari byggingu er
hægt að beina áherslunum að öðrum
markhópi án þess að um beina
lengingu ferðamannatímans sé að
ræða. Það mun hjálpa þeim sem em
með gistingu í Eyjum, en það er mjög
slök nýting á gistingu í Eyjum utan
háannatímans á sumrin,“ sagði
Jóhann.
Úslitaleikur Kúkakóluhikarsins var leikinn á Laugar-
dalsvellinuni á sunnudaginn. Eyjamenn, sem ekki áttu
heimangengt, horfðu margir hverjir á leikinn á Sýn á Mánahar
og Lundanum. Hér eru svipmyndir frá stemmningunni og ein
frá upphitun í Laugardalshöllinni.
Frekar áhyggjuf ullir rýndu nienn á skjáina á Lundanum.
Og ekki var síður áhyggjusvipurinn á Mánabarsmönnum.
Þessir stuðningsnienn ÍBV hituðu upp í Laugardalshöllinn.
Ráðstefnuhús í Eyjum
vakti mikla athygli
Auróra Friðriksdóttir, ferðamála-
fulltrúi Vestmannaeyjabæjar, var
að fara í fjórða sinn á Vestnorden,
en þetta er í fimmtánda skipti sem
kaupstefnan er haldin og öll þau ár
hafa Eyjar átt fulltrúa þar.
Auróra segir að Vestnorden hafi
skilað mjög góðum árangri, enda væri
ekki verið að halda Vestnorden í
fimmtánda skipti ef svo væri ekki.
Hún segir að hún fari á Vestnorden
sem fulltrúi allra Vestmannaeyja og til
að kynna þær með öllu sem
ferðamönnum stendur til boða. „Það
fóru sex fyrirtæki sem starfa í ferða-
þjónustunni í Eyjum á kaupstefnuna
ásamt mér. Hugmyndin á bak við
Vestnorden og þátttöku okkar þar er
að kynna Vestmannaeyjar sem
ferðamannastað og hvaða möguleikar
em í boði íyrir ferðamenn.“
Auróra segir að bæði sé kynning á
þeirri þjónustu sem fyrir er í Eyjum og
ekki síður á nýjungum í ferða-
þjónustunni. „Af nýjungum sem við
kynntum var Skanssvæðið og Staf-
kirkjan, sem var okkar tromp. Einnig
kynntum við nýja gistimöguleika eins
og Eyjabústaðina og ekki má gleyma
ráðstefnuhúsinu á tankinum, sem vakti
töluverða athygli, sérstaklega inn-
lendra aðila, en þegar það er risið
getum við tekið á móti minni ráð-
stefnum. Bygginguafþessutagihefur
vantað í Eyjum og er nauðsynleg í
nútíma samfélagi. I nútíma samfélagi
em auknar kröfur og þær þýða einnig
meiri lúxus.“
Hvemig fannst þér viðtökumar vera
íheild?
„Mér fannst viðtökumar vera þær
bestu frá því ég fór að fara á Vest-
norden. Við fengum marga inn á
básana hjá okkur, jafnt innlenda sem
erlenda aðila en fyrirkomulagið á
þessu er þannig að viðtöl eru pöntuð
fyrirfram, en einnig vom aðilar að
koma við og þeir sýndu okkur mikinn
áhuga.“
Þú nefndir auknar kröfur og lúxus,
em Vestmannaeyingar kannski að fara
inn á dýrari ferðamenn?
„Við emm að sjálfsögðu að hugsa
um alla ferðamenn, hvort sem þeir em
innlendir eða erlendir, þannig að það
er ekki verið að hugsa um neina
ákveðna hópa sérstaklega. Hins vegar
vakti það nokkra athygli hversu
ferðaskrifstofur í Skandinavíu em að
sýna okkur aukinn áhuga, en önnur
lönd Evrópu vora þama inni í
myndinni líka. Ein ferðaskrifstofa,
sem hefur Frakka á sínum snæmm,
setti Vestmannaeyjar inn á kortið hjá
sér núna, en reyndar kom eigandi
hennar til Vestmannaeyja í haust. En
varðandi ferðaþjónustuna almennt, þá
er mjög gott ef Vestmannaeyjar em að
halda sínum hlut. Það skiptir máli að
verabjartsýnníþessummálum. Við
megum hins vegar ekki álíta að
sjálfgefið sé að ferðamenn komi til
Auróra Friðriksdóttir ferða-
málafulltrúi.
Eyja. Við verðum alltaf að vera
sýnileg og sýna að við séum til,“ sagði
Áuróra.
Þess má geta að Auróra var að fara
á ferðamálaráðstefnu á Isafirði síðast-
liðinn þriðjudag, þar sem fyrir átti að
taka ferðaþjónustu á landsbyggðinni.