Fréttir - Eyjafréttir - 16.11.2000, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 16. nóvember 2000
Bókvitið
'askana
Lögfræðimerking skuldabréfa og
vanskilalistar eru spennandi lesefni
Ég vil byrja á að þakka Kolbrúnu
Kristjánsdóttur kærlega fyrir að muna
eftir mér í þessari bókakynningu.
Ég hef vaknað á hverjum fimmlu-
dagsmorgni fyrir allar aldir til að vera
sem fyrstur til að lesa Fréttir og hef alltaf
lifað í voninni, um að mér yrði boðin
þátttaka. Nú er sá draumur loks orðinn
að veruleika, og vil ég þakka Kolbrúnu
kærlega fyrir það.
Ég verð nú samt að tjá mig aðeins um
bókalestur Kolbrúnar. Ég veit fyrir víst
(Elías sagði mér það) að það er ekki
Kolbrún sem les þessar bækur heldur les
Elías fyrir Kolbrúnu (það held ég að sé
gáfulegur lestur). Uppáhaldsbókin henn-
ar Kollu mun vera bókin 3 litlar Ijúskur
sem er ævintýrabók fyrir böm yngri en 6
ára.
Ég er mjög langt frá því að vera
bókaormur og les ekki mikið fyrir utan
allt það skemmtilega lesefni sem berst til
mín í vinnunni. s.s. lögfræðimerking
skuldabréfa, horfur á hlutabréfamarkaði,
vanskilalisti fyrir hitt og þetta og fleira
spennandi lestrarefni.
En bókin á náttborðinu hjá mér þessa
vikuna (og reyndar undanfamar vikur) er
bókin Óvinurinn eftir Desmond Bagley,
sem er mjög skemmtileg og vel skrifuð
bók, dæmigerð njósna og spennusaga,
eins og þær gerast bestar. Annars hefur
Sigurður Friðriksson
er bókaunnandi vikunnar
Sven Hazel alltaf verið minn uppá-
haldsrithöfundur, en hann skrifaði eigin
reynslusögur úr síðari heimsstyijöldinni,
þar sem hann barðist fyrir Þýskaland, og
lýsir á hispurslausan hátt, og oft með
miklum húmor, því sem þar gerðist bæði
á vígvellinum sem og annars staðar.
Eins hef ég mjög gaman af að lesa
„ Útkallsbœkumar, “ þar sem farið er í
saumana á björgunarafrekum þeim sem
þyrluflugmenn landhelgisgæslunnar og
fleiri hafa unnið.
Þá er alltaf ýtt að manni jöfnum hönd-
um, af yngsta íjölskyldumeðlimnum,
bókum eins og Dísa litla og Jói mjói
(væntanlega ekki Jói P.) og það eru
spennandi lesningar.
Þetta er nú það helsta sem ég les og
hef verið að lesa upp á síðkastið.
En þá er komið að því að finna næsta
bókaorm. Ég hef orðið fyrir talsverðu
símaónæði eftir að það var skorað á mig
sl. fimmtudag, af vinahópi mínum sem
hefur grátbeðið mig um að velja sig í
næsta blað. Þar hefur Hermann nokkur
Long farið fremstur og reyndar gekk það
svo langt að hann sagðist ætla að sitja
fyrir utan hjá mér þar til ég myndi velja
hann. Ég hef nú látið undan þessum
mikla þrýstingi frá honum og ætla að
velja hann sem næsta bókaorm Frétta.
Ég veit að hann lumar á ýmsum snilldar-
verkum á náttborðinu hjá sér eins og td.
verðlaunabókin Slúðrað í Olískaffi og
Letilíf jámiðnaðarmannsins, tvær topp-
bækur sem allir ættu að lesa.
Styttra í bakaríið
Um síðustu helgi flutti Tölvurt í nýtt húsnæði að
Strandvegi 51. Kristín Garðarsdóttir, starís-
maður Tölvunar, er líklega sá Vestmanna-
eyingur sem lengst hefur unnið við tölvur á
lífsleiðinni. Hún byrjaði íþeim bransa fyrir um
30 árum, hefur fjórum sinnum skipt um vinnu-
stað en alltaf verið við Strandveginn norðan-
verðan þar til á laugardag þegar hún fékk
nýjan vinnustað, við Strandveg að sunnan.
Kristín er Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? Kristín Garðarsdóttir.
Fæðingardagur og ár? 2. febrúar 1953.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Á iausuí
Menntun og starf? Gagnfræðingur. Erenní
skóla lífsins og vinn í Tölvun.
Laun? ÞóaðDavíð sé fínnpeyiþá erég ekki
í sjálfboðavinnu.
Bifreið? Toyota Corolla.
Helsti galli? Vinnufélagarnir þora ekki að
segja mérþað.
Helsti kostur? Ómar segir að það sé áreiðanleiki.
Uppáhaldsmatur? Beinlausir fuglar.
Versti matur? Súrí, úldið og myglað (þorramatur).
Uppáhaldsdrykkur? Vatn.
Uppáhaldstónlist? Tina Turner er alltaf góð.
Hvað erþað skemmtilegasta sem þú gerir? Að ferðast.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Taka til.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón íhappdrætti?
Taka mérgott fríog sigla niöur Grand Canyon ígúmmíbát.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn. Annars var alltaf
gaman að spila badminton við Gauja bæjó.
Uppáhaldsíþróttamaður? Vala Flosadóttir.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Kroppavina-
félaginu Fjallhressar og fílhraustar.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Bíómyndir.
Uppáhaldsbók? Lækningamáttur líkamans, eftirAndrew
Weil, hafði hressandi áhrif.
Hvað meturþú mest ífariannarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Óheiðarleiki og óstundvísi.
Fallegasti staðursemþú hefur komið á ? Gamd Canyon
við sólarupprás, Ofanleitishamar við sólarlag, eða Lóns-
öræfin eða..
Hvernig var fyrsta tölvan sem þú vannst við? Það var
Olivetti bókhaldsvél sem þótti stórmerkileg á þeim tíma.
Hvernig myndir þú lýsa þeim breytingum sem orðið
hafa á tölvum og tölvuvinnslu á þeim tíma sem liðinn er
síðan þú byrjaðir íþessu? Minnitæki, meiriafköst, færra
fólk.
Eiga tölvur eftir að leysa mannfólkið alfarið af hólmi?
Nei, það væri samt fínt að fá eina í að taka til.
Hvernig er að vera flutt suður fyrir Strandveg?
Mérlístbara veláþað, styttra í bakaríið.
Eitthvað að lokum? Já, þessi fyrsta tölva sem ég vann
við, hafði tvö prógrömm og til að skipta á milli þeirra urðum
við að nota skrúfjárn og skipta um stærðar stykki á vélinni.
Þá var svo mikill hávaði í henni að við urðum að nota
heyrnarhlífar.
? <f
Vestmannaeyingar
Þann 22. ágúst 2000 eignuðust stúlku Lára Skæringsdóttir og
Þórarinn Ólason. Hún vó 13 merkur og var 51 sm og hefur fengið
nafnið Thelma Lind. A myndinni með Thelmu Lind eru systkini
hennar Ingi Þór og Sigrún Gyða. Heimili þeirra er í Vestmanna-
eyjum. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Leiðrétting
I síðasta nýburaþætti Frétta birtum við mynd af systkynunum Bergþóru og
Jóni Berg Sigurðarbörnum en fórum rangt með nafn föðurins sem heitir
Sigurður Þór Símonarson. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
Orðspor______________________________
Skansinn fluttur?
Engu líkara er en Skansinn hafi verið fluttur til Reykjavíkur. Nýlegur bæklingur
gefinn út af Byggðasafni Vestmannaeyja, eða því sem eftir lifir af þeirri stofnun,
þykir sýna, svo ekki verður um villst, sofandahátt bæjaryfirvalda er kemur að
atvinnulífi í Eyjum. Bæklingurinn, sem hvorki er stór né yfirgripsmikill, er ekki
aðeins hannaður í Reykjavík, prentaður í Reykjavík heldur er hann merktur
Reykjavík, menningarborg Evrópu árið 2000!!!!
Þetta þykir enn eitt dæmið um að við emm sjálfum okkur verstir í atvinnu- og
byggðamálum, Vestmannaeyingar.
Ekki er kannski von á góðu þar sem ekki eru orginal heimamenn í hverju sæti í
safnahúsinu.
Af sviðaveislu
Bumbugengið, gönguklúbburinn íturvaxni, mun hafa ætlað að halda sviðaveislu
nýlega. Gengið hefur innanborðs athafnasama ntenn og því mku til ekki færri
en þrír meðlimir og pöntuðu hver 25 sviðahausa en geta má þess að gengið
inniheldur fimm þegar mest er. Enginn meðlima mun þó hafa treyst sér í
eldamennskuna og því eiga þeir BG menn svið á lager samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Á döfinni 4*
Nóvember
16. Ingibjörg Hafstað kennsluráðgjafi í nýbúafræðslu heldur fund
með foreldrum nýbúa í leik- og grunnskólum.
Haldið í sal Barnaskólans kl. 15.30
16. Dagur islenskrar tungu. Ljóða- og þululestur á Bókasafninu
fyrir börn kl. 18. Félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja lesa.
16. Bingó í Þórsheimilinu kl. 20.30.
18. Aðalfundur Norðlendingafélagsins á Lanternu kl.14.00
18. Lokahóf mfl. karla í knattspyrnu í Týsheimilinu kl. 19.30
19. þjóðlagamessa í Landakirkju kl. 20.00.
Með söng og í stuði, göngum við með Cuði.
22. Tónleikar Todmobile í Samkomuhúsinu kl.2l.
23. Súpufundur Framsóknarflokksins á Hótel Þórshamri kl. 12.30
25. 10 ára afmælisfagnaður og aðalfundur Félags hjartasjúklinga
í Vestmannaeyjum kl. 14 í Akóges.
25. Styrktarfélagatónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja
í Vélasalnum við hlið Tónlistarskólans kl. 16.
Desember
13. Jólatónleikar Samkórsins. Ljúf tónlist á aðventu.