Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 7. desember 2000 Stefnt að vínveit- ingum íHerjólfi A síðasta fundi bæjarráðs var lekið f'yrir bréf frá sýslumanninum í Vest- mannaeyjum en þar var leitað umsagnar um erindi Samskipa fyrir veitingaleyfi um borð í Herjólfi. Þetta erindi var samþykkt í bæjar- ráði. Björgvin Amaldsson, hjá Samskipum, segir að hér hafi aðeins verið sótt um almennt veitinga- og gistileyfi fyrir skipið en slíkt þurti að gera þegar nýir rekstraraðilar taki við. „En við hyggjumst líka sækja um fullt leyfi til veitinga um borð. þ.e. vínveitingaleyfi, og stefnum að því að það verði líka komið þegar við tökum við rekstrinum um áramót," segir Björgvin. Sektað vegna flugeldasýningar Það fór tæplega framhjá mörgum að Magnús Kristinsson, útgerðar- maður, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt sl. laugardag. Hápunktur þess fagnaðar var flugeldasýning á miðnætti, í umsjá Björgunar- félagsins, og var hún bæði mikil og hávaðasöm svo að einhveijir hrukku upp af svefni. Einhverjar kvartanir munu hafa borist lögreglu vegna þess og eins var haft samband ofan af landi og látið vita um flugelda sem sést hefðu yfir Eyjum. Sótt hafði verið um leyfi fyrir flugeldasýningu en ekki jafn- viðamikilli og háfleygri og hún svo reyndist vera. Viðkomandi aðilar munu hafa hlotið áminningu vegna þessa og sektaðir. Með rétt vegabréf í síðasta blaði sögðum við frá dómi yfir konu frá Miðbaugs-Gíneu sem kom til landsins á röngu vegabréfi. Hún kom í fylgd verðandi eigin- rnanns síns og við ákvörðun refs- ingar var litið til þess að málavextir voru sérstæðir og töldust henni lil málsbóta. Þá hafi ákærða stundað vinnu þann tíma er luin hefur dvalið á íslandi og hún sé gift íslenskum manni. Samkvæmt sakavottorði hefur hún ekki gerst sek um refsiverða háttsemi, aðra en þá sem um ræðir í þessu máli og auk þess gaf hún sig sjálfviljug fram við lögreglu. Hjónin vilja koma því á framfæri að konan hefur í eitt ár dvalið hér á landi með rétt vegabréf enda hafi aldrei venð ætlunin að ganga á svig við íslensk lög. í vímu og vígamóði Ein líkamsárás var kærð um helgina. Tveir ölvaðir menn lentu í deilum sem endaði nreð þvf að annar réðst á hinn. Hlaut sá sem ráðist var á áverka á andliti og varð að leita sér læknisáðstoðar. Arásarmaðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu þar sem hann dvaldi þar til af honum rann bæði víma og vígamóður. Óskað umsagnar vegna búfjórhalds Bæjarráð tók fyrir á fundi sfnum á mánudag bréf frá sýslumanni þar senr óskað er eftir umsögn um leyti til búfjárhalds. Samkvæmt upplýs- ingum frá sýslumanni tengist þessi ósk rannsókn á sakamáli. Bæjarráð hefur falið lögmanni bæjarins að svara bréfinu í samráði við bæjarritara. Ferja milli Eyja og Bakkafjöru - Tillaga til þingsályktunar samþykld á þingi: r Aætlað að rann- sóknir taki þrjú ár Fyrir nlþingi liggur tillngn til þingsályktunnr um rannsóknir á ferjuaðstöðu við Bakkatjöru undan Vestmannaeyjum. FJutningsmenn eru þingmennirnir Arni Johnsen, Drífa Hjartardóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Hjálmar Arnason, Guðmundur Hallvarðsson, ísólfur Gylfi Pálmason, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Kristján L. Möller og Jón Kristjánsson. Samkvæmt lillögunni ályktar alþingi að fela samgönguráðherra að hlutast til um við Siglingastofnun Islands að hún hefji sem fyrst rannsóknir á feijuaðstöðu við Bakkafjöru og öðrum aðstæðum í tengslum við ferjuleið frá Vestmannaeyjum að Bakkaíjöru. í inngangi greinargerðar tillögunnar segir að um 150 þúsund manns ferðist árlega til Vestmannaeyja sem séu einn af þremur fjölsóttustu ferðamanna- stöðum á Islandi. Hugmyndin að ferjusiglingu, stystu leið milli lands og Eyja, miðist við að flytja fólk, bfia og gáma. Slík framkvæmd myndi gjör- bylta samgöngum milli lands og Eyja og aðstöðu allri á Suðurlandsundir- lendinu því farnar yrðu ferðir á 30 til 60 mínútna fresti og siglingatími yrði ekki fjarri þeim tfma sem tæki að aka eftir göngum til Eyja. Með þessu yrði möguleiki á að stytta ferjusiglingu milli lands og Eyja niður í 20 mínútna siglingatíma. Þá er í tillögunni vikið að þeim rannsóknum sem fram hafi farið og þurfi að fara fram á suðurströndinni. Þar segir m.a. að hafnleysi einkenni suðurströnd landsins og af þeim sökum hafi rannsóknir á sjólagi og efnistöku ekki verið ofarlega á baugi. Ahuginn hafi einkum beinst að Þorlákshöfn í vestri og Homafirði í austri en þar á milli séu um 350 km. Eftir uppbyggingu landshafnar í Þorlákshöfn, um miðjan áttunda áratuginn, og eftir að Ósinn við Hornafjörð lokaðist fyrir tíu árum, fóru fram umfangsmiklar rannsóknir og athuganir við þessar hafnir. Þann grunn megi nýta til að skilgreina hvaða upplýsinga þarf að afla lil að svara spumingum um hafnargerð á Bakkafjöru. Þá segir að aðstæður til siglinga að Bakkaijöm séu um margt svipaðar og á grynnslunum utan við Homafjarðar- ós. Þar sé dýpi um sjö metrar og munur á flóði og íjöm um hálfum metra minni en við Bakkaíjöru. Með þekkingu á hegðun sandrifjanna og hliðanna við Bakkafjöru sé talið að finna megi aðstæður sem hægt væri að nýta fyrir sérútbúið ferjuskip til að sigla að ferjuaðstöðu þar sem leitast væri við að finna sem haganlegastar aðstæður. I tillögunni segir að lítið sé vitað um sjólag og breytingar á sandrifjunum við Bakkafjöru og bent á að mæla þurfi dýpi þar reglulega, a.m.k. 5-10 sinnum á ári í þrjú til fjögur ár en gert er ráð fyrir að a.m.k. þrjú ár þurfi til að meta hvort aðstæður séu þannig að ferja gæti haldið uppi reglubundnum siglingum milli Eyja og Bakkafjöm. Bent er á að Lóðsinn henti mjög vel til þessara rannsókna. Lögð er fram sundurliðuð kostn- aðaráætlun vegna þessara undir- búningsrannsókna og er áætlaður kostnaðurþessi: Stofnkostn. og leiga á Lóðsinum 7 m. Bún. til að sniðmæla fjörur á landi 3 m. Sjálfvirk veðurath.stöð v. Bakkafj. 2 m. Öldudufl og ölduspár v. Bakkafj. 3 m. Hugbún. v. útreikn. efnisflutninga 4 m. Gijótnámsrannsóknir v. brimvama 5 m. Jarðvegsathuganir á hafnarstæði 3 m. Úrvinnsla mælinga og skýrslugerð 3 m. Samtals: 30 millj. Kostnaður er áætlaður um 10 milljónir króna á ári, miðað við þriggja ára tímabil. „Eg er mjög ánægður með fram- gang málsins því þama getur opnast nýr kostur í samgöngum við Eyjamar. Um leið er hægt að kanna enn frekar möguleika á gerð ganga milli lands og Eyja,“ sagði Ámi Johnsen, alþingis- maður og formaður samgöngu- nefndar, í samtali við Fréttir. Björn Karlsson stóð uppi sem haustskákmeistari Skákfélagsins ef'tir að hafa sigrað Sverri Unnarsson í bráðabana. í undanúrslitum hafði Björn, sem er til hægri á myndinni, sigur á Einari Guðlaugssyni og Unnar lagði Sigurjón Þorkelsson. Björn og Unnar urðu jafnir í úrslitum urðu því að mætast í bráðabana sem fram fór á sunnudaginn. Tefldu þeir tvær hálftíma skákir sem Björn vann báðar og stóð hann því uppi sem haustmeistari. Viðbúnaður vegna jólaumferðar Alls voru 207 færslur í dagbók lögreglu í síðustu viku og er það heldur meira en verið hefur undanfarnar vikur. Helsta ástæða þessarar fjölgunar er sú að nú er lögregla með meiri viðbúnað vegna umferðar þar sem jólaumferðin er þegar byrjuð. Þetta þýðir töluvert meira eftirlit lögreglu en venjulega. Em ölumenn hvattir til að sýna hver öðmm, svo og öðmm vegfarendum, tillitssemi í umferðinni. Ökugleði Þrjú skemmdarverk vom tilkynnt lögreglu í vikunni og áttu sér öll stað aðfaranótt Iaugardags. Lakk var rispað á bifreið sem stóð við Heimagötu. Þá vom unnin skemmdarverk á tveimur bifreiðum á bfiastæðinu við Foldahrauns- blokkimar auk þess sem þar var bifreið tekin ófrjálsri hendi. Var greinilegt að sá sem þama var að verki ætlaði sér í ökuferð því að hann hafði átt við kveikjulása hinna bifreiðanna tveggja áður en honum tókst að koma þeirri þriðju í gang. Ekki hefur lögregla upplýsingar um þennan ökuglaða mann en hvetur tólk, sem sá til mannaferða á bfia- stæðinu við Foldahraunsblokkimar, umrædda nótt, til að hafa samband. 20 brotlegir í umferðinni Alls liggja fyrir 20 kærur fyrir brot á umferðarlögum eftir vikuna. Átta vom kærðir vegna hraðaksturs, sex vegna vanrækslu á vátrygginga- skyldu, fimm vegna stöðubrota og einn hafði ekki fært bifreið sfna til skoðunar á tilskildum tíma. Þá var eitt umferðaróhapp tilkynnt lög- reglu, árekstur tveggja bifreiða á miðvikudag í síðustu viku á gatna- mótum Kirkjuvegar og Hólagötu. Ekki urðu slys á fólki en eitthvert tjón á ökutækjum. Reglur um útivist stuðla að velferð Lögregla hefur haldið áfram að fylgjast með því að reglum um útivist sé fylgt eftir og telur ástandið betra en verið hefur undanfamar vikur. Er það von lögreglumanna að foreldrar og foiTáðamenn hafi tekið við sér. eftir að lögregla jók eftirlit. og sjái til þess að böm þeirra séu ekki úti eftir að útivistartíma lýkur. Eins og oft hefur kornið ffam er þetta frekar spuming um að vemda bamið sitt en að vera leiðinlegt foreldri nteð því að neita barninu um að vera úti eftir að útivistartíma lýkur. Þá er það reynsla lögreglu að meirihluti þeirra ungmenna sent úti er urn helgar, eftir að útivistartíma þeirra er lokið. sé undir áhrifum áfengis. Af þessu má draga þá ályktun að eftir því sem foreldrar sýna minni ábyrgð gagnvart útivistarreglum því meiri hætta er á að böm þeirra byiji að neyta áfengis og í framhaldi af því ffkniefna. Því er nauðsynlegt að standa vörð um útivisttirreglumar, séu þær haldnar er líklegt að þær geti stuðlað að velferð barnanna okkar. Fimleikasýning Hin árlega jólasýning Fimleika- félagsins Ránar verður haldin í íþróttamiðstöðinni þriðjudaginn 12 desemberkl 18.CK). Allir velkomnir og aðgangur er ókcypis en frjáls framlög em vel þegin við innganginn. Fréttatilkyrming. Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www. eyjaf retti r. is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla i Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. FRETTIR 8

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.