Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 18
FréttiR
VERÐLAUNAHAFARNIR, Hanna Carla Jóhannsdóttir, Ásta Björk Guðnadóttir, Inga Sigurbjörg
Árnadóttir og Arndís Bára Ingimarsdóttir.
Fatahönnunarkeppni Grunnskólanna:
Góður órangur Eyjakrakka
Landa-
KIRKJA
- hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 7. des.
Kl. 10.00 Foreldramorgunn.
Fræðsla, börn og bænir, sr. Bára
Friðriksdóttir
Kl. 17.30 TTT - Jólafundur,
piparkökur og heitt súkkulaði,
jólastemmning eins og hún gerir
best.
Æíingar hjá Litlum lærisveinum
falla niður um helgina.
Sunnudagur 10. des.
Kl. 11.00 Sunnudagaskólinn,
iðandi af lífi með söng, leik,
fræðslu og helgimyndum.
Kl. 14.00Messameðaltarisgöngu.
Kaffi í safnaðarheimili á eftir.
Kl. 20.30 KFUM & K Landa-
kirkju. Nú verður mikið fjör og
mikið gaman því Ingveldur kemur
með hatt frá Taílandi.
Mánudagur 11. desember.
Kl. 16.50 Æskulýðsstarf fatlaðra.
Jólafundur. Jólasveinninn lítur í
heimsókn og heilsar upp á
mannskapinn.
Þriðjudagur 12. desember.
Kl. 16.30 Kirkjuprakkarar, jóla-
fundur, kökur og kakó.
Kl. 20.00 Aðventutónleikar Sam-
kórsins í safnaðarheimili
Miðvikudagur 13. desember.
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum
Kl. 12.00- 12.30 Kyrrðarstund
Kl. 14.40 - 17.15 Fermingar-
fræðsla.
Kl. 20.00 Opið hús í KFUM & K
húsinu.
Fimmtudagur 14. desember
Litlir lærisveinar, yngri hópur,
safnaðarheimili.
Kl. 10.00 Foreldramorgun, jóla-
stemmning.
Kl. 14.30 Helgistund á Heil-
brigðisstofnun, setustofu 3. hæð.
Allir velkomnir.
Kl. 20.30 Jólatónleikar Kórs
Landakirkju
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur:
Kl. 20.30 Biblíulestur. Steingn'murÁ.
Jónsson.
Laugardagur:
Kl. 20.00 Samsæti vegna 60 ára
afmælis Hjálmars Guðnasonar.
Sunnudagur:
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma. Fjöl-
breyttur söngur og vitnisburðir fólksins
um Jesúm Krist.
Þriðjudagur:
Kl. 17.30 Jólafagnaður Krakkakirkjun-
nar.
Hvítasunnukirkjan býður þig vel-
kominn.
Aðventkirkjan
Laugardagur 9. desember:
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Kl. 11.00 Guðsþjónusta, gestur helgar-
innar Eric Guðmundsson.
Allir hjartanlega velkontnir.
Kirkja Jesú Krists
Hinna Síðari Daga Heilögu
Samkomur á sunnudögum kl. 11.00 að
Heiðarvegi 62 niðri.
Allir velkomnir.
Biblían talar
sími
481-1585
Fatahönnunarkeppni
grunnskólanna fór fram í
Laugardalshöllinni í Reykjavík á
sunnudaginn var. Krakkar frá
Vestmannaeyjum fjiilmenntu og
náðu mjög góðum árangri. Komu
heim með önnur verðlaun í
tveimur ilokkum.
Selnia Kagnarsdóttir, kennari og
kjóla- og klæðskerameistari
hjálpaði krökkunum við
undirbúninginn. Var hún mjög
ánægð með árangurinn og ekki
hefði skemmt fyrir hvað hópurinn
stóð sig vel sem heild. „AIls fóru 29
krakkar héðan, bæði úr
Hamarsskólanum og
Barnaskó!anum,“ segir Selma.
„Keppendur voru í allt 110 og
vorum við með langstærsta
hópinn. I hópnum voru bæði
hönnuðir og módel og fóru þau
með 24 flíkur af öllum gerðum og
m.a. voru tveir strákar í hópnum.“
Þema keppninnar var
alheimshönnun sem gaf
keppendum möguleika á mjög
víðtækri túlkun. „Keppnin er fyrir
áttundu, níundu og tíundu
bekkinga og er keppendum skipt í
hópa eftir bekkjum. Við fengum
tvenn önnur verðlaun, í flokki
níundu og tíundu bekkinga. I
níunda bekk fengu Ásta Björk
Guðnadóttir og Hanna Carla
Jóhannsdóttir verðlaun fyrir kjól
sem átti að tákna kulda. Kjóllinn
er unninn úr ljósgráu flísefni og
þunnu siffoni. Hanna Carla og
Ásta Björk eru í Hamarsskóla."
I flokki tíundu bekkinga fengu
Inga Sigurbjörg Árnadóttir og
Arndís Bára Ingimarsdóttir
verðlaunin. „Þær voru með kjól
sem á að tákna heiminn. Hann var
unninn þannig að kjólinn var
saumaður úr bláu polyester-efni og
tekin lönd úr landafræðibók og
prenuð á í Tölvun, bæði að framan
og aftan. Þær eru í Barna-
skólanum.“
Þetta er þriðja árið sem keppnin
er haldin, í fyrra var árangur
Eyjakrakka ekki síðri en þá komu
þeir heim með fyrstu og þriðju
verðlaun. „Báðir skólarnir styrktu
krakkana ásamt Islandsbanka
FBA og Sparisjóði Vestmannaeyja.
Þarna var verið að styrkja gott
málefni því krakkarnir stóðu sig
roslega vel og var gaman að sjá
hvað þau voru flott á sviðinu.
Keppnin er eingöngu fyrir
reyklausa nemendur og allur
ágóðinn rann til Stígamóta,“ sagði
Selma að lokum.
Fimmtudagur 7. desember 2000
Yngri flokkarnir
Ájaetur
árangur
Annar flokkur karla spilaði tvo
leiki um helgina en gengi flokksins
hefur ekki verið gott það sem af er
vetrar. Leikið var gegn liðum í
fjórða og fimmta sæti deildarinnar
en IBV er í neðri hluta hennar og
því búist við þungum róðri.
Fyrst var leikið gegn Val að Hlíðar-
enda á föstudeginum og tapaðist sá
leikur naumlega, 22-19. Sigurður Ari
fór á kostum í leiknum og skoraði átta
mörk en liðsmenn IBV skiptu hinum
mörkunum bróðurlega á milli sín.
Seinni leikurinn var svo gegn
Haukum í Hafnarfirði og tapaðist sá
leikur með fimm mörkum, 25-20.
Mörk IBV skoruðu þeir Sigurður Ari
5, Sigþór 4, Davíð og Sindri 3. Þrátt
fyrir þessi tvö töð þá er liðið í mikilli
framför og bætir leik sinn með
hverjum leiknum. Liðið er uppbyggt
strákum úr þriðja flokki en aðeins
einn leikmaður er á réttum aldri í
annann flokk þannig að framtfðin er
björt hjá ÍBV.
IBV tók á móti Fjölni í unglinga-
flokki sem er nýr flokkur skipaður
stúlkum í öðrum og þriðja flokki sam-
kvæmt gömlu aldursskiptingunni.
ÍBV byijaði leikinn af krafti og komst
í 4-1, en leikmenn liðsins misstu
dampinn og í hálfleik var jafnt, 6-6. í
síðari hálfleik var ÍBV tveimur
mörkum yfir þar til á síðustu andar-
tökum leiksins að gestimir náðu að
minnka muninn í eitt mark og þar við
sat. IBV sigraði í leiknum 16-15 og
var að spila ágætlega en leikmenn
liðsins geta meira og þær vita það.
Bestar í liði ÍBV voru þær Margrét
Lára. Bjamý og Árún markvörður.
Þjálfari liðsins er Mickail Akbashev.
Mörk ÍBV: Margrét Lára 8, Bjamý 3,
Anita 2, Efla Ásdís 2 og Thelma Rós
1.
Helgina 24. til 26. nóvember
spilaði fjórði flokkur kvenna en ÍBV
spilaði í fyrstu deild. Liðið spilaði
ljóra leiki, sigraði í tveimur en tapaði
tveimur. Margrét Lára Viðarsdóttir
var langmarkahæst í leikjunum íjór-
um, skoraði 23 mörk, María Guð-
jónsdóttir skoraði svo 11 og Erna
Sævarsdóttir 9 mörk.
Fimmti flokkur kvenna spiluðu
einnig sömu helgi í nýju og glæsilegu
íþróttahúsi Hauka í Hafnarfirði. IBV
spilaði £ annarri deild og gerðu
stelpumar sér lítið fyrir og sigmðu
alla leiki sína og þar með deildina.
Þjálfari flokksins er Unnur
Sigmarsdóttir.
Sjötti flokkur karla fór upp á land
um helgina en alls vom 24 strákar
með í för ásamt Gísla Guðmundssyni
þjálfara og tveimur fararstjómm. ÍBV
tefldi fram þremur liðum, A-, B- og
C-lið en hvert þeirra spilaði fjóra leiki.
B-liðið spilaði í fyrstu deild en þeim
gekk ekki nógu vel, töpuðu öllum
leikjum sínum og féllu í aðra deild.
A-liðið spilaði mjög vel en liðið
spilaði í annarri deild. Liði vann sinn
riðil nokkuð sannfærandi og spiluðu
því um fyrsta sætið í deildinni gegn
Víking en sá leikur tapaðist naum-
lega. C-liðið lék einnig vel, sigmðu
þijá leiki og gerðu jafntefli gegn
Stjömunni sem varð efst í annarri
deild á hagstæðari markatölu. Urslit
leikja urðu annars þessi:
A-lið, ÍBV-Selfoss 9-7, ÍBV-Fylkir
10-9. ÍBV-KR 8-5, ÍBV-Víkingur 8-
9.
B-lið, ÍBV-Haukar 5-11. ÍBV-Fram
3-11, ÍBV-Grótta 6-15, ÍBV-HK 6-7.
C-lið, ÍBV-Víkingur 3-2, ÍBV-HK
10-9, ÍBV-Stjaman 5-5, ÍBV-Grótta
9-7.
AV/S______________
Góður kostur
fyrir lands-
byggðarfólk
Útvegum einnig bíla erlendis
Sími: 533 1090
Avis mælir með Opel
Umboðsmaður Vestmannaeyjum:
4812220 & 8603510
Fax: 533 1091 Dugguvogur10 E-mail: avis@avis.is Opel Corsa Opel Astra Opel Astra 3ja dyra 3ja dyra station 1 dagur 1 dagur 1 dagur kr. 950,- kr. 26,- hver km m/vsk kr. 950,- kr. 30,- hver km m/vsk. kr. 950,- kr. 34,- hver km m/vsk.
www.avis.is Innifalið í verðum eru tryggingar og skattur