Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 7. desember 2000
Bókvitið
'askana
• •
Les Dagblaðið og Andrés Ond
á náðhúsinu
Ég vil byrja á því að þakka Jósúa
Steinari (Spielberg), vini, vinnufélaga
og ferðafélaga kærlega fyrir að hafa
valið mig sem bókaunnanda vikunnar.
Þessi tilnefning kom mér ekki á óvart
enda veit Jósúa að hjá mér er um
auðugan garð að gresja. Ég var beð-
inn um að koma því til skila varðandi
umsögn Jósúa um göngulag ónefndra
aðila að það er hverjum atvinnu-
rekanda hollt að vera með fæturna á
jörðinni.
Ég les mikið á hverjum degi a.m.k.
í klukkutíma á dag þegar ég bregð
mér á náðhúsið að afloknu dagsverki.
Þá les ég aðallega Dagblaðið og
Andrés Ónd er í miklu uppáhaldi
núna. Sú bók sem ég las síðast var
mjög áhugaverð og bauð upp á mikla
fjölbreytni en það voru svonefnd
Bókatíðindi sem mér til mikillar
ánægju koma út fyrir hver jól.
Ég hef haft það fyrir reglu að kaupa
mér eina bók um hver jól, helst
spennusögu, ég held mikið upp á
Alistair MacLean, Hammond Innes,
Desmond Bagley og Ken Follet. Um
síðustu jól las ég Þriðja Tvíburann
eftir Ken Follet, að vísu var ég ennþá
að lesa hana um páskana en það má
segja að þolinmæði þrautir vinnur
allar (um hvað var annars bókin?).
Það er líka alltaf gaman að lesa fyrir
yngri dóttur mína og þá eru það einna
helst stuttar og einfaldar sögur sem ég
á auðvelt með að skilja (maður gæti
þurft að útskýra).
Annars vil ég koma því að að Jósúa
fékk viðurnefnið Spielberg í slyddu-
jeppaferð Jeppavinafélagsins í Vest-
mannaeyjum í sumar. Hann lagði
mikla vinnu og pælingar nótt og dag í
næstu skot. Það þurfti að raða bíl-
unum eftir litum, tegundum, stærð
dekkja, þyngd ökumanna, flauta á
réttum stöðum o.s.frv. Þessi mynd
var lengi í framleiðslu og tók hún
meðal annars þátt í forkeppni fyrir
Edduverðlaunin en laut í lægra haldi
fyrir Englum Alheimsins. Enda flestir
leikendur í Jeppaferðinni mun rugl-
aðari en persónurnar í þeirri annars
ágætu mynd, Englunum.
Ég vil tilnefna Þorstein Sigurðsson
næsta bókaunnanda því mér leikur
forvitni á að vita hvað menn lesa úti í
Suðurey yfir Þjóðhátíðina. Ég veit að
hann hefur nægan tíma til að svara
þessu því hann liggur vist öll kvöld á
gærunni fyrir framan kamínuna,
(þessari pólsku).
Fylkisvöllurirm er fallegur
Fyrirtækið Eyjablikk varstofnað íapríl 1997 og
hefur verið í örum vexti sfðan. Nýlega flutti
fyrirtækið í nýtt húsnæði að Flötum 27. Fram-
kvæmdastjóri Eyjablikks er Eyjamaður vik-
unnar.
Fulltnafn? Stefán Þór Lúðvíksson.
Fæðingardagur og ár? 26. janúar 1968.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? í sambúð með Andreu
Atladóttur. Við eigum tvær dætur, Agnesi og
Bríeti.
Menntun og starf? Verslunarpróf frá
Fjölbraut í Ármúla og blikksmiður að atvinnu.
Laun? Alltoflítil.
Bifreið? Ford Escort '99.
Helsti galli? Aðrir verða að dæma um það.
Helsti kostur? Sama hér.
Uppáhaldsmatur? Humar.
Versti matur? Siginn fiskur.
Uppáhaldsdrykkur? Gin og tonic.
Uppáhaldstónlist? Þjóðhátíðarlögin.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Vera
heima með fjölskyldunni og vera á þjóðhátíð.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að þrífa bílinn.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón í happdrætti?
Bjóða Andreu til Hawaii.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Andrea Atla.
Uppáhaldsíþróttamaður? Biggi Sveins (það er ekki
hægt að nefna Andreu þriðja skiptið i röð).
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Kiwanis og
Fylki.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Myndbandsupptaka afBigga
að dansa í steggjapartíinu sínu.
Uppáhaldsbók? Blikksmíðasaga íslands.
Hvað meturþú mest ífari annarra? Heiðarieika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Óheiðarleiki.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Vestmannaeyjar og Fylkisvöllurinn.
Hvort myndir þú flokka blikksmíði undir iðngrein eða
listgrein? Hvort tveggja.
Hvaða þýðingu hefur flutningur í nýtt húsnæði fyrir
ykkur? Þetta breytir allri vinnuaðstöðu svo og aðstöðu til
að taka á móti viðskiptavinum.
Eru næg verkefni framundan í blikksmíði f Vest-
mannaeyjum? Allavega næsta árið og svo finnum við
okkur eitthvað meira.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka öllum Vestmanna-
eyingum fyrir frábærar móttökur og vonast eftir að sjá þá á
Hásteinsvelii næsta sumar þegar Fylkir vinnur ÍBV eins og
venjulega.
? <?
Vestmcmnaeyingar
18. september sl. eignuðust stúlku Þóra Björg Thoroddsen og
Aðalsteinn Jónatansson. Hún vó 14 merkur og var 52 sm og hefur
fengið nafnið Kristín Björg. Fjölskyldan býr í Kalifomíu í Banda-
ríkjunum. Á myndinni með Kristínu Björg er Sólveig Anna, stóra
systir.
Orðspor________________________________
Við krefjumst færri bensínstöðva
Bíleigendur hafa lengi pirrast á þjónustuleysi bensínstöðva hér. I Vestmanna-
eyjum em fimm bensínstöðvar. Það er ein bensínstöð á hvetja 906 íbúa, en við
erum 4.530 sem enn þrjóskumst við og búum hér.
í Kópavogi bjuggu 1. des. sl. 22.568 manns og einhvern veginn komust þeir
af með fimm bensínstöðvar eins og við. Þar em semsagt 4.513 manns um hvetja
bensínstöð. Eitthvað hefur þetta sjálfsagt með það að gera að þeir sem vinna á
bensínstöðvunum í Kópavogi em að vinna á bensínstöð. Það eru okkar bensín-
stöðvarstarfsmenn ekki að gera. Þeir em að reka kjaftaklúbba karla með til-
heyrandi kaffiuppáhellingum, sumir em að steikja hamborgara eða leigja út
myndbandspólur en engum þeirra hefur enn dottið í hug að þeir þurfi á einhvem
hátt að vinna fyrir aurunum sem þeir fá fyrir að selja bensín. Ög flestir þeirra
nenna bara ekki að standa í því að fylla bíla af bensíni.
Það verður að segjast eins og er að það er enginn tilviljun að Vestmannaeyjar
em eini staðurinn á landinu sem neytendur em nógu aumir til að láta fara svona
með sig. Vestmannaeyingar láta olíugreifana komast upp með þetta. Láta sig
heldur hafa það að ata sig út í díselolíu eða bensíni, en að standa í því að fá
sjálfsagða þjónustu. Þetta hefur oft valdið undrun innlendra ferðamanna sem
sitja í bílum sínum úti við dælu og bíða, oft lengi. Nú liggur það í augum upp að
olíugreifamir eiga bágt og þéna alls ekki nóg til að reka eins og einn bensíntitt.
Því liggur lausnin í augum uppi. Færrri stöðvar með meiri þjónustu.
Nú hefur heyrst sá orðrómur að eitt olíufélaganna stefni að því að koma hér
upp sjálfvirkri stöð og hirða þannig markaðinn með lægra verði og sömu
þjónustu og hingað til, semsagt engri. Það mun gleðja bíleigendur í Eyjum, það
er að segja alla nema þrjá.
Á döfmrrí 4*
Desember
7. Bókmenntavaka í Akóges kl. 20.30. Kunnir höfundar lesa úr
verkum sínum. Jólatónlisl og Ijóialestur.
7. Bimgó í Þórsheimilinu kl. 20.30.
7. NómskeiÍ í lita- og fatastíl ó Hótel Þórshamri kl. 20 ■ 23
7. Jólofundur Félags eldri borgara ó Hraunbúium.
7. Bíóið opnar eftir breytingar. Björk dansar í myrkrinu kl. 20.30
8. Kveikt ó jólatrénu kl. 17. Jólasveinar og lúirablóstur.
8. Sextugsafmæli Ragga rakara í Kiwanishúsinu kl. 20.00
8. ■ 9. Þroskahjólp selur happdrættisalmanak sitt við matvöruverslanir
8. -10. Handverksmarkaður í Sælahúsinu við Strandveg
9. Stofníundur sameinaðs verkalýðsfélags í Alþýðuhúsinu kl. 14.
9. - 20. Sýning ó sönglagahandritinu Hymnodia sacra ó Bókasafninu.
12. Jólasýning fimleikafélgsins Rónar í Iþróffamiðsföðinni kl. 18.
12. Jólatónleikar Samkórsins í Safnaðarheimilinu kl. 20.30.
14. Aðallundur Vinnslustöðvarinnar kl. 16 i Kiwanishúsinu.
14. Jólatónleikar Kórs Landakirkju. Einsöngvari með kórnum er
Sigrún Hjólmtýsdóttir (Diddú).
15. -17. Samkeppni um besta piparkökuhúsið í skótaheimilinu við
Faxastíg.
18.- 20. Seinni hluti númskeiðs lyrir almennt ökupróf hjó Okuskóla Vestm.
21. Hluthafafundur í Herjólfi hf. í Hóskólanum kl. 10.00.