Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 16
16 Fréttir Fimmtudagur 7. desember 2000 Fjárveiting til Vestmannaeyja 2001: F Anægður með okkar hlut -segirÁrni Johnsen, alþingismaður HERJÓLFSDALUR á þjóðhátíð. Herjólfsbær er fyrir miðri mynd en nú stendur til að byggja þar upp fyrir 10 milljónir króna sem úthlutað var á fjárlögum til þess verks. Fjárveiting til Vestmannaeyja á næsta ári, samkvæmt tillögum fjárlaganefndar, hefur nú verið ákveðin. Arni Johnsen, alþingis- maður, sem sæti á í fjárlaganefnd, segist ánægður með það sem kemur í hlut byggðarlagsins. 30 milljónir til sjúkrahússins Til sjúkrahússins er veitt 30 milljónum króna, til endurbóta á húsinu og fram- kvæmda innan dyra. Þetta er í fram- haldi af því verki sem lokið var utanhúss fyrir skömmu. Alls er hér um að ræða verk upp á 130 milljónir króna en áætlað er að hefja það á næsta ári og ljúka því á næstu tveimur til þremur árum. Ami segir mjög gott að hafa náð sjúkrahúsinu inn en aðeins tvö sjúkrahús á landinu hafi fengið stofnkostnaðarliði inn í fjárveitingu, okkar sjúkrahús og svo sjúkrahúsið á Selfossi sem stendur til að stækka en það hel'ur verið á áætlun síðan 1985. Fjárveiting til hafnarinnar í hærri kantinum Til Vestmannaeyjahafnar fara 126 milljónir. Er það aðallega til endur- bóta á bryggjuköntum auk annarra hliðarverkefna. Fjárveiting til hafnar- innar er í hærri kantinum, sé miðað við aðrar hafnir á landinu en á þriggja ára hafnaáætlun hefur um hálfum milljarði verið veitt til Vestmanna- eyjahafnar. Árni segir að mikið haíi farið hingað, miðað við aðra staði á landinu, og sú fjárveiting muni væntanlega minnka á næstu árum enda sé mikið búið að framkvæma hér. Flugvöllurinn í Eyjunt er ekki á fjár- hagsáætlun en Ámi segir að í tækjabúnað lil hans sé áætlað að veita vemlegu fé. Listvinafélag - Blátindur - Stafkirkja Nokkrir liðir, sem flokka má undir list og menningu, fá fjárveitingu. List- vinafélagið fær 400 þúsund krónur, eins og undanfarin ár, vegna árlegrar jasshátíðar. Ámi segir að þrír staðir á landinu hafi verið eins konar frumkvöðlar að slíkum hátíðum, Vest- mannaeyjar, Egilsstaðir og Kirkju- bæjarklaustur en síðan hafi fleiri bæst við og nú séu slíkar menningarhátíðir haldnar á einum tíu til tólf stöðum á landinu og fái allir sömu upphæð. I stómm pakka, sem unninn er í fjárlaganefnd, og lýtur að ýmsum menningaratriðum, víðs vegar um landið, er fjárveiting til uppbyggingar mb. Blátinds upp á 6 milljónir króna en ætlunin er að ljúka við upp- byggingu bátsins fyrir sjómannadag á næsta ári. Lokauppgjör vegna Stafkirkjunnar er upp á 3 milljónir króna. Ámi segir að einnig sé gert ráð fyrir 2,5 milljónum króna í fast viðhald kirkjunnar árlega. Sú upphæð fer gegnum Þjóðminja- safnið. Með þessari fjárveitingu er hlutur ríkisins í Stafkirkjunni orðinn 53 milljónir króna en kostnaður Norðmanna nam 80 milljónum. 10 milljónir í uppbyggingu Herjólfsbæjar Þá er 10 milljónum króna veitt til upp- byggingar Herjólfsbæjar. Árni segir að hugmyndin sé að tengja saman tvö eða þrjú hús af rústum þeirra ellefu sem grafin vom upp á sínum tíma undir stjórn Margrétar Hermanns- dóttur. Ámi segir þetta gamla hugmynd sem unnið hafi verið að og hilli nú undir að hún verði að veruleika. Meiningin sé að ljúka við teikningar í vetur og meta kostn- aðarþætti við verkið, hvað hægt verði að byggja í sumar og hvað verði að bíða fjárveitingar næsta árs en reiknað sé með áífamhaldandi fjárveitingu til þessa verks. Árni segir að mikið sé hægt að gera fyrir 10 milljónir, sé byggt á hag- kvæman hátt og góð stjóm sé á fram- kvæmdum. Hugmyndin sé að reisa langhús, þar sem saman tengist íbúðarhús, smiðja og gripahús. Ein rústanna í Herjólfsbæ hefur þá sér- stöðu að þar hefur bæði fólk og fénaður búið undir sama þaki og þekkjast ekki önnur slík dæmi úr rústum sem grafnar hafa verið upp. Rústir Herjólfsbæjar eru best varðveittu rústir í landinu frá upphafi byggðar en sérfræðingar em sammála urn að þær séu frá upphafi byggðar á íslandi. Aftur á móti greinir sér- fræðinga á um aldur þeirra og Magrét Hermannsdóttir telur þær mun eldri en sögulegar heimildir greina um landnám Islands. Ámi segir að uppbygging þessara húsa verði ekkert í líkingu við þjóð- veldisbæinn að Stöng í Þjórsárdal, heldur nokkurs konar sýnishom en gæti engu að síður orðið mjög skemmtilegt. Isleifur elstur 1 frétt sem birtist á mánudag á eyjafrettir.is segir að Ragnheiður Jónsdóttir, frá Þrúðvangi, sé elsti núlifandi íbúi Vestmannaeyja en Ragnheiður varð 95 ára sl. mánudag 4. desember og hefur boðið til afmælisveislu í Akóges á laugardag. Þetta er ekki alveg rétt, því að Isleifur Ingvarsson, fyrrverandi verkstjóri hjá Vestmannaeyjabæ, varð 95 ára 27. mars sl. og er því elstur Vestmannaeyinga þótt ekki muni miklu á þeim Ragnheiði. Áki Heinz Haraldsson, í Ráð- húsinu, sendi okkur upplýsingar um elstu borgarana í Eyjum en þar kemur fram að átta manns em ní- ræðir eða eldri. Þessir Vest- mannaeyingar em. í aldursröð: Isleifur Ingvarsson Ásavegi 16 27.03.1905 Ragnheiður Jónsd. frá Þrúðvangi 04.12.1905 Engilbert Þorvaldsson Heiðarv. 57 11.10.1906 Guðrún Ingvarsd. Foldahrauni 40f 05.03.1907 Brynheiður Ketilsdóttir frá Gerði 04.08.1907 Osk Snorradóttir frá Hlíðarenda 28.11.1908 Margrét Hróbjartsd. f. Gvendarhúsi 15.09.1910 Haraldur Sigurðsson Hvítingav. 2 23.11.1910 Gefjun skiptir um eigendur Nýir eigendur hafa tekið við rekstri glugga- og hurðaverk- smiðjunnar Gefjunar. Aðaleig- endur hennar voru feðgarnir Elías Baldvinsson og Guð- mundur, sonur hans en þeir hafa nú selt verksmiðjuna. Gengið var frá eigendaskiptunum 1. desember sl. og nýju eigendumir em Þorkell Húnbogason, Jóel Andersen, Yngvi Sigurgeirsson og ValdimarGuðmundsson. Valdimar verður í fullu starfí við fram- leiðsluna, a.m.k. til að byrja með auk þess sem hinir eigendumir munu einnig koma að henni þegar á þarf að halda. Þeir hyggjast halda áfram sams konar rekstri og verið hefur, í framleiðslu á gluggum, hurðum og sólhýsum. Gefjunar- nafnið fylgir ekki með í kaupunum en þeir eiga von á að nýtt nafn á verksmiðjuna muni líta dagsins ljós á næstu dögum. Fundur Stjórnunarfélagsins Allt skipulag til fyrirmyndar segja gestirfundarins Á iimmtudag í síðustu viku stóð Stjórnunarfélag Vestmannaeyja fyrir morgunverðarfundi sem hald- inn var í Ásgarði við Heimagötu. Börkur Grímsson, sem er í stjóm Stjómunarfélagsins, sá um undir- búning fundarins, ásamt þeim Þor- steini Sverrissyni hjá Þróunarfélaginu og Hans Aðalsteinssyni hjá Athafna- verinu. Þau málefni, sem tekin voru fyrir á fundinum, voru um hlutverk stjóm- andans sem leiðtoga á nýrri öld, breytingar í starfs- og samkeppnis- umhverfí, leiðtogahugsun, glíman við þversagnir og mikilvægir þættir í fari leiðtoganna, hveijir næðu árangri. Gestir þessa fundar vom þær Hansína B. Einarsdóttir, forstjóri Skref fyrir skref ehf. og Elín Þ. Þor- steinsdóttir markaðs- og sölustjóri hjá sama fyrirtæki. Skref fyrir skref hefur frá árinu 1989 starfað við stjómenda- og starfsmannaþjálfun í fyrirtækjum og stofnunum um land allt og stundað rannsóknir sem veita upplýsingar um ýmsa þætti atvinnulífsins. Þá hefur fyrirtækið einnig hannað ný þjálfunar- verkefni fyrir stjómendur og starfsfólk í atvinnulífmu bæði innanlands og utan. Skref fyrir skref hefur markað sér sérstöðu á Islandi með leiðtogaþjálfun fyrir stjómendur og hlotið sérleyfi á notkun Leiðtoga- tígulsins sem mætir alþjóðlegum kröfum í stjómun. Hansína B. Einarsdóttir sagði í viðtali við Fréttir að um 50 manns hefðu mætt til þessa fundar og það væri mjög góð þátttaka. „Á fundinum vom afskaplega málefnalegar og góðar umræður og okkur Elínu þótti mjög skemmtilegt að blanda geði við hressa Vestmannaeyinga. Þá var allt skipulag frá hendi Stjómunarfélagsins frábært og til stakrar fyrirmyndar. Eg er búin að starfa við þessa hluti í 11 ár og mæta á marga fundi, bæði í Reykjavík og úti á landi, en þetta sló út allt það sem ég hef áður kynnst í undirbúningi og skipulagi og gerði þessa ferð okkar enn skemmtilegri,“ sagði Hansína. ÞÆR Hansína og Elín voru mjög ánægðar með fundinn og ekki síst undirbúning og skipulag Stjórnunarfélagsins. Um 50 manns mættu á fundinn og þar fóru fram málefnalegar umræður og góðar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.