Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Blaðsíða 14
14 Fréttir Fimmtudagur 7. desember 2000 Apótek Vestmannaeyja: Er opið alla daga ársins -Fyrir utan hefðbundinn afgreiðslutíma á virkum dögum, er neyðarþjónusta kl. 17 alla sunnu- og helgidaga í apótekinu er ýmislegt fleira að fá en lyf. Hanna María Siggeirsdóttir, apótekari, segir að á þessum árstíma hafi fólk oft aukna þörf fyrir vítamín og bætiefni, þar sem það borði minna af ferskum ávöxtum og grænmeti en yfir sumartímann. Af slíkum efnum er gnótt í apótekinu. Þá hefur svokallað skamm- degisþunglyndi oft hrjáð fólk á þessum tíma árs og þótt desember sé dimmur eru margir sem finna fyrir svefntruflunum. Raunar eru til lyfseðilskyld lyf við hvoru tveggja, en nýlega hafa komið á markað tvö ný náttúrulyf við þessum kvillum sem kaupa má í lausasölu. í apótekinu er að finna gott úrval af hrein- lætis- og snyrtivörum. Til hreinlætisvara teljast hlutir eins og sápur, hársápur og rakagefandi húðmjólk, en til snyrtivara frekar andlitskrem, förðunarvörur og ilmvörur. Raunar eru ekki skýr skil milli þessara tveggja flokka og mörg þekktustu vörumerkin Magnúsína, Guðfinna og Hanna María sem segir að nú fáist í Apótekinu ný náttúrulyf við vægu þunglyndi og svefntruflunum. eru með vörur í báðum flokkunum en önnur sérhæfa sig í snyrtivörum. Þá er einnig að finna í apótekinu alls konar fylgihluti með snyrtivörunum, bæði fyrir dömur og herra, svo sem skartgripi, slæður, hanska,sokka, að ógleymdum lesgleraugunum. Fyrir nokkrum árum var snyrtivörunotkun karlmanna nær eingöngu bundin við rakspíra og svitalyktareyði. Hanna María segir að þetta hafi gjörbreyst og hlutur karla í snyrtivörum sé sífellt að aukast. Karlmenn noti krem í síauknum mæli, ekki síst andlitskrem og krem eftir rakstur, þá séu þeir ekki lengur feimnir við að lita á sér hárið. Rétt er að benda á að í kvöld, fimmtudaginn 7. desember, eru Apótek Vest- mannaeyja og „Anna og útlitið“ með sérstakt námskeið, sem tengist litavali við snyrtingu og á fatnaði að Hótel Þórshamri og er hægt að skrá sig á námskeiðið í apótekinu í dag. Apótekin eru orðin mjög virkir þátttakendur á gjafavöru- markaðnum og segir Hanna María að það sé meira að gera í apótekinu í desemb- ermánuði en aðra mánuði. Ekki má gleyma allri barnavörunni, en börnum er vel þjónað í apótekinu. Þeir sem þurfa að fá afgreidd lyf um jól og áramót þurfa ekki að örvænta um sinn hag, því neyðarþjónusta er í apótekinu alla hátíðisdagana kl 17. „Ég hef haft opið alla daga ársins, allt frá því ég kom hingað fyrir 6 árum og tók við Apóteki Vestmannaeyja", segir Hanna María. „Ég óska öllum Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári,“ segir Hanna María að lokum. Vöruval: Flestir „Það er langmest keypt af svínakjöti íjólamatinn, yfirleitt léttreyktu," segir Ingimar Georgsson í Vöruvali. „Það virðist orðið ráðandi hjá flestum í dag. Svo er hangikjötið alltaf sígilt líka en ég held að flestir séu með svínakjöt á aðfangadagskvöld, hangikjötið er svo á jóladag eða annan í jólum.“ Ingimar segir að þeir séu líka nokkrir sem vilji rjúpur í jólamatinn og hann útvegi þann mat að sjálfsögðu. í fyrra sagðist hann hafa selt milli 200 og 300 rjúpur þannig að sá gamalkunni jólamatur virðist vera á allmörgum jólaborðum í Vestmannaeyjum. Ingimar segir að salan í desember aukist um 35 til 40 prósent, miðað við aðra mánuði ársins. Á árum áður jókst salan enn meira í desember en Ingimar segir að innkaupatímabilið fyrir jólin hafi teygt sig yfir á lengri tíma, fólk sé hætt að taka öll jólainnkaupin í einu og dreifi þeim yfir á lengri tíma. Vöruval er með ákveðin tilboð í gangi í hverri viku. „Samkeppnin er hörð í með svínakjöt í jólamatinn matvörunni og þýðir ekki annað en taka þátt í henni með tilboðum," segir Ingimar og segir að fólk spái mikið í þessi tilboð og umtalsvert meiri sala sé á þeim vöruflokkum sem eru á tilboði hverju sinni. „í desember stendur mikið til hjá okkur í þeim efnum og ég á von á að fólk eigi eftir að verða undrandi á sumum þeim tilboðum sem þá verða kynnt,“ segir Ingimar. Vöruval er opið til kl. 19 alla daga vikunnar en Ingimar segir að auk þess verði opið einhver kvöld lengur en venjulega eins og venjan er í desember. En hvenær kemst svo kaupmaðurinn í Vöruvali heim á aðfangadag til að halda sín jól? „í fyrra var ég kominn heim um hálffimmleytið á aðfangadag og það þótti bara nokkuð gott." Starfsfólk Ingimars í Vöruvali er löngu komið í jólaskap og þær Margrét og Elín Þóra settu upp viðeigandi höfuðföt í tilefni aðventunnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.