Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Qupperneq 20
MAGNÚS fimmtugur Þær hafa sennilega ekki verið stærri afmælisveislurnar sem haldnar hafa verið af einstaklingum í Vestmannaeyjum en veisla sú er Magnús Kristinsson útgerðarmaður hélt á laugardagskvöldið í Týsheimilinu. Magnús, sem varð 50 ára þann 3. desember fékk til sín um 300 gesti og var ekkert til sparað í mat og drykk og í lokin var dansiball fram á morgun. Hér er hann með Lóu Skarphéðinsdóttur eiginkonu sinni og bróðursyni, Kristni Birkissyni. Atvinnulausir nálgast hálft hundrað Enn fjölgar þeim sem skráðir eru atvinnulausir í Vestmannaeyjum. Seinnihluta nóvembermánaðar fór tala þeirra yfir 30 en í gær hafði heldur betur fjölgað á þeirri skrá. þá voru 43 skráðir án atvinnu og er þetta hæsta tala yfir atvinnulausa sem sést hefur um langt skeið. Því miður eru ekki líkur á að þessi tala eigi eftir að lækka á næstu dögum, a.m.k. ekki ef tekið er tillit til þess að í blaðinu í dag er greint frá uppsögn áhafnarinnar á Bylgju, svo og uppsögn 17 starfsmanna Isfélagsins. Rútuferðir - Bus tours Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM (3)481 1909 - 896 6810-fax 4811927 Sendibílaakstur - innanbæjar Vilhjálmur E 481-2943 • 897-1178 eJ íergsteir símlfei isson miiiL H vítasu n n u ki rkja n: Greiðir ekki fasteignaskatt -frekar en aðrar kirkjur - Af+ur á móti eru fasteignagjöld greidd af öllum húseignum í síðasta blaði var greint frá óánægju kaupmanna í Vestmanna- eyjum með það að farandsalar úr Reykjavík hefðu sett upp helgar- markað í Hvítasunnukirkjunni. I þeirri grein var sagt að hvítasunnu- menn greiddu ekki fasteignaskatta af húseign sinni. Þessu vilja hvítasunnumenn mót- mæla. Því til sönnunar hafa þeir lagt fram yfírlit frá Vestmannaeyjabæ um álögð fasteignagjöld fyrir húseignina Vestmannabraut 19, frá 1997 til 2000, svohljóðandi: Árið 1997 kr. 270.463 Árið 1998 kr. 384.213 Árið 1999 kr. 145.496 Árið 2000 kr. 254.758 Fasteignagjöld eru samsett úr sex liðum, fasteignaskatti, lóðarleigu- gjaldi, holræsagjaldi, vatnsgjaldi, sorphirðugjaldi og sorpeyðingargjaldi. Af þessum sex liðum vegur fast- eignaskattur þyngst, en hann er 0,4% af íbúðum, íbúðarhúsum, sumar- bústöðum, útihúsum og mannvirkjum á bújörðum en 1,35% af öllum öðrum fasteignum. Kirkjur, skólar og ámóta byggingar eru undanþegin greiðslu fasteigna- skatts, eins og skýrt var tekið fram í áðumefndri frétt. Aftur á móti þarf að greiða af þeim önnur fasteignagjöid, hina fimm liðina, og þau hafa verið lögð á Hvítasunnukirkjuna eins og aðra. Eins og áður segir vegur fasteignaskatturinn þyngst, getur numið allt að 50% af samanlögðum fasteignagjöldum. Fréttin í síðasta tölublaði Frétta er því rétt að öllu leyti. Hvítasunnumenn greiða ekki fasteignaskatt af húseign sinni, enda væru þá ofangreindar tölur verulega hærri. Áftur á móti eiga þeir að greiða, eins og aliir aðrir, hol- ræsagjald, vatnsgjald og sorpgjöld, það eru þær tölur sem fram koma í yfirliti þeirra. Kveikt á jólatrénu Á morgun, föstudag, kl. 17 verður kveikt á jólatrénu á horni Bárustígs og Vesturvegar. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar, flytur ávarp og séra Bára Friðriksdóttir flytur hugvekju. Lúðrasveitin leikur og barnakór syngur. Að sjálfsögðu verða svo jólasveinar á svæðinu. „CREAMOf ' '»CKEN SOU'’ CRtAM Of ..« ipMtAGUS SOUf . CREAM Of A ^USHROOM . soupJ | 'Wf ijUchttl Jólatilboð 7. des UESTURVEGI18 saltstangir, 150gr. 59 kr. - áður 79,- saltkringlur, 200gr. 99 kr. - áður 120, saltstangir, 250gr. 99 kr. - áður 118,

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.