Harmoníkan - 01.02.1988, Page 11
Valdi
r
i
Dalseli
aði þar á sínum fyrsta dansleik, þá að-
eins 14 ára eins og áður segir. Þau
voru tónelsk systkinin í Dalseli, því
auk þeirra Valdimars og Leifs þá léku
systurnar Ingigerður og Margrét líka
á harmoníkur og bróðirinn Hafsteinn
á trommur. Léku þau systkinin víða á
dansleikjum og þótti það lofa góðu
um gott ball ef spilararnir komur frá
Dalseli.
Árin hafa liðið og enginn hefur tölu
á þeim hljóðfæraleikurum sem Valdi-
mar hefur leikið með, eða þá á þeim
dansleikjum sem hann hefur spilað,
fyrir norðan, sunnan, á suðurnesjum
og í Vestmannaeyjum, á lokaböllum
eða þjóðhátíð. Til Eyja var ferðast
með skipi og til að verða ekki sjóveik-
ur, þá spilaði hann á nikkuna allan
tímann á sjóferðunum. Já, það var
víða farið við misjafnar aðstæður
sem ekki verða tíundaðar hér, og
meðferðin á hljóðfærunum var ekki
alltaf til fyrirmyndar. Einu sinni sem
oftar var farið á gömlum pallbíl sem
i daglegu tali var nefndur Trölli. Það
var hávetur, hörkufrost en hljóðfær-
in sett aftan á pallinn og breytt segl
yfir.
Siðan var ekið sem leið liggur aust-
ur að Hellu, en þar voru þau tekin inn
í hús og látin hlýna því þau ,,grétu“
eftir að þau komu inn í hitann. Eftir
að hafa spilað á þau á balli fram á
nótt, var búið um þau aftur á Trölla
á sama hátt og áður, var svo ekið í
Landeyjarnar til að sækja hesta.
FraAlþýðuhiísinu IHafnarfirði — Valdi-
marfyrir miðju og með honum er Halldór
fráKárastöðum en nafn á trommara vant-
ar.
Valdimar Auðunsson frá Dalseli
er höfundur lagsins Töfrandi
Tónar og eru nóturnar af því í blað-
inu. Þeir sem dvöldu á landsmóti
SÍHU síðastliðið sumar ættu að
kannast við það því það varð einskon-
ar einkennisstef fyrir mótið.
Valdimar er fæddur í Dalseli 11.
desember árið 1914, og er landskunn-
ur lagasmiður og harmoníkuleikari,
sem hefur spilað á dansleikjum frá 14
ára aldri allt fram til dagsins í dag.
I Dalseli, æskuheimili Valdimars
var bæði verslun og barnaskóli og var
því bærinn miðpunktur i sveitinni.
Fyrsti dansleikur sem hann man eftir,
þá á fimmta ári, var haldinn í vöru-
skemmu verslunarinnar. Fólk úr
sveitunum í kring kom fótgangandi á
ballið, og urðu margir að vaða vatns-
föll með heimasæturnar á bakinu.
Valdimar gekk í skólann í Dalseli
og i frímínútunum stalst hann í har-
moniku sem Leifur bróðir hans átti,
en hún þótti of fint hljóðfæri til að
Feðgarnir Valdimar og Auðunn.
vera barnaleikfang. Hann náði fljótt
tökum á hljóðfærinu og fór að Múla-
koti í Fljótshlíð ásamt Leifi, og spil-
Hjónin Valdimar og Þuríður.
11