Harmoníkan - 01.05.1988, Page 4
Litið á hluta S.A.M. harmoníkunnar frá öllum hliðum.
Norræn SAM vinna
S.A.M. er skammstöfun á Scandi-
navian Accordions Munkfors, það er
heiti á hinni nýju harmoníkuverk-
smiðju sem sænskt hlutafélag er eig-
andi að í Munkfors. Nafnið er
skammstafað SAM, og er vel til fallið
að notast fyrir orðið samvinna, þó
það standi ekki beinlínis fyrir þvi.
Á flestum norðurlandatungunum
hefst orðið á þessum upphafsstöfum.
Samningur um sölu og dreifingu á
hljóðfærum frá verksmiðjunni hér á
landi var gerður um miðjan mars
1988, við okkur útgefendur blaðsins
„Harmoníkan“. Af þessu tilefni og að
beiðni Lars Ek sölustjóra verksmiðj-
unnar fórum við til Svíþjóðar að
kynna okkur það helsta sem máli
skiptir í framleiðslu og hönnun. Eins
og um var rætt tók Lars Ek á móti
okkur á járnbrautarstöðini í Karlstad,
eftir að við höfðum skrölt í 3 tíma í
lest frá Osló. Kveðjur voru hlýjar, en
skornar niður við trog á tíma, eftir 5
mín. átti fréttatíminn að hefjast í
sænska sjónvarpinu, (kl. 7), þá væri
von á fréttamynd úr harmoníkuverk-
smiðjunni. Áður en varði vorum við
komnir að hótel Vinn þar sem allt
gengið átti að búa, Lars, kona hans,
Þorsteinn og undirritaður. Við glápt-
um eftirvæntingarfullir á skjáinn, en
ekki kom fréttin, í staðinn fengum við
að heyra hve sænska sjónvarpið er
vafasöm stofnun, öðruvísi færi ís-
lenska sjónvarpið að, um árið þegar
viðtalið var tekið við mig í isl. óper-
unni þá sögðu sjónvarpsmenn að
Verið að festa tónana í tónastokkana
(vaxað)
fréttin kæmi um kvöldið, og hún
kom, þvílíkur áreiðanleiki, sagði sá
sænski. Ekki kom fréttin heldur
næsta kvöld, þá fór fréttatíminn að
mestu í ómeltanlega tuggu um skóla-
mál svía. Við þetta áfall var sjónvarp-
ið sneitt öllum stjörnum, hafi þá ein-
hverjar verið fyrir. Munkfors þar sem
verksmiðjan er til húsa í skólahús-
næði, nokkuð við aldur, er í Várm-
landshéraði, nálægt Ransáter. Á þeim
stað er stærsta harmoníkumót heims
haldið árlega, er því tilvalið að kíkja
við í verksmiðju S.A.M., ef fólk kæmi
á mótsstaðinn. Hlutafélag S.A.M. fær
góðan stuðning Vármlandshéraðs.
Mikið uppbyggingarstarf þurfti að
vinna til að koma verksmiðjunni á
fót, siðar meir er ætlunin að fram-
leiða allar gerðir harmoníka, og þjóna
ýmsum sérkröfum neytenda. Núver-
andi húsnæði er aðeins upphafið, því
ætlunin er að byggja við síðar. Fram-
leiðendur gera sér fyllilega ljóst, til að
komast með nýa gerð af hljóðfæri inn
á markaðinn sem er ærinn fyrir, þarf
að vanda mjög til verka, ekki síður
vegna þess að um ýmsar nýungar er að
ræða í uppbyggingunni. Ég nefni hér
nokkrar.
1. Harmoníkan er gerð úr stöðluð-
um einingum.
2. Ytrabyrði úr áli.
3. Fjölbreyttir litir.
4. Hægteraðskiptaumlitáhljóð-
færinu.
5. Val á fjölda skiftinga, frá 0—11.
6. Létt og ódýr miðað við gæði.
7. Kaupandi getur sjálfur valið
tónasamsetningu.
8. Handunnir tónar, öll samsetn-
ing handunnin.
9. Vandaðar ólar og taska, er fóðr-
uð úr hörðu efni.
10. Upplýsingabæklingur á ís-
lensku.
Svíar eru ekki nýgræðingar í
harmoníkuframleiðslu, öðru nær, þar
voru fyrrum nokkrar verksmiðjur,
eins og t.d. „Hagström“ sem mest er
þekkt og lifði lengst.
I þessu gamla skólahúsi er verksmiðja
S.A.M. til húsa, virðulegt hús með sáL
Við erum bundnir þeim kvöðum að
selja hljóðfærin á svo til sama verði og
í öðrum löndum. Verðið hér kemur til
með að vera lægra en annarsstaðar, þó
ekki muni miklu, því fengum við leyfi
til lækkunar.
Það mun ekki standa á okkur að
gefa upplýsingar. Ýmsar tafir hafa
hrjáð framleiðendur, en vonast er til
að þröskuldar og ljón sem verið hafa
í veginum séu á braut.
Hilmar Hjartarson
MOLAR
Harmoníkuleikarinn Guðjón Matt-
híasson hefur nýlokið upptöku á nýrri
plötu. Hvenær platan kemur út er
ekki vitað sem stendur, en trúlega
verður það á þessu ári.
Eftir því sem við höfum frétt, þá
mun harmoníkuleikarinn Grétar
Geirsson vera með Guðjóni á þessari
plötu, auk annarra.
4