Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 7

Harmoníkan - 01.05.1988, Síða 7
ur til að forvitnast um áhuga 12 ára gamallar stúlku á harmoníkunni Leist nokkuð vel á þverflautuna, en ... Drífa er fædd 7unda desember 1975, og hóf tónlistarnám í forskóla Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Þegar verið var að kynna öll möguleg hljóð- færi á hljóðfærakynningu í tónskól- anum, þar á meðal harmoníku leist mér nokkuð vel á þverflautuna en endanlegt val varð harmoníkan, segir Drífa. Svo sleppti ég einu ári úr segir hún ennfremur, en brá mér þegar tón- skólinn byrjaði um haustið ’85 til Guðna Þ. Guðmundssonar kennara og sagðist vilja læra á harmoníku, þar hef ég verið siðan. Drífa hefur komið nokkrum sinn- um fram með kennara sinum og fleir- um, á jólaböllum, fyrir gamla fólkið og bæjarstjórn Hafnarfjarðar þegar kveikt var á jólatrénu fyrir jólin ’86. Aðallega leikur Drífa íslensk dægur- lög, hún hugsar sér að halda áfram námi. Foreldrar hennar eru Þórarinn Guðlaugsson frá Hafnarfirði og Inga Ingimundardóttir, ættuð úr Kjós. Drífa stundar fleiri áhugamál m.a. skák, er skólameistari Víðistaðaskóla 12 ára og yngri, er í badminton og hef- ur unnið til verðlauna í ritgerðar- samkeppni. Anna K. Vilhjálmsdóttir Anna K. Vilhjálmsdóttir er frá Húsavík, þar náði ég tali af henni í lok stórhátíðar H.F.Þ., 16. apríl í Félags- heimilinu. Ég sagðist vera að safna efni í blaðið „Harmoníkan“ og hefði það markmið í þessari ferð m.a. að ná til ungs fólks sem léki á harmoníku. Eftir að Anna hafði setið fyrir, beindi ég fyrstu spumingunni inná tónlistar- A nna K. Vilhja'lmsdóttir. brautina. — Ég byrjaði að læra á píanó í barnaskóla, alls þrjá vetur. Einn af kennurum mínum þar var Reynir Jónasson, orgel- og harmon- íkuleikari. Þar var svo ekki fyrr en 1986 að ég tók til við nikkuna, og um síðastliðin áramót gekk ég í H.F.Þ., eftir að hafa verið einn vetur í Tón- listarskóla Húsavíkur. Reyndar hafði ég áður verið að æfa með fimm manna hóp, og er svo enn. Anna gerði mig aldeilis undrandi þegar ég spurði hvort hún ætti fleiri áhugamál. — Hef endalaus áhugamál var svarið. Ég er íþrótta- og almennur kennari og starfa við hvorutveggja, hef þjálfað íþróttafélag fatlaðra í Reykjavik frá ’82—86, farið oft með fötluðum á mót erlendis. Svo þjálfa ég ýmsa hópa, er t.d. með kvennaleik- fimi og þolfimi, einnig stunda ég þrek og blak. Af öllu þessu hef ég mikla ánægju segir Anna að lokum. Hún er fædd 1959, foreldrar Védis Bjarnadóttir og Vilhjálmur Pálsson. Já margt er á áhugamálalistanum, og greinilega ekki setið auðum höndum, og óskum við Önnu áframhaldandi velgengni á þessari braut. H.H. Gamlar myndir úr Eyjum Drífa Þórarinsdóttir. Þessar gömlu myndir fengum við að láni hjá Gísla Eyjólfssyni frá Vest- mannaeyjum, en hann er nú búsettur í Kópavogi. Verið getur, að einhverjir kannist við þessa menn sem á mynd- unum eru og hafi gaman af. Því miður höfum við ekki náð sambandi við neinn harmoníkuunnenda í Eyjum ennþá, en verið getur að myndirnar fiski upp harmoníku-eyja-peyja. Við þökkum Gísla fyrir lánið á myndun- um. Frá vinstrL A rni Finnbogason frá Norð- urgarði, BjörgvinPálsson fráBrekkuhúsi, Haraldur Eiríksson og Kristmundur Sæmundsson frá Draumbæ (myndin er fráu.þ.b 1930). Hjálmar Eiríksson frá Vegamótum, bróðir Haralds (mvnd frá u.þ.b. 1920). 7

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.