Harmoníkan - 01.05.1988, Qupperneq 10

Harmoníkan - 01.05.1988, Qupperneq 10
MOLAR „Skarfurinn" dansar með tilþrifum við Önnu KristinsdóttirformannsfrúH.U.V., á tíu ám afmœli H.F.Þ. Jósteinn Finnbogason Hann er öllum kunnur á Húsavík og þótt víðar væri leitað, sem trillukarl, harmoníkuleikari, dansari og hvaðeina. í heiminn var hann bor- inn árið 1909, og byrjaði að spila á nikku 16 ára. Veturinn 1934 eyðilagð- ist hún, fraus í hel er ég fór með hana fram í Laug, var fallegt tæki m. norsk- um gripum, 4. kóra, hét H.B. Gera. Var lögð skelplötum, hún kostaði átta hundruð kr., sem ætlaði mann alveg að drepa þá segir Jósteinn. Svo setti ég hana við heitan ofn til hún þiðnaði, allar fjaðrir brustu og ég varð að fara heim með ruslið í töskunni, lék ekkert næstu 25 árin. Sjómenn á Húsavík gáfu mér nikku þegar ég varð fimm- tugur, Veltmister, m. sænskum grip- um, aftur er ég varð sextugur, Skandali og á sjötíu ára afmælinu Hafblik — í tilefni 10 ára afmælisins sendir okkar aldni og siungi vinur „Skarfur- inn“ félaginu svohljóðandi bréf: Harmoníkufélag Þingeyinga, kæru félagar tóna og gleði! Senn líður að því að ég lækki flugið, fjöðrum og vængjum fækkar, hugur þyngist og heilabúið tekur ekki lengur við nýjum tónum (þó heilabúið sé ekki stærra en kríuegg). Mín heitasta von er sú; að eiga enn- þá eftir að líta miðsumarssólina með sínu yndislega, fagurskrýdda haf- Pigini, hana útvegaði Reynir Jónas- son. Eftir 50 ára afmælið breyttist fingraferðin, Haraldur Björnsson hjálpaði mér á nýja kerfið. Ég hef stundað sjómennsku í 65 ár, er latur í landi. Sjórinn heillar mig, uni mér þar svo vel að ég syng hástöfum. Þegar við Haraldur lékum saman kölluðum við okkur Laskabúta, síðar vorum við 4 saman þá hét hljómsveitin Úrelding. Jósteinssaga Finnbogasonar er auð- vitað miklu lengri, vonandi fæ ég tækifæri síðar í þá átt að totta meir upp úr hetjunni. í lokin læt ég fylgja bréf sem Jósteinn skrifaði til félags síns, það sýnir hvaða hug hann ber til þess. (Áður birt í 10 ára afmælisblaði H.F.Þ. 1988). Tónaflóð bliki. Þar er næg fyrirmynd, sem þyrfti að breyta í tónaflóð sem breiddist yfir allt tónasullið sem nú flæðir yfir og eitrar fagra hljóma. Góðu vinir, sem ég geri ekki upp á milli. Meðal ykkar hefi ég notið þess sem ég virði mest, — gleðinnar. Gang- ið áfram sömu heilaslóð og þið hafið gengið síðastliðin tíu ár og teygið tón- ana nógu lengi og langt. Heill fylgi hópnum mínum kæra. Jósteinn Finnbogason. í bandaríska harmoníkufréttabréf- inu The Bellow er greint frá því að daninn Mogens Ellegaard hafi verið í tónleikaferð, og m.a. spilað í Noregi og á stað sem heitir Vitasaari sem er í Finnlandi. Með í ferðinni var eigin- kona Mogens sem heitir Marta sem einnig er harmoníkuleikari. Var það sérstaklega tekið fram að þau hafi leikið nýtt verk eftir íslenska tón- skáldið Þorkel Sigurbjörnsson sem nefnist „Amiable Conversation“, sem er verk fyrir tvær harmonikur og slag- verk. • í desember s.l. var haldinn hinn ár- legi dagur tangósins í Argentínu. Það er stórhátið, og mikið um að vera, sér- staklega í stórborgum eins og Buenos Aires og Rosario. Tangóinn er upp- runninn í Suður-Ameríku, og hefur verið leikinn mikið á bandoneon og einnig á gítar. Hin síðari árin hafa fleiri hljóðfæri verið tekin með í flutninginn, og eins hefur hann fengið á sig „jasskenndan“ stíl. Fyrir þá sem ætla að ferðast til Frakklands og hafa gaman af tangó- tónlist, skal bent á, að franska sjón- varpið, TV Antannae 2, er með þessa tónlist á dagskrá, milli kl. 16:35 og 17:15, á hverjum sunnudegi. Sænski harmoníkuleikarinn Ro- land Cedermark, varð 50 ára í apríl s.l. Roland er sennilega tekjuhæsti har- moníkuleikari á Norðurlöndum í dag. Hann hefur leikið inn á 13 LP plötur frá því á árinu 1976, og hafa plötur hans selst í yfir 600.000 eintökum. Þær eru þegar fluttar til Bandaríkj- anna, og er þar að verki bandaríski harmoníkuleikarinn Dick Contino, og eins hefur bretinn Malcolm N. Gee verið að athuga um að selja plötur hans. Þó að menn séu mishrifnir af Roland Cedermark, þá verður þó að viðurkenna þá staðreynd, að fáir har- moníkuleikarar vekja jafnmikinn áhuga á harmoníkunni hjá fólki sem hefur sýnt henni áhugaleysi áður. Stíll hans hefur vakið athygli og hafa plötur með leik hans verið mikið spil- aðar í útvarpsstöðvum um öll Norður- löndin og víðar. H.H. 10

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.