Harmoníkan - 01.05.1988, Page 11
Frd verðlaunaafhendingu a' Hótel Borg.
Frd vinstri erJón Sigurðsson, Kristjana Valdi-
marsdóttir og Valdimar Auðunsson
Danslagakeppni
Hótel Borgar 1988
Apálmasunnudag, 27. mars s.l.
lauk annarri danslagakeppni
Hótel Borgar.
Fyrsta keppnin var haldin árið 1986
og bárust þá nálega 120 lög.
í þetta sinn voru lögin sem bárust
heldur færri, en að gæðum ekki síðri.
Eingöngu var um lög við hefðbundna
gamla dansa að ræða.
Hótel Borg gaf vegleg peningaverð-
laun, fyrstu verðlaun voru kr. 60.000,-
önnur kr. 25.000.- og þriðju kr.
15.000.-.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ann-
aðist flutning keppnislaganna, söngv-
arar voru Hjördís Geirs og Trausti
Jónsson.
Keppninni var þannig hagað að
tuttugu og fimm lög voru leikin, fimm
á kvöldi og af þeim komust tíu í und-
anúrslit og að lokum sex lög, sem
kepptu til úrslita.
Einn af okkar elstu harmonikuleik-
urum og lagasmiðum Valdimar J.
Auðunsson frá Dalseli kom, sá og
sigraði, því hann vann bæði fyrstu og
önnur verðlaun fyrir lögin Kveðju-
stund og Nótt á fjöllum, textana gerði
dóttir hans, Kristjana Unnur. Þriðju
verðlaun hlaut Hörður Hákonarson
fyrir lagið Sjómannapolka, texta
gerði Jón Sigurðsson.
Um Valdimar er það að segja að
hann er ekki óvanur að taka við verð-
launum fyrir lagasmíðar, því tvö af
lögum hans, Stjarna lífs míns og Ást-
artöfrar, hlutu fyrstu verðlaun í
keppnum S.K.T., auk þess sem hann
hefur um árabil verið einn vinsælasti
harmonikuleikari austanfjalls, en
hann býr á Grenstanga í Austur-Land-
eyjum. Áður en hann fluttist þangað
stundaði hann akstur í Reykjavík en
hljóðfæraleik um helgar og eiga
margir góðar minningar frá þeim
tíma.
Frá Herði hafa áður komið ágæt
lög og auðséð er að þar er vaxandi
höfundur, sem góðs má vænta af í
framtíðinni.
Ég hef verið spurður að því hvort
mér finnist slík keppni, sem þessi eiga
rétt á sér. Því er til að svara að mér
finnst þessi keppni vera meiri menn-
ingarviðburður en Evrovisionkeppn-
in, þó minna sé blásið í lúðra vegna
hennar. í danslagakeppni Hótel Borg-
ar er ekki farið eftir ákveðnu formi,
sem þjónar þeim eina tilgangi að falla
í þann einhæfa farveg, sem
Evrovisionkeppnin óneitanlega er
fallin í og flestum finnst eftir því öm-
urlegri sem meira heyrist af þeirri
verksmiðjuframleiðslu.
í þeim lögum, sem bárust í Hótel
Borgarkeppnina, var sönggleðin og
löngunin til að gefa eitthvað frá sjálf-
um sér yfirleitt í fyrirrúmi.
Annað atriði, sem vert er að benda
á er það að höfundar laga við gömlu
dansana hafa yfirleitt enga möguleika
á að koma þeim á framfæri, en þarna
fá þeir vettvang sem þeir geta notað
sér því hugmyndin er að bestu lögin
komi út á plötu áður en langt um líð-
ur.
Það er alvarlegt íhugunarefni fyrir
þá sem hafa gaman af þeirri tónlist,
sem byggð er upp á harmoniku hversu
útvarpsstöðvarnar útiloka hana að
mestu og þess vegna er erfitt að kynna
plötur, sem út eru gefnar, með þess
konar lögum. Má í því sambandi
nefna að plata sú, sem gefin var út
eftir keppnina 1986, útsett af Ólafi
Gauk og sungin af átta úrvalssöngv-
urum hefur varla heyrst, nema á
Stjörnunni og eitt og eitt lag í Ríkisút-
varpinu. Mér finnst sérstök ástæða til
að þakka Ólafi Laufdal og stjórnend-
um Hótel borgar fyrir þeirra frum-
kvæði að þessari keppni, hún var
algjörlega kostuð af þeim og þeirra
hugmynd.
Vafalaust má margt að fram-
kvæmdinni finna því margar og mis-
jafnar skoðanir hef ég heyrt um fyrir-
komulag keppninnar, en ef okkur
gefst tækifæri til að halda þessum
keppnum áfram, tel ég að við höfum
lært af mistökunum og séð hvað má
betur fara í framtíðinni.
Að lokum vil ég segja þetta við höf-
unda laga og texta: Haldið þið fram,
þó þið fáið ekki verðlaun í eitt skipti,
getið þið hitt á perlu sem lifir, í næsta
sinn.
Öllum þeim sem komu á Hótel
Borg, meðan keppnin stóð, sendi ég
kæra kveðju með þakklæti fyrir
komuna.
Jón Sigurðsson
HITTUMST í GALTALÆK 1. 2. OG 3. JÚLÍ
11