Harmoníkan - 01.05.1988, Page 25

Harmoníkan - 01.05.1988, Page 25
Á allra síðustu stundu að er vanalegt að fólk verði að taka smá sprett eftir strætó, en öllu óvenjulegra er að reynt sé að hlaupa uppi flugvélar. Ingimar Einarsson formaður H.U.V., og Anna Kristinsdóttir fengu að reyna sig á þennan hátt um daginn. Þau ætluðu að koma í flugvélina á Reykjavíkurflugvelli, þeirra erinda að vera með norður til Húsavíkur á af- mælishátíð H.EÞ., en einhverra hluta vegna voru þau ekki mætt er kallið kom um að ganga um borð. Flugleiða- vélin Náttfari beið á vellinum, dyrum var lokað og vélar ræstar, við vorum nær því hætt að heyra tístið i hænu- ungum sem voru í miklu magni fram- antil i vélinni, jafnvel orðin efins um hvort flýildið væri jarðfast eður ei, því komið var langt fram yfir tilkynntan brottfarartíma. Þá gerðist það, maður hrökk í hnút, hurð var rifin upp framan við vinstri hreyfilinn, svo að vélarhljóðið yfir- gnæfði hænuungatístið algerlega. Hurðinni var lokað aftur, þess í stað var afturhurðin opnuð og flugþjónn kiptti Ingimar og Önnu upp í vélina móðum og másandi, með eplakinnar. Manni fannst þau vera að koma í vél- ina á flugi, jafnvel yfir Hvanneyri. Til sölu Excelcior, Genavox harmoníka, allskonar skipti möguleg. Árni, sími (91) 75527 Svo kom hið rétta í ljós, þau höfðu fengið kolrangan brottfarartíma upp- gefinn eftir að hringlað var með tím- ann vegna frestunar. Þarna skall hurð nærri hælum, svo sannarlega sluppu þau um borð á allra síðustu stundu. H.H. —\ Hljómborð. Hljómborðs undirbúnaður Lokur. Hljómbotn- Tónastokkar, Tónaplötur (m. tungum) Þversnið harmoniku Nótur (hvítar og svartar) Hljómskiptingar Hlíf Skiptingasleðar Hægri r hlið Hús x Gripplata 4 bassa raðir • Belgur . Vinstri hlið Bassahlíf Bassabúnaóur Lofttakki (vindbassi) 21

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.