Harmoníkan - 01.10.1988, Page 20
Harmoníkufélag Reykjavíkur
Seinni hluta vetrar var H.R. með
skemmtun á Hótel Borg þar sem fram
komu bæði fullorðnir og börn sem
einleikarar og einnig fjölmenn har-
monikuhljómsveit. Svo illa vildi til að
F.H.U. var með skemmtun á sama
tíma í Templarahöllinni og missti
undirritaður því að mestu af skemmt-
un H.R.
Það er orðið árvisst hjá H.R. að
halda skemmtanir á vorin í veitinga-
húsinu Broadway, og í maí s.l. var
hátíðin haldin í samvinnu við
Almenna músíkskólann.
Oft er veðrinu kennt um slæma að-
sókn og er þá oftast ef ekki alltaf átt
við slæmt veður. En nú var ekki hægt
að ásaka veðurguðina um slæmt
veður því þetta varð heitasti dagur í
maí sem mælst hefur í Reykjavík frá
upphafi. Veðrið getur því líka orðið of
gott eins og þennan dag með yfir 20
stiga hita og sólskin. Það verður því
að teljast gott að fá eitthvað af fólki til
að fara inn í gluggalaust hús um
miðjan dag jafnvel þó boðið sé upp á
harmoníkutónlist.
Venjulega hefur Harmoníkufélag
Reykjavíkur fengið gesti utan af landi
til að leika á þessum vorsamkomum
en nú sáu félagarnir úr H.R. sjálfir um
allan hljóðfæraleik. Að vísu lék blás-
arasveit Almenna músíkskólans
nokkur lög en það var harmoníku-
hljómsveit H.R. sem endaði skemmt-
unina með leik sínum.
Þ.Þ.
Barmmerki
Höfum látið útbúa þessi
barmmerki fyrir íslenska
harmoníkuunnendur — ATH að
fánalitirnir í merkinu eru í LIT.
Verð aðeins kr. 150.-
Hringið eða skrifið
HARMONÍKAN
tímarit harmoníkuunnendans
FÉLAG HARMONÍKUUNNENDA
REYKJAVÍK
— Frá Skemmtinefnd —
Auglýsing um skemmtifundi fram til
áramóta, í Templarahöllinni viö
Skólavörðuholt.
Sunnudaginn 6. nóvember kl. 15—18
Sunnudaginn 4. desember kl. 15—18
Fjölbreytt tónlistardagskrá,
kaffiveitingar, dans.
Allir Velkomnir
Skemmtinefnd
20