Harmoníkan - 28.02.1992, Blaðsíða 5
Félagið Nikkólína f
í Dalasýslu 10 ára "
Nikkólína er eitt af minnstu fé-
lögum landsins, félagafjöldi er 27
manns, flest allt bændur. Félags-
menn sýndu mikinn dugnað og
myndarskap að stofna til þessarar
glæsilegu hátíðar. Öllum formönn-
um harmoníkufélaga í landinu voru
sendir boðsmiðar ásamt okkur út-
gefendum Harmonrkunnar, það
sama átti við um maka.
Mæting var mjög góð af hálfu
boðsgesta og settu menn ekki vega-
lengdir fyrir sig þrátt fyrir að í nóv-
ember geti allra veðra verið von,
enda skall hurð nærri hælum. Við
sem ókum Bröttubrekku á laugar-
deginum lentum í hálku, en enn var
snjólaust á láglendi og besta veður.
Um 13.30 tók að hvessa og ganga á
með éljum. Rúta sem fór með fólk af
Reykjavíkursvæðinu vestur tafðist
þar mikið vegna hálku og fannkomu.
Varð að setja á keðjur og aka Heidal.
A sunnudag var kominn þæfingur en
á mánudag skall á kolvitlaust veður
um norðan og vestanvert landið með
tilheyrandi staurabrotum og alls ekki
hundi út sigandi, hvað þá heldur
harmoníkuunnendum.
Núverandi formaður Nikkólínu er
Ríkharður Jóhannsson bóndi í Gröf.
í upphafi veislunnar bauð hann gesti
velkomna og sagðist vonast til að
viðstaddir mundu eiga ánægjulega
samverustund í vændum, að svo
mæltu sagði hann 10 ára afmælishá-
tíð Nikkólínu setta.
Ríkharður kynnti því næst veislu-
stjórann Guðbjart Björgvinsson
bónda á Kvennahóli.
í kynningu um stofnun félagsins
Nikkólínu sagði Guðbjartur að þá-
verandi tónlistakennari í Búðardal
Kristján Ólafsson hafi verið áhuga-
samur um stofnun slíks félags og er
mönnum fannst tími til kominn brá
hann sér til Hvanneyrar að kynna sér
starf Harmoníkuunnenda Vestur-
lands. Upp úr því var félagið stofnað
og fyrsd formaður þess einmitt
Kristján Ólafsson, stofnfélagar voru
alls 10 manns.
Fyrsta árshátíðin fór fram fyrsta maí
5
í byrjun vetrar bættist harmoníku-
félagið Nikkólína í hóp þeirra félaga
sem orðin eru 10 ára.
Stofndagur félagsins er 7. nóvem-
ber 1981. Haldið var veglega uppá
afmælið laugardaginn 9. nóvember í
hinu myndarlega samkomuhúsi
Dalbúð, í Búðardal.
Formaður Nikkólínu t/v, og veislustjórinn Guðbjartur Björgvinsson
Stjórn og skemmtinefnd ásamt mökum. Frá vinstri: Sigurður Pétur Guðjónsson,
Jóhann Elísson, Erna Einarsdóttir, Guðbjartur Björgvinsson, Ríkharður Jó-
hannsson form. Nikkólínu, Jarþrúður Kristjánsdóttir, Jóhann Sæmundsson og
Baldur Friðfinnsson. Lárus Jóhannesson vantar á myndina.