Harmoníkan - 28.02.1992, Blaðsíða 12

Harmoníkan - 28.02.1992, Blaðsíða 12
I Galtalækjarskógi næsta sumar Eins og undanfarin ár þá stefnum við harmoníkuunnendum í Galta- lækjarskóg næsta sumar. Á síðasta sumri sló fjöldi gesta fyrri met, eins og áður hefur verið greint frá og varð því svæðið sem okkur var ætlað þéttsetið. Höfum við því ákveðið að færa okkur um set á stærri og rúmbetri stað þar sem hópurinn verður meira sem ein heild. Vegna fjöldans á síðasta sumri varð hópurinn nokkuð dreifður þar sem þannig háttaði til á staðnum og fyrir bragðið var fólk ekki eins sam- taka og verið hefur undanfarin ár. Lagið sem við birtum nóturnar af „Jói litli“ er eftir Jóhannes G. Jó- hannesson sem lést fyrir nokkrum árum. Jóhannes samdi töluvert af lögum sem hafa náð vinsældum en að auki var hann einn þekktasti harmoníkuleikari á landinu. Jóhann- es las ekki eða skrifaði nótur en þegar hann lést átti hann í fórum sínum nokkur lög sem búið var að setja á blað en hafa þó ekki komið 12 Höfum við því ákveðið að tímasetja atriði sem hafa verið fastir liðir eins og t.d. gönguferð og sameiginlegt borðhald. Þá er aldrei að vita hvað við gerum í tilefni fimmta ársins sem við höldum mótið í Galtalækjar- skógi. Hvort það verður endurtekin „flugeldasýningin fræga“ eða eitt- hvað annað er óráðið. Önnur ástæða þess að við færum okkur úr stað, er sú staðreynd að nokkrir aðrir gestir skógarins sem voru að skemmta sér, sóttu inn á okkar svæði án þess að halda uppi þeim umgengnisvenjum og virðingu fyrir margra augu. Jói litli - er eitt þeirra laga en Garðar sonur hans var svo vinsamlegur að gefa okkur leyfi til að birta hvaða lag sem við vildum. Því getur vel farið svo að við birtum fleiri lög eftir Jóhannes sem ekki hafa sést áður. Grétar Sívertsen setti nóturnar í tölvu og fær hann þakkir fyrir aðstoðina. Þ.Þ. fyrir mótinu sem langflestir harm- oníkuunnendur hafa tamið sér á undanfömum árum. í næsta blaði munum við greina frá því hvað við ætlum að gera og einnig hvaða daga mótið verður haldið. Stöndum saman um að halda virðingu harmoníkunar á lofti og gleymum því ekki þegar við komum saman til að skemmta okkur. Þ.Þ. Jóhannes G. Jóhannesson JÓI LITLI

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.