Harmoníkan - 28.02.1992, Síða 7

Harmoníkan - 28.02.1992, Síða 7
Nokkur hluti gjafanna sem félaginu barst. En dalamenn hafa fleira en vilj- ann, þeir eru líka hugmyndaríkir, ef við athugum merki félagsins nánar sjáum við þar hvítabjörn er stendur upp á afturfæturna og heldur á harmoníku milli framloppanna. Hvítabjörnin er tákn Dalasýslu (skjaldamerki) en Nikkólínumenn fengu leyfi sýslunefndar til að setja harmoníku í fang bjarnarins til nota í merki þess. Eg vona að félagið haldi kröftum hvítabjarnarins um ó- komin ár. Við Þorsteinn Þorsteinsson og konur okkar viljum þakka kærlega fyrir boðið og vonum við getum átt gott samstarf sem fyrr. Til hamingju með 10 árin. H.H. 1988. Guðmundur Gíslason Geirs- hlíð, apríl 1988 - október 1990 til þess tíma er Ríkharður Jóhannsson Gröf tekur við, en hann tók við í okt. 1990oger formaðurnú 1992einsog að framan greinir. Þessir smá punkt- ar úr starfsemi félagsins verða ekki fleiri að sinni en eitt veit ég til við- bótar að Nikkólínumenn hafa verið ötulir að efla kynni meðal annara fé- laga. í Dalabúð var fjölmenni strax í upphafi hátíðarinnar samt vantaði enn hóp frá Reykjavík er tafðist v. ófærðar. Hljómplata með Lars Ek hljómaði og minnti á að í vændum var fagn- aður til heiðurs harmoníkunni. Mat- urinn bragðaðist afbragðs vel enda boðið uppá Dalalamb. Undir borð- haldinu þrumuðu ræður formanna og fulltrúa landsfélaganna með formann S.Í.H.U. í fararbroddi, afhentu þeir jafnframt afmælisbaminu gjafir með tilheyrandi ámaðaróskum. Allt gekk rólega fyrir sig. Mér taldist til að formenn og makar hafi verið frá 8 félögum auk okkar frá blaðinu. Auk heldur kom skemmtileg gjöf frá hinu nýstofnaða félagi á Selfossi þótt ekki væri fulltrúi frá því. Við fengum að heyra í hljómsveit félagsins og eins og venja er hófu þeir leikinn með laginu Nikkólína, það kom skemmtilega á óvart að nokkrir félagsmenn höfðu æft saman kór og sungu nokkur lög t.d. Eg er hinn frjálsi förusveinn. Ung söngkona Ólafía Hrönn Jóns- dóttir hafði sett saman heilmikin brag í poppstíl um félagsmenn og skaut nokkrum tvíræðum skotum á þá, ég held að lagið hafi heitið "NIKKOLÍNA". Eftir matinn, ræður og þakkir for- manns Nikkólínu nálgaðist klukkan miðnætti. Það saxaðist á tímann, en dansinn hófst og dunaði með miklu fjöri, pilsaþyt og fullu dansgólfi fram á nótt. Klukkan hálf fjögur var dansinn stöðvaður eftir fjölda framlenginga og hróp og köll um meira, og jafnvel vilja harmoníkuleikaranna. Halldór Þórðarson Breiðabólstað stjórnaði söng, skipulagði danshljóm- sveitir og fl. Molar Blað Sænska harmoníkusam- bandsins "Dragspelsnytt" hefur valið harmoníkuleikara ársins 1991. Fyrir valinu varð hinn kunni ungi harmoníkuleikari Anders Larson er var á íslandi síðastliðið sumar í tón- leikaferð v/10 ára afmælis S.Í.H.U.ásamt fl. Svíum. Því mætti kannski auka við að Anders Larson er ekki langskóla- genginn á tónlistasviðinu, sjálfur segist hann ekki kunna nótustaf, heldur hefur hann öðru fremur þann eiginleika að þurfa ekki að heyra lag nema einu sinni eða tvisvar þá er það greypt í huga hans eins og á tölvu- disk. Hann verður sæmdur titlinum 14 mars næstkomandi. Harmoníku- mótið í Galta- lækjarskógi verður helgina 3.-5. júlí 1993 7

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.