Harmoníkan - 28.02.1992, Qupperneq 8

Harmoníkan - 28.02.1992, Qupperneq 8
HAKMOMKU- KEMSLA Síðastliðið haust sendum við bréf til allra tónlistarskóla utan höfuð- borgarsvæðisins þar sem beðið var um eftirtaldar upplýsingar: 1. Er kennt á harmoníku við skólann þinn (síðan hvenær)? 2. Hver er kennari? 3. Hvað eru margir nemendur í har- moníkuleik, (hversu lengi hafa þeir stundað nám, og á hvaða aldri eru þeir)? Einnig væri vel þegið að fá vit- neskju í grófum dráttum um það námsefni sem stuðst er við, ef það er sérhæft. Ef hinsvegar er ekki kennsla á harmoníku við skólann, er þá ein- hver í umdæminu sem skólinn bendir hugsanlegum nemendum á að leita til? Bréf þetta er sent öllum tón- menntaskólum landsins utan höfuð- borgarsvæðisins, en um það svæði teljum við okkur hafa sæmilega vit- neskju. Það væri okkur gleðiefni ef þú sæir þér fært að svara þessu bréfi, því okkur langar að geta þess í næsta blaði, sem kemur næst út í byrjun næsta árs. Það var von okkar að geta fengið heildarsýn yfir kennslu á harmoníku á landinu og sendum því út 38 bréf, en hringdum til þeirra sem eru á höfuðborgarsvæðinu. Það skal tekið fram að ekki var spurt um verð á kennslu né lengdar hvers kennslu- tímabils en þeir sem á annað borð svöruðu, veittu góðfúslega upplýs- ingar um það sem spurt var um utan Tónlistarskóla Emils Adólfssonar sem taldi fjölda nemenda vera at- vinnuleyndarmál. Það eru þó okkur vonbrigði hvað fáir tónlistarskólar svöruðu bréftnu eins og sést á eftir- töldu. Það er verðugt viðfangsefni fyrir harmoníkuunnendur á lands- 8 byggðinni að kanna þar sem við á hversvegna bréfinu var ekki svarað, vel er hægt að hugsa sér að greina frá því í næsta blaði ef einhver svör fást. Tónlistarskólinn á Akranesi Kennt hefur verið á harmoníku frá 1986 og á þessu starfsári eru átta nemendur á aldrinum 10-56 ára. Kennari er Bjöm Leifsson og er stuðst við kennsluefni frá Noregi. Skólastjóri er Láms Sighvatsson Tónlistarskóli Stykkishólms Kennt hefur verið á harmoníku við skólann frá árinu 1984 en þó ekki samfellt. Kennari er Hafsteinn Sig- urðsson og em þrír nemendur í ár, sem eru einn 15 ára á öðm ári, einn 11 ára á fyrsta ári og einn 10 ára nemandi á öðm ári. Að sögn skóla- stjórans, Daða Þórs Einarssonar er aðallega notað kennsluefni eftir Pal- mer/Hughes Tónlistarskóli ísafjarðar var í haust með 16 nemendur frá 7 ára. Kennari er Messíana Marzellíus- dóttir sem styðst við kennsluefni eftir Palmer/Hughes og Lars Holm. Tónlistarskólinn á Sauðárkróki Tveir nemendur, báðir á öðm ári, annar er 11 ára en hinn 24 ára Kennari er Rögnvaldur Valbergs- son og stuðst er við kennsluefni eftir Palmer og Hughes. Kennt hefur verið á harmoníku frá 1986. Skólastjóri er Eva Snæbjam- ardóttir. Tónlistarskóiinn á Akureyri Ekki kennt á harmoníku þetta starfsár, að sögn skólastjóra Hrefnu Harðardóttur en hún beinir nemend- um í harmoníkuleik til Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Tónlistarskóli Eyjafjarðar. Skólinn hefur starfað í rúma þrjá vetur og hefur verið kennt á harm- oníku frá upphafi. í ár em nemendur tíu í harmoníkuleik og em misjafn- lega á veg komnir, en þó hafa allir meira en tveggja ára nám að baki. Kennarar em þrír,: Guðjón Páls- son, Ingvi Vaclav Alfreðsson og Gunnar H. Jónsson. Skólastjóri er Atli Guðlaugsson en hann hefur í nokkur ár stjómað hljómsveit Félags Harmoníkuunnenda við Eyjafjörð. Tónskóli Fáskrúðsfjarðar Undanfarin þrjú ár hefur verið kennt á harmoníku við skólann og er kennari Óðinn G. Þórarinsson sem er jafnframt skólastjóri. Kennslubækur sem em notaðar eru t.d. eftir Pal- mer/Huges, Tollefsen og „Spela Dragspel" eftir Lars Holm. Þrír nemendur hófu nám í haust og eru allir byrjendur. Tónlistarskólinn Kirkjubæjar- klaustri Það er í l.ár sem hefur verið kennt á harmoníku er og einn 10 ára nem- andi (drengur) í harmoníkuleik. Kennari og skólastjóri: Einar Melax Tónlistarskólinn í Keflavík Ekki verið kennt á harmoníku í nokkur ár sökum kennaraskorts. (Auglýsir hér með eftir áhugasömum harmoníkuleikara sem vill taka að sér kennsluna) Skólastjóri er Kjartan Már Kjart- ansson. Tónlistarskóli Njarðvíkur Ein 10 ára stúlka er nemandi á fyrsta ári við skólann þetta starfsár en kennsla á harmoníku hefur verið frá stofnun skólans 1976 og hefur Stefán Ómar Jakobsson annast kennsluna. Stuðst er við kennsluefni frá Hohner, „Die Akkordeon Fibel, band 1" eftir von Hans Luder. Skólastjóri er Haraldur Ámi Har- aldsson. Bragi Hlíðberg hefur undanfarin ár haft 2-4 nemendur og í haust vom þeir þrír. Hann hefur notað kennslu- efni úr ýmsum áttum eftir ástæðum, en ætlar í framtíðinni að styðjast að- allega við námsefni eftir Palmer og Hughes. Guðmundur Samúelsson, Reykjavík hóf að kenna á harmoníku s.l. haust. Hjá honum vom 7 nem- endur fyrir áramót og var von um fjölgun nemenda eftir áramót Tónskóli Sigursveins D. Kristins- sonar í Reykjavík hefur kennt á harmoníku í nokkur undanfarin ár. Kennari er Sigurður Alfonsson. f vetur em 7 nemendur í

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.