Harmoníkan - 28.02.1992, Side 16
Sunnudagur 23. júní.
Ferðin frá Húsavík byrjaði í þoku,
en létti til á Öxnadalsheiði og há-
lendið baðaði sig í sólskininu, þegar
ekið var suður Kjöl. Hveravellir voru
ákjósanlegur áningarstaður, nestið
tekið fram og Svíarnir skelltu sér í
laugina.
Nafnlausa lagið hans Anders fékk
sína skím í þessari ferð: „Mazurka í
moldroki á malarvegi", og var leikið
í Gunnarshólma.Fossar voru ennþá á
óskalistanum og Gullfoss bauð upp
á regnboga skreytingu og sefjandi ró
eftir fjallaferðina. Geysir svaf vært,
en Strokkur gaus þrisvar á tíu mín-
útum sérstaklega fyrir okkur.
Sigrún Bjamadóttir á Hellu beið
okkar með lambasteik, sem var
sannarlega vel þegin eftir þessa
löngu ferð.
í Gunnarshólma opnaði hljóm-
sveit H.F.R. tónleikana með „Nótt á
fjöllum“ eftir Valdimar Auðunsson.
Aðsókn var góð miðað við að þetta
var sunnudagskvöld og ekki dans á
eftir. Efnisskráin að mestu óbreytt
og spilagleðin ótrúlega mikil eftir
þessa löngu ferð. Anders lét sig ekki
muna um að taka nokkur aukalög
sérstaklega fyrir Sunnlendinga sem
höfðu beðið í 10 daga eftir þessu á-
gæta listafólki. Móttökurnar á þess-
um tónleikum voru mjög góðar og
gestimir leystir út með gjöfum.
Þegar litið er til baka er erfitt að
hugsa sér að hægt sé að endurtaka
svo vel heppnaða ferð og upplifa
aftur þá einlægu gleði, sem við
fengum að njóta.
Eyþór H. Stefánsson
Jón Ingi Júlíusson
„3. KLÚBBURINN"
Þessa mynd tók ferðamaður við höfnina í Skagen í Danmörku síðastliðið sumar.
Myndasmiðurinn er ekki áhugamaður um harmoníku en hópurinn vakti athygli
hans og því tók hann myndina. Takið eftir að þvottabretti er notað sem áslátt-
arhljóðfæri.
Undanfarin ár hefur harmoníku-
unnandinn Hermóður B. Alfreðsson
komið frá Danmörku um jólin og
boðið til sín vinum og kunningjum í
Djúpið að kvöldi til, milli jóla og
nýárs. Húsnæðið er að vísu ekki
stórt, rúmar um 30 manns en oftast
er nálægt húsfyllir - vinafólk sem
Hermóður kynntist á 25 ára veru
sinni hér á landi. Fyrstu árin var
mikið spilað á harmoníku og sungið
með af og til en síðustu ár hefur orðið
breyting á þessu. Aðeins eru leikin
nokkur lög á harmoníku en lungað úr
kvöldinu fer í sölu og úrdrátt happ-
drættis sem er tæplega rekið með
hagnaði, þar sem vinningar eru fleiri
en gestirnir. Það er álitamál hvort
samkomur eins og þessi, eigi nokkuð
erindi í blaðið en við látum það ráð-
ast eftir framvindu mála.
En Hermóður er eins og áður segir
harmoníkuunnandi, og í júlí næsta
sumar ætlar hann að halda upp á af-
mæli sitt hér á landi. Af því tilefni
ætlar hann að koma með harm-
oníkuleikara, einn eða fleiri frá Dan-
16
mörku til að spila í veislunni. Hefur
Mogens Bækgárd Andersen verið
oftast nefndur í því sambandi en
hann er einn vinsælasti harmoníku-
leikari Dana um þessar mundir.
Við birtum mynd af honum í 2. tbl.
2. árg. á blaðsíðu 16 en tilefnið var
fyrsta hjónavígsla sem framkvæmd
var á harmoníkumóti sem vitað var
um og það var einmitt brúðkaup
Mogens sem var í Ransáter í Sví-
þjóð.
Þ.Þ.