Harmoníkan - 01.10.1997, Qupperneq 5
Margt geríst í ÞrastaskógiS
Eitthvað er að gerast sem kitlar hláturtaugarnar. Annarfrá vinstri sitjandi, yngsti harmoníku-
leikarinn í skóginum 1997 Ingvar Þór Kale lék sitt lag við varðeldinn, hann vann auðvitað til
viðeigandi verðlauna.
Brúðkaup, erlendir gestir, tónleikar,
keppnir, verðlaunaveitingar, markaður og
varðeldur með ilugeldasýningu var hluti
af því sem mótsgestir gátu notið í vot-
viðrasamri tíð um verslunarmannahelg-
ina í ár.
Við getum ekki kallað það annað en
stórviðburð á móti Harmoníkunnar að
fara skyldi fram virðulegt brúðkaup með
öllu tilheyrandi, sannkallaður hátíðisdag-
ur. Hugsanlega í fyrsta skipti á harm-
oníkuhátíð hérlendis, allavega í Þrasta-
skógi. Það var skósmiðssonurinn og for-
maður F.H.U.R. Friðjón Hallgrímsson og
ljósmyndaradóttirin Guðný Sigurðardótt-
ir sem létu pússa sig saman á mótinu.
Undir bláhimni eða svo gott sem ef ekki
hefði verið dumbungsveður. Það stytti
reyndar upp í Faðirvorinu miðju. Nú
hljómaði þeim til heiðurs valsinn Trönd-
erbrura í byrjun brúðkaupsins síðan brúð-
armars Richard Wagner, Bridal Corus og
hin virðulega athöfn gekk í garð. Það var
prestur Oháðasafnaðarins í Reykjavík,
Pétur Þorsteinsson er veg og vanda hafði
af að lesa þeim skilyrðin til að fullnægja
hinni lagalegu hlið hjónabandsskilmál-
ans. Presturinn færði athöfnina út fyrir
hringiðu alvörunnar í léttan búning sem
passaði einkar vel við lífsform brúðhjón-
anna. Hlátrasköllin dundu frá fólkinu
þegar prestur innti Friðjón eftir jáinu og
beindi svo orðum sínum til Guðnýjar og
hugðist kanna hvort hún sýndi jafn mikla
jákvæðni og brúðguminn. Til gamans má
geta þess að Guðný og Friðjón kynntust á
móti Harmoníkunnar fyrir tveimur árum.
Það var líka í fyrsta skipti sem erlend-
ir gestir komu beinlínis á mótið. Þeir
vildu kynnast hvernig við íslendingar
skemmtum okkur við slíkar kringum-
stæður. Þau voru öll frá Noregi, þrír
harmoníkuleikarar og kona eins þeirra.
Hjónin frá Ulvik í Harðangursfirði og
tveir félagar þeirra úr Jostedalen. Allt
góðir vinir okkar sem við kynntumst á
harmoníkumóti í Noregi.
Þeir spiluðu frá morgni til kvölds á
sinn sérstaka norska hátt, góð tilbreyting
í hinum regnvota Þrastaskógi. Norð-
mennirnir léku á útitónleikum í skógin-
um, fyrir dansi og tóku þátt í leik með
öðrum nikkurum og nánast öllu sem í
boði var. Þeir fullvissuðu okkur um að
þau hefðu öll notið félagsskapar Islend-
inga og alls mótsins stórkostlega vel.
Upplifun öðru ólík. Tatu Kantomaa kont
líka á mótið, hann spilaði nokkur lög á
útitónleikunum og gerði auðvitað storm-
andi lukku.
Verulega kom á óvart að skyndilega
höfðu fjölmiðlar mikinn áhuga á mótinu.
Svæðisútvarp Suðurlands fékk beint
samband til að forvitnast um hvað um
væri að vera, áreiðanlega hafði það nokk-
uð með aukna aðsókn að gera. Eins tal-
aði Reynir Jónasson um brúðkaupið og
Brúðhjónin Guðný Sigurðardóttir og Friðjón
Hallgrímsson nýgift undir blómum skrýddu
hliði. Fyrir aflan standafrá v. Frank Russel
svaramaður sonur Guðnýjar, þá séra Pétur
Þorsteinsson prestur Oháða safnaðarins og
Helga Kristín Friðjónsdóttir svaramaður
föður síns (mynd Valur Haraldsson)
fl. í harmoníkuþættinum Heimur harm-
oníkunnar á föstudeginum. Hann kom
svo daginn eftir til að leika í brúðkaup-
inu. Eg frétti síðar að Rás 2 hefði hringt í
Bryndísi skógarvörð til að grennslast fyr-
ir um hvernig mótið hefði farið fram.
Aðrir dagskrárliðir
Markaðurinn sem alltaf er skemmti-
legast að hafa utandyra fékk inni í tveim
samkomutjöldum vegna vatnsveðurs.
Allt mögulegt mátti þar augum líta:
Skrautmuni ýmsa, vestfirskan harðfisk,
harmoníkur og fl. Einar Guðmundsson
frá Akureyri var t.d. með heilmikla harm-
oníkukynningu og sölu.
Þunglega horfði með að geta haldið
áætlun með hinar ýmsu keppnir. Flest
gekk þó nema með yngsta harmoníku-
leikarann því varð að fresta þar til í lokin
við varðeldinn, þá stytti upp og reyndist
gerlegt að láta keppa. Vinningshafinn
heitir Ingvar Þór Kale, tólf ára piltur úr
Kópavogi, og voru honum veitt viðeig-
andi verðlaun.
Allir Norðmennirnir fengu afhent
skjal frá mótshöldurum með sérstökum
þökkum fyrir komuna og um væri að
ræða fyrstu erlendu heimsóknina á mót
Harmoníkunnar í Þrastaskógi. Skjalið var
teiknað og skreytt af listamanninum
Ólafi Th Ólafssyni frá Selfossi.
Glaðværð með söng og harmoníkuleik
ríkti við varðeldinn. Mót á vegum Harm-
oníkunnar í tíunda sinn þýddi að flugeld-
5