Harmoníkan - 01.10.1997, Page 15
Finnlandi og eitthvað náðu Norðmenn að
leggja til í umræðurnar. Ég og Daninn
vorum heldur óhressir framan af með
fundinn því einskis var spurt um starf-
semi í löndum okkar, reyndum að
þröngva smá upplýsingum inn á milli til
að láta vita að við vildum reyna á til hlít-
ar hvort ásetningsmál fundarins ættu ekki
að vera samnorræn. Þetta hreif um stund
og taldi Ríkhard Berglund að með því að
koma saman væri þó reynt að gera eitt-
hvað, samvinna milli Norðurlandanna
hlyti að vera af hinu góða. Þá var talað
um að í sambandi við tónleikahald gæti
verið þreytandi fyrir áheyrendur að sitja
undir endalausri harmoníkutónlist, það
gæti verið snjallt að brjóta það upp með
skemmtiatriðum eða annars konar tónlist.
Ennfremur að hafa hugann við að hækka
gæðamat harmonfkutónlistar, senda efni
milli norrænna félagasamtaka, hafa
harmoníkutónlist fjölbreyttari en almennt
heyrist í dag, þung tónlist á harmoníku á
ekki við nema sem innlegg með öðru á
tónleikum, oft er t.d. ekki sama fólk sem
áhuga hefur bæði á jass og gömlum
dönsum, og að mörgu fleiru væri að
hyggja. Eitt það mikilvægasta í hljóm-
sveitastjórn er að stjórnandi á að vera
mjög valdamikill innan hópsins, allir
ættu skilyrðislaust að hlýða, að því er
varðar byrjanir, hækkanir, lækkanir,
bassaáferð eða hvaðeina sem undir slíka
stjórn fellur.
Menn voru sammála um að góðar
hugmyndir gætu skapast með því að
koma saman. Öllum var sami vandi á
höndum með það að fá sjónvarp meir til
liðs við sig, mikils mismunar gætti milli
áhugahópa þar á bæ.
Ég enda þessa grein á því að kynna lít-
illega harmoníkufélagið í Borgá-(Por-
voo).
Tomas Nybondas ungur finnskur snillingur
sem varð íþriðja sœti finnsku meistara-
keppninnar 1993 sýndi hvað í honum bjó.
Félagið heitir Borgá Nejdens Drag-
spelsklubb.
Formaður: Bertel Westerlund
Stjórnandi: Bo Traskelin
Framkvæmdastjóri: Harrý Jo-
hansson.
Félagið er stofnað 1981, starfandi fé-
lagsmenn nú eru 20 manns. Við stofnun
voru þeir 12. Nú stendur félagið fyrir
byrjendanámskeiðum einu sinni í viku
undir stjórn Björn Liljeberg harmoníku-
leikara, þátttakendur eru um þessar
mundir 11 talsins. Þar af nokkrir á milli
10-14 ára. Formaðurinn segir félagsmenn
bjartsýna nú og líta björtum augum til
framtíðarinnar.
Margt hefði mátt betur fara á fundin-
um. Það var enginn fundarstjóri né held-
ur ritari eða öguð formfesta. Best er að
líta svo á að byrjendabrag hafi verið um
að kenna á þessum fyrsta samnorræna
harmoníkumálafundi í Finnlandi. Skrifað
var heilmikið um fundinn í finnska harm-
oníkublaðinu Hanuri og fleiri blöðum
ásamt myndbirtingum og greinagóðum
upplýsingum. ////
Mika Huusari og ftnnski meistarinn 1996 Kalle Kurvinen, báðir frá hafnarbœnum Kotka
kunnu báðir tökin á hljóðfœrum sínum.
Vantar
litla píanó-
harmoniku
2-3 kóra
48 bassa í
góðu lagi.
Sími
562 0317
Nýi Músikskólinn Auglýsir:
Harmoníkukennsla, kennari Jakob Jakobsson.
Upplýsingar í síma 562I66I milli kl. I7 og 20 virka daga.
Nýi Músikskólinn
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
15