Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 3
FRÆÐSLU, UPPLYSINGA OG
HEIMILDARIT FELAGA S.I.H.U.
OG ANNARRA AHUGAMANNA
STOFNAÐ 14. APRIL 1986
Ábyrgð:
Hilmar Hjartarson,
Ásbúð 17,
210 Garðabæ,
símar 565 6385 & 896 5440
netfang: harmonikan@simnet.is
Ritvinnsla: Hjörtur E. Hilmarsson
Prentvinnsla: Prenttækni ehf.
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
í október, febrúar og maí.
Gíróreikningur nr. 61090-9.
Meðal innihalds
blaðsins:
Til Danmerkur..............4
Viðtalið:
Guðni Friðriksson......6
Rússneskir tvíburar........9
Nótusíðan.................10
Fréttatilkynningar........12
Landsmót framhald.........16
Kæri Harmonikuunnandi.. 13
Frosinikeppnin 2000 ..... 14
ÓlafurTh. grein ..........15
Ýmjslegt fleira efnií blaöinu.
Handrit fyrir næsta blað
þurfa að berast fyrir
1. október 2000.
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.500
1/2síðakr. 6.250
Innsíður 1/1 síða kr. 10.500
-“- 1/2 síða kr. 6.800
-“- 1/4 síða kr. 3.800
-“- 1/8síðakr. 2.800
Smáauglýsing kr. 1.500
AUGLÝSIÐ í HARMONIKUNNI
ódýrasta auglýsingaverðið
fillt er fertugum fœrt
Ég vil hefja mál mitt
á að þakka öllum þeim,
er sendu mér heillaóskir
í tilefni af sextíu ára af-
mæli mínu í apríl síð-
astliðnum. A sama tíma
varð blaðið Harmonik-
an tjórtán ára og með
þessu blaði lýkur því
áskriftarári.
Afram tifar tannhjól
tímans. Manni verður á að rýna í gegnum
móðu til framtíðarinnar, án þess að komast
að neinni sérstakri niðurstöðu. Þó er maður
bjartsýnn og vonar það besta. Framtíð án
fortíðar væri fátækleg, því fortíðin skapar
okkur grunn til að byggja á. Oneitanlega
vakti athygli í Evróvisjónkeppninni í ár, að
innan um allan fans ungra glæsimeyja og
sveina, svifu hinir rosknu Olsen bræður ofar
öllum í stigagjöf, með rödd sína og tvo gít-
ara að vopni. Þeir flugu á vængjum ástarinn-
ar á tindinn og lögðu Evrópu alla að fótum
sér. „Allt er fertugum fært“, segir máltækið.
í raun eru engin takmörk né tölfræðileg rök,
sem segja til um hvað við getum eða hvað
ekki, á hvaða aldri sem er. Ef grannt er
skoðað, hvað varðar hamonikuleikara hér,
eru margir af okkar þekktustu nikkurum enn
að, þrátt fyrir drjúgan aldur og láta engan
bilbug á sér finna. Það kom í ljós í skoðana-
könnuninni um harmonikuleikara aldarinn-
ar að fólk man langt aftur í tímann og hefur
ekki glatað virðingunni fyrir góðum harm-
onikuleikurum, hvort sem þeir eru lífs eða
liðnir.
Heyrt hef ég frá áskrifendum, að þeir
kunni að meta viðtöl í blaðinu. Þá hefi ég
verið inntur eftir, hvort ég geti ekki tekið
viðtal við þennan eða hinn og get ég oft
svarað því játandi, en jafnframt vil ég geta
þess, að mesta vinnan er við úrvinnslu við-
tala. Ég hef fyrir löngu sett upp óskalista
yfir menn og konur, sem mig langar að ná
til, en það þarf talsverða bjartsýni til að trúa
því, að mér takist ljúka því einhvern daginn.
í viðtölum er oft sagt frá skemmtilegum at-
burðum og tilvikum liðins tíma, auk þess
sem lesendur kynnast persónum á bak við
sögurnar. Allt frá því að „Harmonikan“ hóf
göngu sína, hefur verið viðtal eða kynning í
nánast hverju einasta blaði.
Ég vil minna á, að blaðinu væri fengur í,
að fá sendar gamlar myndir, til að birta
ásamt einhverjum skýringum með, eða jafn-
vel sögur af svaðilförum á leið af eða á
dansleik nú eða fyrrum.
Nú er framundan tími ferðalaga og harm-
onikumóta hér og þar á landinu. Alltaf
stækkar hópurinn, sem sækir slikar sam-
komur og ættu nú allir að leggjast á eitt, við
að láta boðskap um þessa menningu berast
til sem flestra. Sá sem kemur einu sinni á
harmonikumót kemur aftur.
H.H.
Forsíðumyndir:
Efri mynd: Bragi Hlíðberg harmonikuleikari aldariimar hefur unnið hug og hjörtu
landsmanna með fáguðum harmonikuleik stœrstan hluta aldarinnar. Eg vonast til að
geta skýrt nánar afrekaskrá Braga í blaðinu á nœsta áskriftarári.
Neðri mynd: Harmonikuleikarar frá Akranesi til Danmerkur. Fremri röð f.v.: Rut Berg
Guðmundsdóttir, Helga S. Jóhannesdóttir, Oddný Björgvinsdóttir, Lára Björgvinsdóttir,
Brynja Valdimarsdóttir.
Aftari röð f.v.: Fanney M. Karlsdóttir, Ástrós U. Jóhannesdóttir, Kristín Sigurjónsdóttii;
Maren L. Másdóttir, Birna Björnsdóttii; Sólberg Valdimarsson.
Sjá grein um ferðina á blaðsíðu 4.
3