Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 16

Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 16
Landsmótið - Landsfundcirinn 1999 Landssambandsfulltrúar á aðalfundinum í Siglufirði. Ég vil taka fram að Ijónið atama endur- speglar ekki andrúmsloft fundarins nema að litlu leiti. Framhald frá Z.tbl. Ekki verður annað séð, þegar á heild- ina er litið, en að metnaður hafi aukist varðandi harmonikuleik. Það kom ber- lega fram á landsmótinu, sem endur- speglar væntanlega að það nái til alls landsins. Dúettar voru fáir en góðir og ég minnist þess ekki að nema einn einleik- ari hafi komið fram í flokki eldri spilara en það var Bragi Hlíðberg. Mótslag var ekkert og vað því ekki af samspili allra harmonikuleikara í lok mótsins eins og verið hefur. Þrátt fyrir einhverja hnökra eins og undirritaður hefur lýst og metið í sínum greinaskrifum, verður að líta svo á og vona að með aukinni reynslu fækki mistökum. Frá þessu langar mig síðan að snúa mér að upphafi mótsins, koma síðan inn á aðalfund S.I.H.U. á Sigló og loks á framhaldsaðalfundinn í Varmahlíð í Skagafirði. Hvarvetna voru tjöld og fólk á ferli um bæinn. Harmonikuhljómlist bergmálaði frá næsta vegg, menn báru harmonikur í handtöskum eða á bakinu milli tjalda og fólk faðmaðist og kysstist í einlægum vinskap. Framundan var sjöunda landsmót S.Í.H.U. og það hófst með aðalfundi Sambandsins á fimmtudagskvöldið kl.20.00. í Lionsheimilinu við Ráðhús- torg. Fundarstjóri var formaður Félags harmonikuunnenda á Siglufirði, Omar Hauksson. Félagið á Siglufirði sá alfarið um mótið og framkvæmd þess. Aðal- fundurinn stóð ekki lengi og var mál- efnaumræðan í samræmi við það. Sam- þykkt var að gera haustfundina að aðal- fundum og fundurinn í Varmahlíð yrði þá framhaldsaðalfundur, en boð um að halda haustfundinn þar hafði borist. Ekki gat ég þó orða bundist þegar í ljós kom að ekki heyrðist minnst á íslenskan heiðursgest á mótinu, né heldur hvort veita ætti ein- hverjum viðurkenningar fyrir störf sín. Má í því sambandi nefna harmoniku- kennara og jafnvel einhverja þá sem telj- ast geta frumkvöðlar í harmonikustarfinu í landinu, því þeir eru til. Ef landsmót er ekki vettvangur til slíks þá veit ég ekki hvar sá vettvangur er. Eg tók saman til fróðleiks, yfirlit um heiðursgesti og eða sérstaka gesti sem boðaðir hafa verið á landsmót frá upphafi Fyrsta landsmótið var haldið í Reykja- vík 1982, á skemmtistaðnum Sigtúni við Suðurlandsbraut, en einnig í Festi í Grindavík. A því landsmóti var enginn heiðursgestur. Annað landsmótið fór fram á Varmalandi í Borgarfirði 1984. Þar var heiðursgestur Eiríkur Þorsteins- son frá Bakkakoti. Þriðja landsmótið var svo á Laugalandi í Eyjafirði 1987 og heiðursgestur þess Jóhann Jósepsson frá Ormarslóni. Á Laugum í Reykjadal 1990 var heiðursgestur Friðrik Jónsson frá Halldórsstöðum og Nils Flácke frá Sví- þjóð. Á fimmta landsmótinu á Egilsstöð- um 1993 voru sérstakir gestir Tatu Kantomaa frá Finnlandi og Daniel Isakson frá Svíþjóð. Á Laugalandi í Holt- um 1996, lék Svanur Bjarki Úlfarsson sem sérstakur gestur við opnun mótsins og frá Tékklandi kom Vladimir Cuchran. Sjöunda mótið var svo haldið á Siglu- firði á síðasta ári. Þar voru sérstakir landsmótsgestir tvíburabræðurnir Vadim og Yuri Fjodorow frá Rússlandi. Mér vitanlega hefur aðeins einn ofan- greindra, verið sæmdur viðurkenningu, eða verið afhent áritað skjal, sem stað- festingu á því, að vera heiðurs- eða sér- stakur gestur á fyrrnefndum landsmótum. Það er Svanur Bjarki en hann fékk af- hentan sérstakan minningarskjöld, sem staðfestingu á því, að hafa komið fyrstur fram á landsmótinu. Á framhaldsaðalfundinum í Varmahlíð 25. september kom fram að framkvæmd síðasta landsmóts hafi gengið vel. Rætt var að of margar óskir hafi komið fram um breytingar manna í hljómsveitum og sumir hafi pantað seint. Varðandi mynd- bandsgerð á vegum Stöðvar tvö fyrir sambandið, kom fram, að mikil vinna hafi farið í t.d. að klippa filmuna vegna nótnastanda, sem skyggt hafi á og tónlist- arfólkið hreinlega horfið á bak við þá. Talsverðar umræður urðu á fundinum og nokkrar uppástungur litu dagsins ljós, m.a. um að stofna sérstaka fjáröflunar- nefnd og einnig var viðruð sú hugmynd að S.I.H.U. aflaði fjár með tónleikahaldi, geisladiskaútgáfu og velti jafnframt fyrir sér fleiri tekjuöflunarmöguleikum. Einn stjórnarmanna lagði til að félögin í land- inu sameinuðust um fjáröflun til styrk- veitinga, og all nokkur umræða varð um fyrirliggjandi óskir um þessar styrkveit- ingar. Margt fleira bar á góma og eins og Dúett, frá v. Guttormur Sigfússon og Hreinn Halldórsson H.F.H. léku listavel, „íBreiðfirð- ingabúð", eftir OlafTh Olafsson og „Sandvikurminni", eftir Karl Adolfsson og að síðastu „ Við fjörðinn “ eftir Bjarna H. Bjarnason (Halla Bjarna). 16

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.