Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 19

Harmoníkan - 01.05.2000, Blaðsíða 19
fi hljómkikam hjó Thc Colin Whitfield ficcordion Orchostra, Harry Hcissoy og filexander Korbakov í Westbary, Englandi Haustið 1999 dvaldi ég í Southampton í Englandi við enskunám. Þessi dvöl mín í Englandi var ákaflega skemmtileg og lærdómsrík. Og það var fleira en veðrið, enskunámið og ferðalög á vegum skól- ans, vítt og breytt um hið blómlega Suð- ur-England, sem var áhugavert og vil ég í því sambandi segja frá tvennum harmon- ikutónleikum sem ég var viðstaddur. mér til óblandinnar ánægju. Bresk vinkona mín, Amanda Dunn, vann að því að ég kæmist á þessa tónleika, sem ég beið eft- ir af mikilli eftirvæntingu. Amanda Dunn dvaldi hér á landi á árunum 1990 til 1994 og lék í stórsveit Harmonikufélags Reykjavíkur, en býr nú ásamt eiginmanni sínum Gunnari Hilmarssyni í Sout- hampton. Amanda leikur sem stendur í stórri harmonikusveit í Southampton, The Colin Whitfield Accordion Orch- estra. Fyrri tónleikarnir fóru fram í borg- inni 6. október, í stórri og fallegri kirkju, sem skilaði mjög góðum og voldugum hljóm. Og ég varð ekki fyrir vonbrigð- um. Það eitt að vera áheyrandi á harmon- ikutónleikum var stórmál fyrir mig. Hljómsveitin lék listavel. Þetta voru greinilega mjög færir hljóðfæraleikarar og stjórnandinn Colin Whitfield kunni svo sannarlega sitt fag, en hann er há- menntaður í harmonikuleik og leikur mjög vel á hljóðfærið. Hann er einnig ákaflega vinsæll meðal harmonikuunn- enda í Southampton. A eftir hverju lagi sagði hann stuttar sögur, sem féllu vel í kramið hjá áheyrendum. Þessum tónleik- um lauk síðan með glæsilegum enskum marsi, sem áheyrendur þökkuðu fyrir vel og lengi. Fjórum dögum síðar þann 10. október fór ég svo á seinni tónleikana, í bænum Westbury. Þar lék vinsælasti harmoniku- leikari Breta, Harry Hussey ásamt Rúss- The Colin Whittfield Accordion Orchestra Amanda Ditnn er lengst til vinstri. Harry Httssey stendur upp og fagnar lófaklappi áhorfenda. Ferðafólkið á leið til West- bury. Amanda Dunn og Gunn- ar Hilmarsson börnin Tristan og Tanja ásamt vini þeirra Barry Halford, sem heldur á Tönju. anum Alexander Korbakov. Frá Sout- hampton til Westbury er tveggja tíma ferðalag og nú hafði fjölgað í hópnum. Gunnar Hilmarsson eignmaður Amöndu hafði slegist í hópinn ásamt börnuin þeirra Tönju og Tristan. Auk þess hafði Barry Halford, harmonikuleikari og fyrr- verandi Spittfire orrustuflugmaður í breska hernum, bæst í hópinn, allt mikið vinafólk Harry Hussey. Ferðast var á Mercedes Benz, húsbíl þeirra hjónanna og komið til Westbury um hádegisbil, en tónleikarnir áttu að hefjast kl. 14.00. Mikil eftirvænting ríkti meðal okkur ferðafélagana, sem innan stundar áttum að berja þennan vinsælasta harmoniku- leikara Breta augum. Og ferðin var svo sannarlega tímans virði. Þetta eru eftir- minnilegustu harmonikutónleikar, sem ég hef farið á og Harry Hussey sannarlega hreint náttúrubarn í harmonikuleik. Eg minnist þess ekki, að hafa skemmt mér eins vel á nokkurri samkomu, sem ég hefi sótt alla mína lífstíð. Harry Hussey er ótrúlegur maður. Hann hóf tónleikana á þremum „jam“ lögum. Að þeim lokn- um voru þetta einskonar óskalagatónleik- ar. í tvo tíma kölluðu áheyrendur til Harry og pöntuðu lög og allt lék meistar- inn af stakri snilld. Það var síðan í lokin að Rússinn lék nokkur lög með Harry, en Alexander leikur á hnappaharmoniku af mikilli leikni. Hljómleikarnir stóðu í þrjá klukkutíma og var Harry vel fagnað af áheyrendum, sem fylltu salinn. Greini- legt, að hann er elskaður og virtur af Bretum. Sannarlega væri gaman að fá hann hingað, en hann er pantaður marga mánuði fram í tímann víðsvegar um heiminn. Eftir tónleikana bauð Amanda meistaranum ásamt fjölskyldu í húsbílinn og var það mjög ánægjuleg stund. Þar færði ég Harry spólu að gjöf, sem inni- heldur kynningarþátt Reynis Jónassonar, úr Ríkisútvarpinu, á Harry Hussey. Þótti honum sýnilega vænt um þessa gjöf og stuttu síðar kvöddum við þennan lista- mann, reynslunni ríkari. Heimferðin var skemmtileg eins og best varð á kosið og tónleikarnir héldu áfram, því að sjálf- sögðu höfðu allir keypt geisladisk. Tón- list Harry Hussey dunaði því í bílnum alla leið til Southampton með stuttu hléi, þegar áð var í veitingahúsinu Rauða llakkaranum, þar sem slegið var upp mikilli veislu í mat og drykk. Dýrðlegur dagur var að kveldi kominn. Sverrir Gíslason 19

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.