Harmoníkan - 01.05.2000, Qupperneq 4
Clngir harmonikcileikarar til Danmerkur
Hljómsveitin sem lékfyrir dansi á styrktartónleikum Dansklúbbsins Duna. Fremri röðfrá v.
Snorri Jónsson, Valdimar Sólbergsson, Guðmundur Helgi Jensson og Bjarni Aðalsteinsson.
Aftari röð frá v. Jón Heiðar Magnússon, Knútur Knútsson tronmmr, Geir Guðlaugsson,
Guðmundur Jóhannsson bassa, og Lárus Skúlason gítar.
Fyrir skömmu eða upp úr miðjum
apríl komu til baka úr vel heppnaðri tón-
leika- og skemmtiferð hópur ungmenna
frá Akranesi er hafði farið utan til Dan-
merkur til að endurgjalda komu ung-
menna frá Skælskör í október síðastliðn-
um til Akraness.
Þó Akranes hafi löngum verið nafn-
togað fyrir káta sjóara á Kútter Haraldi
og íþróttaiðkan, hefur nú hin síðari ár
bæst enn ein rós í hnappagat þessa kaup-
staðar. Það er harmonikuleikur ung-
menna, sem vaxið hefur upp með mikl-
um blóma, alll frá grasrótinni. Lítum
nánar á kveikjuna að utanferðinni. Upp-
hafið er að tónlistarskólinn í Skælskör í
Danmörku kom með hóp nemenda, um
20 börn og unglinga, í heimsókn til Akra-
ness og héldu tónleika þar og í Reykja-
vík auk þess sent þau ferðuðust um ná-
grennið. Þau léku á svokallaðar stál-
trommur og gítara en stáltrommur þess-
ar eru hefðbundnar olíutunnur. Alls voru
í þessum hóp 19 manns, kennarar og
nemendur. Hópurinn dvaldist hér í sex
daga og leiddi það m.a. til þess að ung-
mennin frá tónlistarskóla Akraness héldu
til Danaveldis 12. aprfl s.l. Eins og allir
vita er ekki auðhlaupið í neina sjóði til að
fjármagna utanferð fyrir átján manna
hóp. I tónlistarhópnum eru þrettán börn
auk fimm fullorðinna, þar af skólastjóri
tónlistarskóla Akraness Lárus Sighvats-
son og harmonikukennarinn sem er orð-
inn frægur fyrir góðan árangur, Fanney
Karlsdóttir.
Ritstjóra Harmonikunnar var boðið til
Akraness að vera viðstaddur styrktar-
dansleik á vegum Dansklúbbsins Duna
þann 25. mars. Þessir tónleikar og dans-
leikur voru sérstaklega haldin vegna
utanferðarinnar hópsins og stóð dans-
klúbburinn fyrir því. Skemmtunin fór
fram í samkomusal í eigu nokkurra stétt-
arfélaga á Akranesi við Kirkjubraut.
Hljómsveit HUV lék fyrir dansi til kl. 2
um nóttina. Samkoman hófst með tón-
leikum níu harmonikuleikara auk fiðlu-
leikara í hópi ungmennanna. Var þremur
einleikurum telft fram, þeim Sólbergi
Valdimarssyni, Oddnýju Björgvinsdóttur
og Rut Berg Guðnadóttur. Var dagskráin
afbragðs vel heppnuð og skemmtileg en
henni lauk með hinu gullfallega lagi „ís-
land er land þitt'ý eftir Magnús Þór Sig-
mundsson. Einleikararnir stóðu sig með
prýði og sönnuðu að þeir standa orðið í
fremstu röð ungra harmonikuleikara.
Ég ræddi við Fanneyju Karlsdóttur,
um nemendur hennar og uppbyggingu
tónlistarmála á Akranesi. Fanney tjáði
mér að nær daglega væru einhverjir af
nemendum hennar að koma fram, við hin
ýmsu tækifæri á Akranesi og víðar. Hún
segir að nemendunum sé afar vel tekið
og þau sýni mikinn metnað. „Þau sem
eru lengra komin drífa hina með og það
virkar sem hvatning til að ná hærra og
lengra í spilamennskunni“. Og Fanney
heldur áfram. „Þegar skólinn fékk boð
um að senda hóp til Danmerkur, hafi
þátttakendur verið sérstaklega valdir,
vegna dugnaðar sfns. Þessi hópur er frá-
bær, eins og hugur rnanns", segir Fann-
ey, sem hefur verið kennari krakkanna
undanfarna vetur. Hún þrætir ekki fyrir
að hafa verið natin við nemendurna, „og
öll séu þau miklir vinir og samvinnan því
eins og best verði á kosið“.
Fanney upplýsir, að nú líti út fyrir að
þrír harmonikunemendur fari á tónlistar-
braut í Fjölbrautarskóla Vesturlands. Hún
segir að það sé m.a. tilkomið vegna þess,
að skólastjóri tónlistarskólans, Lárus Sig-
hvatsson sé afar jákvæður og skilnings-
ríkur „og geri allt, sem hægt sé til að
greiða götu krakkanna, og sé á allan hátt
frábær skólastjóri". Fanney er með 27
nemendur í harmonikuleik á Akranesi og
marga á biðlista. Nú gerir hún tilraun
með að taka börn út úr tíma í grunnskól-
anum og kenna þeim þannig.
H.H.
Meimsókn
fró Noregi
Norski harmonikuleikarinn Kjetil
Skaslien er væntanlegur til íslands 20.
júlí n.k. Hann kemur hingað á vegum
norska sendiráðsins og mun leika á
“Norskum dögum” á Seyðisfirði helg-
ina 21.-23 júlí. Félag harmonikuunn-
enda í Reykjavík hefur tekið að sér í
samvinnu við norska sendiráðið að sjá
um tónleika sem verða í Norræna hús-
inu 24. júlí. Kjetil Skaslien er fæddur í
Finnskógunum við sænsku Iandamær-
in fyrir rúmum sextíu árum og er vel
þekktur í heimalandi sínu og þá ekki
síst fyrir langan tónlistarferil en hann
hóf að leika á harmoniku tjögurra ára
gantall. Kunnastur er hann fyrir hljóð-
versvinnu með tjölda norskra tónlistar-
manna og eitt árið tók hann þátt í að
leika á tuttugu hljómplötum.
4