Harmoníkan - 01.05.2000, Qupperneq 8
Þá man ég að Baldur og Konni skemmtu
þar, söngkonan Ingibjörg Þorbergs,
leikkonurnar Áróra Halldórsdóttir og
Emilía Jónasdóttir, ennfremur Alfreð
Clausen og Sigfús Halldórsson. Það var
verulega skemmtilegt í Tívolí. Þetta sum-
ar lék ég líka ein átta lög inn á hljóm-
plötu. Það er nú allt glatað, og platan var
reyndar aldrei gefin út, enda ekki ætluð á
markaðinn".
Hefur Guðni Friðriksson aldrei samið
tónlist?
„Nei ég hef aldrei samið lag, það er
nóg af öðrum til þess og þeir eru líka til,
sem betur hefðu sleppt því, en ég hef
alltaf haldið mínu striki. Og þrátt fyrir að
vinsældir harmonikunnar hafi eitthvað
dalað um tíma, er það nú orðið breytt og
ég hefi haldið tryggð við hljóðfærð“. Þú
spyrð um stofnun harmonikufélagsins á
Akureyri?
„Ég er einn af stofnendum F.H.U.E.,
en aðalfrumkvöðull að stofnun félagsins
var Karl Jónatansson. Uppbyggingin hef-
ur gengið ágætlega og nú er unga fólkið
komið með.
Utaf fyrir sig er merkilegt að stofna
félag um harmonikuna, og það er nær
óþekkt hvað önnur hljóðfæri varðar. Karl
á þar stóran hlut að máli, enda eldhugi
mikill í þessum efnum”. Ég hefi átt
margar harmonikur um dagana og ein-
hverju sinni eignaðist ég fiðlu, sem feng-
ið hefur að mestu frið, hef samt átt hana í
40 ár“.
Harmonikukennari
„Ég hef nokkuð átt við kennslu á
harmoniku, kenndi til dæmis hjá Karli
Jónatanssyni hér fyrir norðan, nemend-
um á öllum aldri. Þá var ég prófdómari í
tvö ár við harmonikudeild Tónlistarskóla
Akureyrar. Það er frumskilyrði að sækja
nám á hljóðfærið, læra nótur og ná harm-
onikubassanum, það er geysi stórt atriði í
harmonikuleik, að þjálfa bassatæknina.
Þessi mynd er tekin af Gttðna í Lundi í
Öxatfirði 1938
Uppáhalds harmonikuleikarar?
„Að sjálfsögðu ber maður virðingu
fyrir mörgum íslenskum harmonikuleik-
urum, fleirum en hér verða nefndir. Upp
úr standa þó nokkrir og nefni ég þá fyrst-
an til sögunnar Braga Hlíðberg, einnig
Reyni Jónasson, Gretti Björnsson og
Hrólf Vagnsson, þetta eru snillingar. Ég
man líka eftir mjög færum og efnilegum
ungum strák Jakob Yngvasyni, og fannst
leitt var að heyra, að hann væri hættur,
vonandi kemur hann aftur í spilið.
Það var gaman að heyra Braga Hlíð-
berg spila á síðasta landsmóti og unga
daman frá ísafirði hún Helga Kristbjörg
lék Vorgleði Braga hreint ljómandi vel,
ótrúlega smekklega gert.
Þá líða varla úr minni nokkrir af er-
lendu bergi brotnir, s.s. Toralf Tollefsen,
John Molinari eða Carl Jularbo. Þessir
tónlistarmenn standa auðvitað ofarlega á
blaði meðal margra annara sem hafa auk-
ið veg og virðingu harmonikunnar“.
Safnar nótum
„Jú ég tók upp á því að koma mér upp
dálitlu nótnasafni fyrir mörgum árum,
hve stóru? I það minnsta, svo mikið, að
ég kemst aldrei yfir að spila það allt. Ég
æfi mig alltaf daglega, það er satt, en það
dugar samt ekki til að komast yfir safn-
ið.
Nokkrar spurningar að lokum?
Heimur Harmonikunnar - Nafnið
harmonika - Blaðið? Ég er sáttur við
harmonikuþáttinn. Hann skiptir miklu
máli fyrir harmonikuna, jafnframt er ég
ánægður með að nafn hljóðfærisins skuli
vera komið á hreint, með vali nafnsins (
harmonika), sem blaðið stóð fyrir. Efni
blaðsins er ágætt. Blaðið þjónar þvi sem
er nauðsynlegt að sinna gagnvart harm-
onikuunnendum landsins.
Guðni hefur búið á Akureyri síðan
1940, og vann í Prentverki Odds Björns-
sonar. Hann hefur starfað í F.H.U.E. frá
upphafi eins og áður hefur komið fram
og var gjaldkeri félagsins um tíma. Eig-
inkona hans var Anna Bergþórsdóttir frá
Akureyri og eignuðust þau fjögur börn.
Anna lést 1997.
Hilmar Hjartarson
Kazru lesendur
Sendið blaöina
smdgreinar og
frdsagnir til
birtingar.
Útgefandi
s„
NU VERÐUR
ÁLFASKEIÐ
r r
22. -23. JULI N.K.- ALLIR VELKOMNIR !
—" —___________-
FÉLAG HARMONIKUUNNENDA Á SELFOSSI
8