Harmoníkan - 01.05.2000, Page 9
Rússneskir tvíburar
Erlendir gestir á landsmóti er orðin
regla frekar en undantekning Að þessu
sinni tókst ákaflega vel til, ungir snilling-
ar sem. heilluðu alla. Vart verður á betra
kosið. Ég er ákaflega þakklátur Hauki
Vagnssyni fyldarmanni Yuri og Vadim
Fjodorov fyrir að gefa mér kost á að ná
persónulegu viðtali við þá bræður fyrir
blaðið. Haukur var túlkur og töfraði fram
afslappað andrúmsloft, þegar allt var á
þönum í kringum þá bræður. Þeir félagar
höfðu óvenju skamma viðdvöl á Siglu-
firði. En það kom ekkert fram í spjalli
okkar sem tók þó drjúga stund ásamt
myndatökum.
Bræðurnir eru eineggja tvíburar, Yuri
er 30 mínútum eldri en Vadim og telst
því vera stóri bróðir Þeir bræður eru
fæddir í Leníngrad (nú Sankti Péturs-
borg) 30.janúar 1969. Móðir þeirra vildi
senda þá í tónlistarskóla 6 ára gamla að
læra á blásturshljóðfæri eða harmoniku.
Vadim langaði að verða trommuleikari,
en þar sem engin tromma var fáanleg
varð harmonikan fyrir valinu og þeir fóru
báðir að æfa á sama hljóðfærið. í tónlist-
ar skóla í Sankti Pétursborgar hófu þeir
nám, upphaflega af skyldurækni, en
14-15 ára vaknaði brennandi áhugi og
fóru þeir að leika á tónleikum, aðalega
tangóa. Fimmtán ára gamlir hófu þeir
nám í alvöru tónlistarskóla, sem lagði
mikið upp úr tækni, þá komu þeir fram á
tónleikum og lagt var mat á getu og
tækni. Þeir lærðu í sitthvoru lagi, en æfðu
stöku sinnum dúetta saman, og þarna
stunduðu þeir nám til 19 ára aldurs eða
þar til þeim var kippt út til að sinna her-
skyldu. Undanþágubeiðni frá herskyldu
var hafnað! Fyrstu þrjá mánuðina dvöldu
bræðurnir í þjálfunarbúðum en einskær
heppni réði því að þeir losnuðu þaðan.
Þeir voru valdir í dans söng og skemmti-
hóp sem í voru 100 manns er skiptist nið-
ur í 5-6 hópa nærri Berlín í Vestur
Þýskalandi. Af sex ára herþjónustu voru
þeir tvö ár í herskyldu, sem hermenn, en
fengu jafnframt að vinna fyrir sér í hern-
um sem tónlistarmenn, enda hærri laun
greidd þar en heima fyrir. Því næst tók
við fímm ára fjarnám í tónlistarháskóla,
þar af síðasta árið 1995 í tónlistarháskóla
Sankti Pétursborgar, ásamt ýmsu öðru
námi. Síðan tók við framhaldsnám hjá
prófessor Elsbeth Moser í Hannover, en
eins og allir vita er Elsabeth eiginkona
hins þekkta harmonikuleikara Hrólfs
Vagnssonar frá Bolungarvík.
Aðalatvinna þeirra bræðra með skól-
anum er að koma fram á
tónleikum og hafa þeir
leikið um allt Þýskaland
og víðar. Ferill þeirra er
afar farsæll, hafa tekið
þátt í viðurkenndum
keppnum og unnið til
verðlauna s.s. í Klin-
gental í Þýskalandi og
St. Etienne í Frakklandi
þar sem Vadim vann
fyrstu verðlaun. Sú
keppni er fyrir öll mögu-
leg hljóðfæri og teljast
verður í þeirri miklu
samkeppni merkilegt að vinna þar til
fyrstu verðlauna á harmoniku. Honum
hlotnaðist þar með sérstakur frami.
Fyrstu verðlaun komu í þeirra hlut í
tónlistarkeppni á vegum Friedrich-
Jprgen-Sellheim-Gesellsehaft árið 1996.
Þeir hafa verið valdir á lista yfir framúr-
skarandi tónlistarmenn. Þá hafa þeir leik-
ið inn á geisladisk og stefnan er að leika
nteira af léttri tónlist. Þeir segjast hafa
mjög gaman af því, þeim henti það vel
og viðtökurnar séu góðar!
I blandaðri dagskrá bræðranna á
Siglufirði léku þeir þjóðlög frá heima-
landi sínu, ásamt mörgu öðru og djarflegt
aukanúmer gerir ávalt mikla lukku.
Vadim setur nánast fullt rauðvínsglas
ofan á harmonikuna með bundið fyrir
augun og leikur fjörugan polka.
Hvað með önnur áhugamál? Þeir
bræður m.a. hafa lært vamaríþróttina Tai-
Chi-Chyan og eins og allir ungir menn
hafa þeir óendalegan áhuga á konum.
Vadim á kærustu en Yuri gengur enn
laus. Þeir töldu sig hafa lært eitthvað um
Island í skóla, og mundu eftir landinu úr
fréttum þegar Gorbachjof sótti landið
heim sem frægt er orðið. Þeir héldu
reyndar að Island væri þakið ís og snjó
og að hér lifðu aðallega hvftabirnir. Nú
höfðu þeir komist að því að hér býr gott
fólk og forkunnar fagrar konur. En að
Siglufjörður væri nyrsti kaupstaður
landsins vissu þeir að sjálfsögðu ekki.
Þeir vom mjög ánægðir með áheyrendur,
hljóðkerfi hússins væri gott og öll skipu-
lagning með miklum ágætum.
Hvað varð til þess að þeir komu á
landsmótið? Haukur Vagnsson sá á ver-
aldarvefnum að landsmót var framundan
og hringdi í Omar Hauksson formann
F.H.S., eftir að hafa haft samband við
Samband íslenskra harmonikuunenda.
Eftirleikurinn er öllum kunnur.
Fjodorov brceður með leiðsögumanni stnum Hauk Vagnssyni á
Siglufirði í sumar sem leið.
Hljóðfæri þeirra bræðra eru rússnesk-
ar, af Jupiter - Bæjan gerð, með svoköll-
uð B gripi, sérsmíðaðar fyrir þá bræður í
Moskvu. Jupiter harmonikur eru þekkt
hljóðfæri, og umræddar harmonikur hafa
sérstakan tón, sem hljómar vel og hentar
öllum tónlistarstefnum.
Islandsferð þeirra bræðra var sam-
starfsverkefni S.Í.H.U. annars vegar og
Cord-Aria hins vegar, en það er útgáfu-
fyrirtæki Hrólfs Vagnssonar í Hannover,
er gefur út fjölbreytta tónlist þ.á m. harm-
onikutónlist. Var ferðin m.a. farin með
það í huga að kynna geisladisk þeirra
bræðra „Twins“, sem kom út á sfðsta ári.
Siglufjörður var ekki eini viðkomu-
staðurinn. Tvíburarnir Yuri og Vadim
urðu t.d. fyrstu harmonikuleikararnir til
að leika í Salnum (nýja tónlistarhúsinu í
Kóparvogi) 6. júlí en auk þess héldu þeir
tónleika í Safnaðarheimilinu Vinamynni
á Akranesi og í Ytri-Njarðvíkurkirkju
áður en þeir héldu utan.
Þá verður að geta þess hér að bæjar-
stjórn Kópavogs gerði sér lítið fyrir og
bauð þeim bræðrum til landsins um miðj-
an janúar með styrk frá Flugleiðum og
Flugfélagi íslands, í þeim tilgangi að
kynna harmonikuna grunnskólanemend-
um í Kópavogi. Fjodorov bræður héldu
alls ellefu tónleika í Salnum og nutu
3500 börn þessa menningarviðburðar.
Börnin voru bergnumin af hrifningu
skemmtu sér vel, og svöruðu á sinn hátt,
„Alveg geðveikt". Haukur Vagnsson var
einnig fylgdarmaður, túlkur og kynnir í
þessari ferð.
Þeir hnýttu svo endahnútinn nteð tón-
leikum fyrir almenning í Salnum 29. jan-
úar, við nánast húsfylli og héldu síðan út
á land í tónleikaferð, til ísafjarðar, Akur-
eyrar, Vestmannaeyja og Selfoss.
H.H.
9