Harmoníkan - 01.05.2000, Page 10
M
Imynd þín
Lagahöfundur þessa blaðs er maður að
nafni Lárus Jóhannesson. Hann er fædd-
ur í Reykjavík 30. apríl 1937. A fyrsta ári
fluttist hann að Óspaksstaðarseli í Hrúta-
firði. Eftir skamma dvöl þar fluttist hann
að Kúvíkum í Arneshreppi við Reykjar-
fjörð. Þaðan flytur Lárus burt með
strandferðaskipinu Súðinni í stríðsbyrjun
og átti fjögurra ára afmæli um borð, en
ferðinni var heitið að Prestbakka í Bæj-
arhreppi. Það bar til tíðinda á leiðinni, að
fyrir óskiljanleg mistök innan setuliðsins
í Hrútafirði, var skotið þremur skotum að
Súðinni og hæfði eitt loftnetið. Árásin
olli að vonum reiði forráðamanna Skipa-
útgerðar Ríkisins, gagnvart herstjórninni.
Súðinni var snúið á Hrútafirðinum, til
Hvammstanga og þaðan hringdi skip-
stjórinn suður og krafði setuliðið skýr-
inga. Frá Prestbakka fluttist Lárus að Bæ
í sömu sveit og síðar að Gröf í Bitru. Tíu
ára gamall flytur Lárus í Dalasýslu að
Tjaldanesi í Saurbæ. Heimkynni hans
hafa síðan verið í Dalasýslu, lengst af í
Lambanesi, en að Neðri Brekku síðustu
ár. Lárus er þó jafnan kenndur við
Lambanes. I Saurbænum var rótgróin
harmonikumenning og harmonika nánast
á hverjum bæ. Hann byrjaði sjálfur að
spila á hnappaharmoniku 16 ára gamall
og á nú tvær sex raða, mikla kjörgripi
sem ekki eru á hverju strái hér um slóðir,
en hnappaharmonikur eru algengastar
fimm raða.
Einhverntíma á lífsleiðinni fóru að
koma upp í huga hans laglínur sem lauk
með að eitt og eitt lag lenti á nótnablöð-
um. Lagið „Imynd þín“ sem hér birlist,
kom upp í huga Lárusar á rölti milli húsa
í Búðardal. Textinn er eftir Björn St.
Guðmundsson. Nokkur lög til viðbótar
eftir Lárus má nefna hér. Þar á meðal
valsar við tvö ljóð Steins Steinars.
„Gömul vísa um vorið“ og Það vex eitt
blóm fyrir vestan. Valsinn „Á stundinni“
við texta Sigrúnar Halldórsdóttur og eitt
lag má nefna til viðbótar, sem er foxtrott
og ber heitið „Skammdegisórar“. Sitt-
hvað fleira á Lárus í pokahorninu og ekki
allt frágengið. „Imynd þín“ hefur verið
flutt á Jörvagleði í Búðardal, sungið af
Jóhanni Má Jóhannssyni, verið á dagskrá
Breiðfirðingakórsins og Samkórinn á
Þórshöfn söng lagið inn á hljómdisk.
Lárus hefur verið félagsmaður í lands-
sambandi sænskra harmonikuunnenda
síðastliðin 15 ár og sæmdur gullmerki fé-
lagsins 1994 af þáverandi formanni Nils
Flácke. Hann er einnig stofnfélagi harm-
onikufélagsins Nikkolínu í Dölum. Og
einu má ekki gleyma. Á skemmtifundum
F.H.U. í Reykjavík, hefur hann verið einn
af fastagestum um tuttugu ára skeið, með
örfáum undantekningum. Hann á alla 96
aðgöngumiðana að fundunum. Geri aðrir
betur! Lárus starfar sem tækjamaður við
vegagerð og o.fl.
H.H.
iwréMJsm y
VERKSTÆÐI TIL
ALHLIÐA VIÐGERÐA Á
HARMONIKUM AÐ
KAMBASELI 6 RVK.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ
GUÐNA í SÍMA
567 0046 / 845 4234
ÍMYND PÍN
Höfundar
Björn St. Guðmundsson
Lárus Jóhannesson
12.4.
T
T
(2.)marklaust
(4.) i - mynd
d rr~ = r r-—^ r r u ra j j— r f—
bíð - a og sakna um sum - arið minn - ingar vakn - a cg
... .1 J J. - tJ J J Jr '
bið- a og sakna
1 D.C.alFtne
tH tr finn aðþú ttJ r cr crt húma J—J0- »w ' -mr r t— cnnþi J-J= Í r~ j - -j- 7TT- aldr-ci á J J-J- rJ f lcið til -J=J-J— r-— j.— úts. Eyþór lngi Jónsson M—
' > tr if 4:— EU*97 hr r r 1 LM,J|r-J 4-f ■—J Lf
10