Harmoníkan - 01.05.2000, Side 12
Danmerkcirpistill
Preben Pedersen ritar pistla í norska
harmonikublaðið Gammeldans og ferð-
ast milli harmonikumóta á sumrin í
heimalandi sínu og víðar með fjölskyldu
sinni. I samtali síðastliðið sumar spurði
ég hann um stöðu harmonikumála í Dan-
mörku. Hann tjáði mér að landsambandið
þar í landi hafi unni mikið og gott starf.
Sambandið hefur t.d. staðið fyrir veru-
legu átaki svo hamonikan megi ná til al-
mennings og margt fleira, sem orðið hef-
ur til framfara. Má í því sambandi nefna
harmonikukeppnir, sem eru með því
markverðara, sem gert er á vegum land-
sambandsins. Hafði hann orð á því, að
áhugafólk og harmonikuleikarar væru
mjög ánægðir með þetta starf.
Áfall
Formaður danska landsambandsins
Henning Back, sem hefur unnið gríðar-
legt starf í Danmörku, lést í bflslysi síð-
astliðið sumar. Hann var að koma af
fundi með Preben þegar slysið átti sér
stað og er hans sárt saknað í dönsku
harmonikulífi. Að sögn Prebens verður
erfitt að fylla það skarð sem myndast
hefur, „því góð forysta sé afar mikilvæg,
þegar unnið sé að framfaramálum, ekki
síst fyrir harmonikuna, því þörf sé á góðu
starfi til að auka vegsemd hljóðfærisins,
sem mest“.
H.H.
Harmonikumót
Breytt aðstaða
að Iðufclli
- Verslunarmannahelgin
Harmonikuhátíðin Iðufelli verður
haldin með glæsibrag um Verslunar-
mannahelgina. Ýmsir annmarkar hafa
verið sniðnir af frá í fyrra, með endur-
bættri snyrtiaðstöðu og betrumbættum
danssölum, sem eru tveir. Allt verður til-
einkað harmonikunni og harmonikuunn-
endum þessa helgi. Söluaðstaða í tengsl-
um við markað verður öll ókeypis, og er
fólki heimilt að selja hvað sem það vill.
Söluborð eru og innifalin í þessum lið.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar
ásamt fleiru, sem ætti að koma sér vel
fyrir þá gesti sem dvelja munu á harm-
onikuhátíðinni um Verslunarmannahelg-
ina og það eru allir velkomnir.
Landsmótið 2002 ó ísafirði
HARMONIKUFÉLAG
HV
VESTFJARÐA
Fréttatilkynning
Á aðalfundi S.Í.H.U. á Siglufirði s.l.
sumar var Harmonikufélagi Vestfjarða
falið að halda næsta landsmót. Stjórn
Harmonikufélags Vetfjarða hefur ákveðið
að mótið verði haldið á Isafirði dagana
4.-7. júlí 2002. Aðalmótsstaðurinn verður
í íþróttahúsinu á Torfnesi. Þar munu tón-
leikar félaga og heiðursgests/gesta verða
ásamt lokadansleik á laugardagskvöld-
inu. Nánari útfærslur á dagskrá og upp-
lýsingar um gistimöguleika verða kunn-
gjörðar er nær dregur mótinu.
f.h. stjórnar Harmonikufélags
Vestfjarða
Asgeir S. Sigurðsson, formaður
Olav Rovin dregar bclginn
L. •• ^ ^ 'c
^ m *• IPW.J
é i.
Það vekur eftirtekt, þegar hinn aldni
Olav Rovin stígur á stall með hljóm-
sveit sinni. Innan hljómsveitarinnar
eru nefnilega fimm konur með tvöfald-
ar harmonikur, einn með krómatíska
harmoniku, auk gítars og bassaleikara.
Olav sjálfur leikur á tvöfalda nikku.
Þau leika fyrir dansi, allt bókstaflega
nötrar af fjöri og dansararnir taka
sparitaktana fram með hnykkjum, eða
slá hælum upp í afturendann, enda
dagskráin norsk að öllu leyti frá fyrsta
tóni til síðasta takts.
I hljómsveitarforingjanum Olav
Rovin er kröftugur lífsneisti, sem smit-
ar umhverfið. Hann rykkir til höfðinu
og skekur skrokkinn í takt við hljóm-
fallið. Fingurnir tipla um borðið eins
og fimir fingur vélritara væri að störf-
um, þó sverleiki þeirra sé á við einnar
tommu rör.
Ritstjórinn hitti Olav, sem er 72ja
ára gamall, á Titano hátíðinni 1999.
Hann er frá Fróni í Guðbrandsdal
(hvað annað gat það verið!). Hann
byrjaði fyrst að spila á tvöfalda harm-
oniku 55 ára gamall og hefur því hald-
ið það út í sautján ár. Hjá honum og
hljómsveit hans er allt norskt í gegn og
dansinn dunar undir stjórn foringjans,
sem undirstrikaði eftirminnilega gleð-
ina í gömlu dönsunum.
H.H.
12