Harmoníkan - 01.05.2000, Side 13
harmonikcicinnandi
Einn af okkar efnilegustu harmoniku-
leikurum, Matthías Kormáksson fór síð-
astliðið haust til Finnlands og tók þátt í
hinni árlegu Frosini-Evrópukeppni í
harmonikuleik Margir þeirra sem fylgd-
ust með þessar frumraun voru bæði
spenntir og kvíðnir um hvernig honum
reiddi af í slfkri keppni. Eins og þeir
bjartsýnustu meðal þeirra höfðu vonað
kom í ljós að hann átti fullt erindi í
keppnina og samkvæmt áreiðanlegum
heimildum var frammistaða hans til mik-
ils sóma, þó ekki kæmi hann hlaðinn
gulli eða öðrum eðalmálmum til baka, en
hann var ekki einn um það.
Aðalhvatamaður að þátttöku íslend-
inga í þessari keppni er Hilmar Hjartar-
son, sem hefur verið óþreytandi að brýna
menn til meiri þátttöku í alþjóðlegu sam-
starfi. Sem fulltrúi Frosinifélagsins á ís-
landi hefur hann jafnvel farið nokkrum
sinnum til skrafs og ráðagerða erlendis
án nokkurs stuðnings héðan. Þá má ekki
gleymast að hann gekkst fyrir ijárstuðn-
ingi, sem gerði íslenska keppandanum
kleift að komast til Finnlands. Það er
reyndar nauðsynlegt að ítreka þetta með
Frosinikeppnina, því í nýútkomnu frétta-
blaði Harmonikufélags Reykjavíkur er
þessi keppni kölluð hæfileikakepppni og
Hilmars Hjartarsonar ekki getið, frekar
en hann hafi ekki haft neitt með hana að
gera. Miðað við margar góðar greinar í
því blaði, sem í raun er mjög merkilegt
framtak, verður að teljast ólíklegt að það
hafi gleymst óviljandi.
Eins og kunnugt er var Matthías val-
inn til þátttöku eftir hæfileikakeppni Fé-
lags harmonikuunnenda í Reykjavík sem
fram fór síðastliðið vor. Þar sigraði hann
með glæsibrag og vakti athygli fyrir yf-
irvegaða og hógværa framkomu hins
sanna listamanns ásamt frábæru valdi á
því sem hann var að gera.
I þessari hæfileikakeppni kom í ljós
mikill áhugi og ekki síst ótvíræðir hæfi-
leikar þeirra sem þar komu fram, þó svo
að einn hafi orðið sigurvegari í hverjum
flokki. Þá kom einnig í ljós áhugi Sam-
bands íslenskra harmonikuunenda á
keppninni, en það styrkti hana með veg-
legu fjárframlagi. Margir keppanda kváð-
ust mundu mæta aftur að vori þegar
næsta keppni yrði haldin. Og þá er ég
kominn að kjarna málsins.
Það er ekkert áhlaupsverk að standa
fyrir keppni sem þessari. Það kostar
mikla, vel skipulagða vinnu og ennþá
meiri skipulagningu við lokafram-
kvæmdina, ef vel á að takast. Það eru
fjölmörg atriði sem þarf að huga að, þeg-
ar staðið er að keppni sem hæfileika-
keppnin var og tæplega á færi eins félags
að standa að slíku árlega. Þetta þarf að
verða samstarfsverkefni. Mér virðist að
Samband íSlenskra harmonikuunnenda
gæti verið sá aðili, sem best gæti stutt við
slíkt. Til að byrja með kemur mér í hug
að S.I.H.U. stæði fyrir slíkri keppni, en
framkvæmdin væri í höndum einhvers
aðildarfélags. I grófum dráttum yrði það í
verkahring S.I.H.U. að ákveða aldur-
flokkaskiptingu, senda út keppnisgögn
og reglur, ákveða verðlaun og viðurkenn-
ingar. Síðan yrði það á verksviði ákveð-
ins aðildarfélags að halda keppnina.
Með þessu fengist landsyfirbragð á
kepppnina, þannig að hún gæti jafnvel
kallast Islandsmeistarakeppni og fengi
mun meira vægi út á við. Með hliðsjón af
síðasta landsmóti fer ekki á milli mála,
að ungir harmonikuleikarar eru nægilega
margir til að halda slíkri keppni gangandi
um mörg ókomin ár.
Mér er í fersku minni, sá leiftrandi
áhugi og gífurlega einbeitni sem ein-
kenndi þá glæsilegu fulltrúa ungu kyn-
slóðarinnar, sem brutu ísinn í fyrravor og
léku listir sínar svo eftirminnilega í Loft-
kastalanum í Reykjavík. Það er mikil-
vægt að svona keppni geti orðið árlegur
viðburður í íslensku tónlistarlífi, en eins
og segir í textanum, “það þarf tvo til að
dansa tangó”.
Bestu kveðjur
Friðjón Hallgrímsson
Hin árlega sumarútilega
Félags Harmonikuunnenda
viö Eyjafjörö og Harmoniku-
félags Þingeyinga veröur aö
Breiðamýri í Reykjadal dagana
28.-30. júlí 2000.
A síöasta sumri var mikiö fjölmenni.
Glens og gaman, allir velkomnir.
leymið ekki hljóðfærunum, dansskónum og söngrö
Alla hæfileika þarf aö nýta.
Upplýsingar hjá Jóhannesi, sími 462 6432
og Þorgrími sími 464 1618
13