Harmoníkan - 01.05.2000, Qupperneq 18
■ I I
Núvcrandi stjórn SÍHCI
Frá v. Stefán Leifsson
meðstjórnandijóhannes
Jónsson formaður, Sigurður
Indriðason varaformaður,
Guðrún Jóhannsdóttir gjaldkeri
og Olafur Th Olafsson ritari.
Viðhalda dansmenningcinni
Félag harmonikuunnenda á Selfossi
og nágrenni hefur haldið þrjá dansleiki
frá því í byrjun starfsársins, sem hófst
með dansleik í Félagslundi um mánaðar-
mót október - nóvember s.l. Fyrsta apríl
var aftur haldinn dansleikur, þá í Básn-
um Ölfusi, og sá dansleikur sem ég
skaust á hinn 13. maí fór fram einnig í
Básnum. Þar dunaði dansinn við undir-
leik ýmisa hljómsveita s.s. Harmonikufé-
lags Rangæinga og F.H.S.N. ásamt söng-
konunni Hjördísi Geirs. Þessi kunna
söngkona hefur ávallt mikið aðdráttarafl
og útgeislun, sem smitar frá sér og getur
lyft hverjum dansleik til mikillar
ánægjustundar, sem og var einkenni
nefnds dansleiks. Að sögn formanns
F.H.S.N. Gísla Geirssonar hefur aðsókn
jafnan verið góð. Þá er ónefndur dans-
leikur sem F.H.S.N. stendur fyrir á hverju
sumri að Borg í Grímsnesi um miðjan
ágúst og verður ekki brugðið út frá þeim
vana í ár en sá dansleikur nýtur mikilla
vinsælda. Þá stendur félagið einnig fyrir
harmonikumóti eins og undanfarin ár að
Alfaskeiði í Hrunamannahreppi. Hljóm-
sveitaræfingar hafa legið niðri í vetur, en
á næsta starfsári verður allt sett á fullt að
sögn formanns félagsins.
H.H.
Hljómsveit F.H.S.N. ásamt Hjördísi Geirs gerði mikla lukku.
OKKAR ARLEGA OG SIFELLT VINSÆLLA
SUMARBÚSTAÐABALL
AÐ BORG í GRÍMSNESI LAUGARD. 19. ÁGÚST N.K.
HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR SYNGUR NOKKUR LÖG
ALLI VELKOMNIR !
AÐ GEFNU TILEFNI SKAL TEKIÐ FRAM AÐ ÞARNA ER EKKI OG HEFUR ALDREI VERIÐ UM AÐ
RÆÐA HARMONIKUMÓT í VENJULEGUM SKILNINGI ÞESS ORÐS, HELDUR ER ÞETTA
DANSLEIKUR !
FJÖLMENNUM ! TJALDSTÆÐI TIL REIÐU !
18