Harmonikublaðið - 01.05.2007, Síða 14
Skemmtiferd hjá H.F.Þ.
áfe
• N
v
áfe & 36 áfe 3t£ &
Harmonikufélag Þingeyinga hefur undanfarin ár farið í
skemmtiferðir minnst einu sinni á ári, heimsótt önnur
harmonikufélög og haldið böll. í sumar heimsóttum við félag
Harmonikuunnenda í Húnavatnssýslu, gistum að Húnavöllum
og skoðuðum okkur um. Þetta var góð ferð, móttökur frábærar
og veður gott. Það er hefð í þessum ferðum að segja sögur í
rútum og yrkja og reynum við að halda saman vísunum þar sem
þær gefa nokkra mynd af stemmningunni í ferðinni. Hér fer á
eftir ferðasaga og megnið af þeim kveðskap sem til varð í
þessari ferð, sem var þó með minna móti þar sem Friðrik
Steingrímsson var ekki með.
Lagt var upp föstudaginn 18. ágúst 2006 og komu farþegar til
móts við rútuna hver með sínum hætti. Við Breiðumýri vantaði
hjón sem við vonuðumst eftir en Óli frá Vatnsleysu svaf þar sem
fastast f bít sínum. Við Laugar kom svo Ásgeir Stefánsson
skokkandi með harmonikuna á hjólbörum og fór mikinn.
Þá hóf Ffa vísnaleikinn.
Gunnhildi sást ekkert af
hún okkur bara gleymdi
en undir stýri Óli svaf
og öl og konur dreymdi.
Ásgeir kom hér akandi
í ekta sveitastfl
hjólbörurnar höktandi
hafði fyrir bfl.
Við Vatnsleysu í Fnjóskadal beið Sigríður ívarsdóttir ásamt
manni sínum Ármanni og fleirum. Var hún leiðsögumaður okkar
enda uppalin í Forsæludal f Húnaþingi. Þegar hún kom upp í
bílinn orti Þorgrímur Björnsson.
Þvottinn háttvið himinn bar
hékk á traustum viðum
Brækur Siggu blöktu þar
bfsna stórar í sniðum.
Og Sigríður svaraði að bragði.
Víst mínar brækur viðra ég oft
að viðra er siður hjá konum.
En þar sem þær blöktu og báru við loft
byrjaði löngun hjá honum.
Og Þorgrímur svaraði.
Á náttúru víst nokkuð bar
næstum eins og hjá törfum.
Er sá hann brækur Sigrfðar
saman með Ármanns lörfum.
ÁAkureyri tilkynnti SigurðurÓlafsson fararstjóri að stansaðyrði
við ríkið því vissara væri að byrgja sig upp. Einnig hvatti hann
fólktil þess aðyrkja ogfór sjálfur með nokkrar stökurtilað sýna
gott fordæmi.
Þá orti Þorgrímur.
Engavísuyrkja kann
á því mjög í stími
Stuðlum öllum stelur hann
og stundum endarími.
Og Stefán Þórarinsson bætti við.
Enga vísu yrkja kann
eða festa í minni.
Stöðugt rfmi og stuðlum hann
a stelur af konu sinni.
Og Sigríður.
Ég hélt að Siggi væri að gera grín
geystust menn í röðum inn í Rfkið
Að Húnvetningar veiti ekki vfn
ég vissulega undrast nokkuð mikið.
Það tók tíma að versla og bera út veigarnar, svo hægt væri að
leggja upp í næsta áfanga sem var Blönduvirkjun. Þar ætluðum
við meðal annars að sjá sýningu úr Grettissögu. Var farið með
okkur langt undir yfirborð jarðar þangað sem við gárungar
kölluðum í Neðra og orti þá Fía.
Ekki var ég örugg þó
aldrei syndgi ég héðra.
Sigrfður og Siggi Ó
sendu mig í Neðra.
Eftir kaffi í Blönduvirkjun var áfram haldið, en þegar við
nálguðumst Húnavelli varð einhver umræða um hvernig
hótelstjóri mundi raða á herbergi.
Þá spurði Fía.
Er rétt það sem ég heyrði hér
að hending ráðið geti
hvern hótelstjórinn hugsar sér
að hafa í mfnu fleti?
Og Sigríður svaraði.
í rúmin Siggi raða býst
reyndi vel að haga.
Efað vandi af þvíhlýst
yrði kannske að draga.
Upphófst nú glens um valmöguleika á herbergisfélögum og Fía
spurði.
í Kaju bjóða bæði Siggi og Jón
og báða virðist konan ætla að þyggja.
Nú verður hver að bera upp sína bón
Hver býður mér í kvöld hjá sér að liggja?